Milli mála - 01.01.2011, Page 111
111
alvön var að kanna lönd kom illa útbúin til ferðalaga, hafði ekki
tjald, teppi og hlýjan fatnað meðferðis og hefur ekki getað keypt sér
það. Baslið, kvefið og vosbúðin setti mark sitt á ferðina. Hún tekur
fram að ferðalagið á Íslandi sé það erfiðasta sem hún hafi reynt, ferðir
hennar í Austurlöndum hafi t.d. ekki verið eins mikil þolraun. Ida
Pfeiffer telur Íslendinga mjög fégráðuga. Þegar til Noregs var
komið tekur hún sérstaklega fram að allt fólk sem hún kaupir ekki
þjónustu af sé ljúft og gott, einungis hjá þeim sem veiti þjón ustu
finni hún fyrir fégræðgi. Þennan greinarmun gerir hún ekki á
samskiptum sínum við Íslendinga enda erfitt þar sem hún kynntist
þeim ekki. Idu Pfeiffer finnst erfitt að sætta sig við agaleysi,
óstundvísi og drykkjuskap þeirra sem hún ræður sem fylgdarmenn
á Íslandi. Þetta er reynsla sem hún hefur ekki upplifað áður.
Af ferðalýsingunum tveimur að dæma mætti draga þá ályktun
að Íslendingar hefðu breyst mjög á þeim tíma sem leið á milli
ferðanna tveggja. Slíkt er þó harla ólíklegt. Þótt 63 ár líði á milli
ferðanna eru þær um margt líkar þar sem íslenskt þjóðfélag og
atvinnuhættir höfðu ekki gerbreyst á þessum tíma, þótt vissulega
hafi þjóðfélagið tekið breytingum. Konurnar ferðast t.d. um á
hestum en vert er að benda á að Ida Pfeiffer ferðaðist einungis um
Suðurland, Ina von Grumbkow kynntist hins vegar einnig Norð-
lendingum. Framkoma Idu Pfeiffer og Inu von Grumbkow við
Íslendinga hefur áreiðanlega verið mjög ólík og endurspeglar ólíka
persónuleika þeirra. Ida Pfeiffer var tilætlunarsöm og kannski
nokk uð nísk, ótrúlega illa undirbúin til ferðalaga af reyndum land-
könn uði að vera, en Ina von Grumbkow þakklát og jákvæð í garð
Íslendinga. Hafi Inu von Grumbkow mislíkað eitthvað hefur hún
ekki orð á því. Það sem Ina von Grumbkow og Ida Pfeiffer eiga
sameiginlegt eftir ferðina til Íslands eru vonbrigði. Ida Pfeiffer varð
fyrir vonbrigðum með margt í fari Íslendinga og hversu erfið ferðin
reyndist henni og hvað henni var illa tekið af stétt heldri manna.
Hún er engu að síður ánægð með að hafa upplifað einstaka íslenska
náttúru. Ina von Grumbkow varð einnig fyrir vonbrigðum en á allt
annan hátt. Ferðalagið sannfærði hana um að dauða unnusta hennar
gæti hafa borið að við Öskju eins og almennt var talið, hún kynnist
íslenskri náttúru og hættum hennar. Þessi miklu vonbrigði hafa
ekki áhrif á viðhorf hennar til Íslendinga.
ODDNÝ G. SVERRISDÓTTIR