Milli mála - 01.01.2011, Page 167
167
um hópum, t.d. konum, ungu fólki eða ólæsum, og námskeið tengd
upplýsingatækni en einnig starfstengd námskeið.
Reynt hefur verið í öllum löndunum að sinna kennslu fyrir
ólæsa, mismikið reyndar. Svíþjóð sker sig hér úr með því að kenna
fólki að lesa á móðurmáli sínu. Annars staðar hefur verið reynt að
kenna fólki að lesa á tungumáli meirihlutans. Margir ólæsra
innflytjenda á Norðurlöndum eru konur og því eru til námskeið í
læsi, bæði orða- og talnalæsi, sem sérstaklega eru ætluð konum.
Finnar bjóða upp á 40 vikna nám fyrir ólæsa. Námskeið í almennri
tölvunotkun fyrir innflytjendur eru til á öllum Norðurlöndunum,
þó eru fæst í boði í Danmörku. Of langt mál er að lýsa öllum þeim
fjölda námskeiða sem í boði eru á Norðurlöndum en í samantekt
lýsinga á þessum námskeiðum virðist góður árangur nást þegar:
• þau eru unnin í samvinnu allra sem eiga hagsmuna að gæta.
• tekið er mið af starfstengdum þörfum nemenda í skipulagi
námskeiða.
• markmið eru skýr og væntingar um atvinnumöguleika að
námi loknu eru raunhæfar.
• tungumála- og starfsnámskeið eru samtvinnuð.
• skipulag er sveigjanlegt þannig að sem flestir hafi aðgang að
námskeiðum, t.d. í fjarnámi.
• nemendur fá stuðning mentora með tengsl við vinnu mark-
aðinn.
• markhópur er afmarkaður og þarfagreining nákvæm.19
Stéttarfélög hafa átt mikinn þátt í að efla starfstengda tungu mála-
kennslu og má segja að stéttarfélög á Íslandi hafi verið leiðandi á
þessu sviði á Norðurlöndunum. Frá árinu 2007 hefur starfstengd
tungu málakennsla verið hluti af almennu tungumálanámi í Finn-
landi.
Mikilvægt er að hafa í huga að aðstæður í hverju landi eru mis-
munandi. Það sem ber árangur í einu landi mun ekki endilega bera
árangur í öðru sem gerir samanburð erfiðan. Árangur verður aðeins
metinn í samfélagslegu samhengi, þ.e. með þáttum eins og
tækifærum á vinnumarkaði, hópnum sem á í hlut og úrræðum sem
19 Wahlgren o.fl., Integration af indvandrere gennem voksen- og efteruddannelse. Þýðing höfundar.
BIRNA ARNBJÖRNSDÓTTIR