Milli mála - 01.01.2011, Page 166
166
málakennslu. Framkvæmd slíkrar kennslu virðist þó með ýmsu
móti. Mikið er um námskeið sem miða að því að koma innflytjend-
um í vinnu með því að bjóða námskeið í sjálfstyrkingu og efla
almenna færni sem nýtist til atvinnuleitar. Það er ljóst að þó að slík
námskeið séu talin til starfstengdra námskeiða eru markmið þeirra
og innihald í eðli sínu öðruvísi en t.d. námskeiða í stjórn vinnuvéla
eða nám skeiða um öryggi á ákveðnum vinnustöðum. Fjölmargar
tegundir slíkra starfstengdra námskeiða sem tengjast mismunandi
starfs stéttum fyrirfinnast á Norðurlöndum og eru þau ýmist kennd
á tungu máli viðkomandi, kennd með aðstoð túlka, eða að námskeiðin
eru kennd á markmálinu og aðlöguð málfærni þátttakenda.15 Á
Íslandi hefur samvinna fræðsluaðila við stéttarfélög og vinnustaði
leitt til starfstengdra tungumálanámskeiða á vinnustöðum, oft í
vinnutíma, og gefið mjög góða raun.16 Aðferðin er skilvirk, mætir
sér stökum þörfum nemenda og er því nemandanum hvati til að
leggja sig fram í náminu. Kannanir í Finnlandi sýna að þeir þátt-
takendur sem fara í starfstengt nám eftir námið í finnsku standa sig
betur en þeir sem fara eingöngu í hefðbundið finnskunám.17 Rann-
sóknir á Íslandi sýna almenna ánægju og góðan árangur af starfs-
tengdum námskeiðum.18 Þau hafa verið í boði reglulega á vegum
stéttarfélaga á Íslandi en flokkast undir sérhæfð námskeið sem eru
til umræðu í næsta kafla.
2.5 Sérhæfð tímabundin námskeið og þróunarverkefni á
Norðurlöndum
Margvísleg sérhæfð námskeið fyrir innflytjendur eru í boði á öllum
Norðurlöndunum. Með sérhæfðum námskeiðum er átt við tíma-
bundin tilrauna- eða þróunarverkefni sem fjármögnuð eru af sér-
stökum sjóðum eða afmörkuðu átaki. Hér undir eru í rannsókninni
flokkuð tímabundin námskeið s.s. aðfaranám og nám ætlað ákveðn-
15 Sama rit.
16 Þingsályktun um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda, Þingskjal 1226. 535. mál, Reykjavík:
Alþingi Íslendinga, 2008.
17 Wahlgren o.fl., Integration af indvandrere gennem voksen- og efteruddannelse.
18 Birna Arnbjörnsdóttir, „The HB Grandi Experiment. A Workplace Language Program“, Second
Languages at Work, ritstj. Karen-Margrete Frederiksen, Karen Sonne Jakobsen, Michael Svendsen
Pedersen og Karen Risager, Roskilde University: IRIS Publications, 1, 2006, bls. 37–63.
STEFNA OG FRAMKVÆMD SÍMENNTUNAR OG AðLÖGUN INNFLYTJENDA …