Milli mála - 01.01.2011, Page 55
55
til að „gera litaða íbúa landsins spænskari“.83 Hún tekur afstöðu
gegn félagslegum darvinisma og heldur fjölmenningarstefnu á lofti.
Lára tekur sig einnig upp og flytur til New York. Lesandinn kveður
hana um leið og hún ekur í leigubíl eftir breiðstrætum stórborgar-
innar þann 11. september 2001. Hún hlustar á Bob Marley staðfesta
að: „Allt verður í lagi“ (bls. 291) og þakkar fyrir að hafa ekki tekið
upp arabískt eftirnafn móður sinnar eða gælunafnið Aisha sem
Maroz frænka gaf henni fyrir mörgum árum.
6. Lokaorð
Skáldsögur kostaríska rithöfundarins Anacristina Rossi, Limón Blues
og Limón Reggae, flytja okkur fréttir af fjarlægum slóðum. Hún segir
okkur frá fólkinu sínu við strönd Karíbahafsins, frá leit þess að
sjálfsmynd og frá sögu svæðisins. Írena horfir á sjálfa sig í spegli og
segir: „Mér getur fundist að ég sé hlekkjuð og að ég eigi bágt. En
ekki í dag […]“.84 Lára virðir einnig fyrir sér eigin spegilmynd í
búðarglugga í New York og raular lagið „Stand up for your rights“
með Bob Marley. Báðar tilheyra þær samfélagshópum sem standa á
jaðrinum, minnihlutahópum sem við upphaf 21. aldar eru enn að
leita samnefnara til að styrkja stöðu sína. En ólíkt karlpersónum
skáld sagnanna lætur Rossi þær efast, gagnrýna, ögra og gera til-
raunir til úrbóta. Hún lætur þeim mistakast, þær verða að endur-
skoða aðferðir sínar og reyna aftur, og aftur.
Skáldsögur Rossi veita innsýn í samfélagsmál á Karíbahafs strönd
Kostaríku. Í verkum hennar er því lýst að eftir fimm hundruð ára
sögu menningar-, tungumála- og blóðblöndunar, þar sem frum-
byggjar, Evrópumenn og síðar afrískir þrælar hafa orðið ein þjóð,
ræður aðskilnaður enn ríkjum. Skáldsögurnar varpa ljósi á menn-
ingar sögu svæðisins og leggja lið baráttunni fyrir viðurkenn ingu á
marg breytileika og verðleikum tiltekinna menningar kima og jaðar-
samfélaga. Rossi gerir sögu og ævisögu íbúa hafnarborgarinnar
Limón og Karíbahafsstrandar Kostaríku að hluta af ímynd þjóðar-
innar og bókmenntasögu landsins. Með sköpun sögupersón anna,
83 „Hay que españolizar a la raza de color“, Rossi, Limón Blues, bls. 384.
84 „Puedo sentirme amarrada o hacerme la sufrida. Pero hoy no […]“, Rossi, Limón Blues, bls. 394.
HÓLMFRÍðUR GARðARSDÓTTIR