Milli mála - 01.01.2011, Qupperneq 51
51
útskýrt að áreitið sem af þessu skapast fyrir einstaklinginn geti haft
djúpstæð áhrif. Hún lýsir þeim erfiðleikum sem þessir einstaklingar
standa frammi fyrir þegar að því kemur að skilgreina sjálfsmynd
sína og ræðir hvernig margs konar kynblöndun gerir þá að þeim
sem þeir eru. Umhverfið, segir hún, gerir hins vegar kröfu til þess
að hver og einn tilheyri tilteknum þynþætti og samfélagið ætlast
til þess að einstaklingurinn velji ákveðinn kynþátt umfram annan.70
Lára ásakar þannig sjálfa sig en ekki umhverfið fyrir rótleysi sitt.
Hún er knúin til að velja því hver einstaklingur þarf á því að halda
til að öðlast félags- og menningarlega rótfestu og finna sig tilheyra
tilteknu samfélagi.71 Lára vegur og metur aðstæður sínar og speglar
sig í umhverfinu. Aðferðir hennar staðfesta það sem Crystal Bedley
ræðir í grein sinni „The Formation of Multiracial Identity“, en þar
bendir hún á þrjár leiðir sem einstaklingi af blönduðum uppruna
standa opnar við mótun sjálfsmyndar sinnar.72 Í fyrsta lagi ræður
fjölskyldusamsetning viðkomandi miklu. Í öðru lagi líkamsburðir
og útlit og í þriðja lagi reynsla og aðstæður þeirra hópa sem einstak-
lingurinn ber sig saman við. Þroskasaga Láru endurspeglar þessa
fjölsamsettu uppskrift en staðfestir samtímis áherslur Philips
Browns, eins og hann setur þær fram í grein sinni „Biracial Identity
and Social Marginality“. Þar undirstrikar hann að einstaklingar af
blönd uð um uppruna velji alla jafna að skilgreina sig með minni-
hluta hópum frekar en meirihlutanum. Ástæðuna segir hann vera
sameiginlega reynslu útskúfunar og jaðarstöðu. Hann leggur áherslu
á að félagseiningin sem viðkomandi velur hafni gjarnan nýliðun
vegna þess hversu sjálfsmat hópsins er skaddað og veikt.73
Skáldsaga Rossi Limón Reggae kynnir okkur fyrir ungri glaðværri
stúlku sem á jákvæðar minningar frá æskuárum sínum í hafnar-
borginni Limón. Þegar hún eldist og leitast við að skapa sitt eigið
70 Dominique Michel-Peres, Understanding the Identity Choices of Multiracial and Multicultural Afro-
European and Black Women Living in Germany: Identifying a Model of Strategies and Resources for
Empowerment, bls. 62, af; www.edoc.ub.uni-muenchen.de/6489/1/Michel-Peres_Dominique.pdf
[sótt í september 2011].
71 Jean S. Phinney, „Ethnic Identity in Adolescents and Adults. Review of Research“, Readings in
Ethnic Psychology, ritstj. Pamela Balls Organista, Gerardo Marín og Kevin M. Chun, Routledge,
New York: Routledge University, 1998, bls. 73–99, hér bls. 81.
72 Cristal Bedley, „The Formation of Multiracial Identities“. Sjá: http://www.allacademic.com/ [sótt
í september 2011, bls. 8].
73 Brown, Philip M, „Biracial Identity and Social Marginality“, bls. 333.
HÓLMFRÍðUR GARðARSDÓTTIR