Milli mála - 01.01.2011, Side 38
38
tilteknu menningarsamfélagi til annars.29 Verk þeirra staðfesta
kenningar Ortiz um að mismunandi menningarkimar sem búa í
návígi og hverfast hver um annan smitist og verði fyrir óaftur kræf-
um og gagnvirkum áhrifum hver af öðrum. Til verður núningssvæði
þeirra á milli, þar sem enginn er ósnortinn. Skáldkonurnar, sem eins
og áður segir skrifa ýmist á ensku eða spænsku, fjalla um fjöl menn-
ingar legt umhverfi sitt og uppruna. Þær lýsa veruleika sem þær
þekkja og veita innsýn í sérstæða reynslu og þau gildi sem af henni
spretta. Þær hafa orðið fyrir áhrifum, ígrundað þau og endurskapað
í verkum sínum. Verk þeirra bera vott um nýstárlegar sjálfsmyndir
sem staðfesta hugmyndir úrúgvæska fræðimannsins Angels Rama
um að þetta ferli menningaraðlögunar stuðli að „neoculturación“
eða nýmenn ingu.30
2. Sjálfsmyndir og staðalmyndir um Kostaríku
Mótun sjálfsmynda er áberandi í verkum rithöfunda sem eiga
uppruna sinn að rekja til minnihlutasamfélaga Kostaríku. Með
hugtakinu sjálfsmynd (sp. identidad) er hér vísað til skilnings
einstaklings á sjálfum sér í félagslegu umhverfi sínu. Þessi skilning-
ur er í takt við hugmyndir sílesku félagsfræðinganna Manuels Baeza
og Mögdu Sepúlveda sem leggja áherslu á að sjálfsmyndir mótist
aðallega af uppruna og menningu, ásamt landfræðilegum aðstæð-
um, atvinnuháttum og hlutverkum.31 Sjálfsmyndir, benda þau á,
eru svæðisbundnar. Einstaklingurinn speglar sig í nánasta umhverfi
sínu og verður virkur gerandi í því að skapa og þróa eigin sjálfsmynd
– ómeðvitað í æsku en meðvitað á fullorðinsárum.32 Í því felst,
samkvæmt kenningum heimspekingsins Corneliusar Castoradis, að
29 Fernando Ortiz, „Del fenómeno social de la „transculturación“ y de su importancia en Cuba“,
Contrapunteo cubano del tabaco y azúcar, Enrico Mario Santí (ritstj.), Madrid: Cátedra, 2002, bls.
254–262.
30 Ángel Rama, Transculturación narrativa en América, México: Siglo XXI, 1982, bls. 33.
31 Manuel Baeza, Los caminos invisibles de la realidad social: Ensayo de sociología profunda sobre los
imaginarios sociales, Santiago, Síle: Red Internacional del Libro, 2000.
32 Magda Sepúlveda, „La construcción de identidades, sus imaginarios y su posición en la literatura“,
Taller de letras 32/2003, bls. 67–78. Sjá ennfremur skrif Stryker og Burke, „The Past, Present, and
Future of an Identity Theory“, Social Psychology Quarterly, American Sociological Association
4/2000, bls. 287–297.
Að SKYGGNAST Í SKÚMASKOTIN