Milli mála - 01.01.2011, Page 176
176
Árið 2007 var aftur gerður samningur við FA og þá um 1) gerð
námsefnis í íslensku sem öðru máli og 2) þjálfun kennara í að nota
námsefnið. Námsefnið átti að vera tilbúið haustið 2007.50 Samkvæmt
upplýsingum frá Fræðslumiðstöð í lok júlí 2011 hefur uppfært
námsefni nú verið gefið út.51
Eins og áður hefur komið fram er í stefnu ríkisstjórnarinnar
kveðið á um að efla beri kennaramenntun m.a. með því að skilgreina
lágmarkskröfur og að kennarar fái grunnþjálfun en að tímabund ið
átak verði gert í námskeiðshaldi með því að semja við háskólastofn-
anir um að annast menntun kennara.52 Árið 2007 var enn á ný
gerður samn ingur við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, nú um þjálfun
kenn ara til að kenna íslensku sem annað mál og voru FA veittar 9,5
milljónir til verksins. Í úttekt ráðuneytisins á FA frá 200953 kemur
fram að markviss þjálfun kennara hafi ekki farið fram. Skýringin
sem er gefin er að þar sem námsefnið hafi ekki verið tilbúið hafi
ekki verið unnt að þjálfa kennara í notkun þess. FA hélt tveggja
daga námskeið á þremur stöðum á landinu haustið 2008 og vorið
2009. Á námskeiðunum var farið yfir almennar aðferðir í kennslu
fullorðinna, ný námskrá kynnt, aðferðir í kennslu tungumála og
námsefni sem Mímir – símenntun notar.54 Ljóst er að hér er mikið
verk óunnið og stefna ríkisstjórnarinnar hefur ekki komið til fram-
kvæmda hvað varðar aukningu vel menntaðra kennara og náms efnis
við hæfi.
Í umræddri úttekt frá desember 2009 segir að jákvætt sé að
tengja íslenskukennslu fyrir innflytjendur almennri fullorðins-
fræðslu en í sömu andrá segir í úttektinni að spurningar vakni um
hvort íslenskukennsla eigi að einskorðast við „útlendinga á vinnu-
markaði“.55 Lagt er til í úttektinni að mennta- og menn ingar-
málaráðuneytið „móti heildstæða stefnu í íslenskukennslu fyrir
útlendinga“.56
50 Sama rit.
51 Sólborg Jónsdóttir, tölvupóstur, dags. 20. júlí 2011.
52 Stefna ríkisstjórnarinnar, bls.16.
53 Úttekt, bls. 17.
54 Sólborg Jónsdóttir, tölvupóstur, dags.15. október 2009.
55 Úttekt, bls.17.
56 Sama rit, bls. 3.
STEFNA OG FRAMKVÆMD SÍMENNTUNAR OG AðLÖGUN INNFLYTJENDA …