Milli mála - 01.01.2011, Qupperneq 109
109
ekki ýkja hrifnir af lýsingum Idu Pfeiffer á landi og þjóð eins og
skrif Þorvalds Thoroddsens eru glöggt dæmi um:
[E]n svo kom þýzk kona, sem víða hafði farið um lönd, til Íslands 1845,
hún hét Ida Pfeiffer. Hún ferðaðist vanalegar leiðir til Heklu og Surtshellis
og er bók hennar mjög illorð og léleg og lýsir önuglyndi og vondu skapi.
Frú Pfeiffer var ein síns liðs, kunni ekkert í málinu og gat illa gert sig
skiljanlega: […] Hún segir, að Íslendingar séu ógestristnir, óráðvandir,
ágjarnir og óþrifnari en nokkrir Skrælingjar, þeir séu þess utan svo
ógurlega latir, að þeir vilji ekkert vinna, […]48
Þessi dómur Þorvalds Thoroddsens hefur án efa haft mikil áhrif á
skoðun Íslendinga á frásögn Idu Pfeiffer, en þar sem bókin hefur
ekki enn verið þýdd á íslensku geta einungis þeir sem hafa þýsku á
valdi sínu kynnt sér lýsingar hennar. Stutt endursögn Jóns Helga-
sonar frá árinu 1945 kemur einungis örlitlu af lýsingum hennar á
fram færi. Allt annað er uppi á teningnum með rit Inu von Grumb-
kow sem þýtt var á íslensku, þó ekki væri það fyrr en árið 1982, og
einnig eru til þýðingar á bréfum hennar til Íslendinga. Þá hefur
einnig verið þýtt verk þýska blaðamannsins Franks Schroeders, sem
fetaði í fótspor Inu von Grumbkow 86 árum eftir ferð hennar, eða
árið 1995. Hann reyndi að komast að því hver Ina von Grumb kow
var og fór á stúfana í leit að einhverju sem gæti gefið gleggri mynd
af persónu hennar. Frank Schroeder leitaði fyrst uppi staði í Berlín
þar sem hann gæti átt von á að finna upplýsingar sem skýrt gætu
hvarf Walters von Knebels og líf Inu von Grumbkow. Hann hélt
áfram að rekja slóð Inu von Grumbkow og fór til Íslands. Hann
heim sótti sömu staðina og hún hafði lýst, tók fram teikn ingar
hennar og leit aði upp staði og fólk sem varpað gæti ljósi á hana.
Verkið Die Eis um schlungene. Spurensuche in Island sem komið hefur
út í íslenskri þýð ingu Sigurjónu Scheving og ber titilinn Hula
þagnar innar. Myndbrot frá Íslandsferð er afrakstur leitarinnar að Inu
og ferðalags ins um Ísland. Þessar útgáfur sýna lifandi áhuga á
ferðum Inu von Grumbkow um Ísland.
48 Þorvaldur Thoroddsen, Landfræðissaga Íslands. Hugmyndir manna um Ísland, náttúruskoðun og
rannsóknir, fyrr og síðar, IV. bindi, Kaupmannahöfn: Hið íslenzka bókmenntafjelag, 1904, bls.
112–113.
ODDNÝ G. SVERRISDÓTTIR