Milli mála - 01.01.2011, Blaðsíða 95
95
ODDNÝ G. SVERRISDÓTTIR
að finna í bókinni Nordlandfahrt. Eine Reise nach Skandinavien und
Island im Jahre 1845.1
Ólíkt Idu Pfeiffer hafði Ina von Grumbkow ekki uppi áform eða
væntingar um að ferðast til Íslands. Það var sviplegt fráfall þýska
jarðfræðingsins Walthers von Knebels á hálendi Íslands í lok maí-
mánaðar árið 1907, 62 árum eftir að Ina Pfeiffer hafði verið á ferð
um landið, sem varð til þess að unnusta hans Ina von Grumbkow,
sem fæddist árið 1872 í Övelgönne við Hamborg, fór til Íslands.
Hún hafði hugleitt að fara í Íslandsferðina með unnusta sínum, eins
og fram kemur í bréfi sem hún skrifar móður sinni2 en ekki var talið
ráðlegt að hún færi með, ferðin væri talin of erfið og ferðalög um
hálendi Íslands ekkert fyrir konur.
Ida Pfeiffer undirbjó ferð sína vel, las ferðabækur um Ísland,
lærði eitthvað í dönsku og ensku áður en hún lagði af stað og til-
hlökkunin var mikil eins og hún lýsir sjálf:
Árið 1845 lagði ég sem sagt enn upp í mikilvæga ferð, og það norður á
bóginn – Ísland var það svæði sem mig hafði dreymt um að heimsækja frá
því ég man eftir mér. – Í því landi þar sem náttúran var svo sérstök, að
leitun er að öðru eins í heiminum. Þar vonaðist ég til þess að líta fyrirbæri
er fylltu mig óþekktri, ólýsanlegri undrun.3
Bernskudraumur Idu Pfeiffer rætist með Íslandsferðinni en ástæðu
Íslandsfarar Inu von Grumbkow má fremur líkja við martröð.
Walther von Knebel, sem fór til Íslands með vini sínum,
listmálaranum Max Rudloff og jarðfræðistúdentinum Hans Speth-
1 Ida Pfeiffer, Nordlandfahrt. Eine Reise nach Skandinavien und Island im Jahre 1845, útg. Gabriele
Habinger, Vín: Promedia, 1991, bls 17. Upprunaleg útgáfa bókar Idu Pfeiffer var Reise nach dem
skandinavischen Norden und der Insel Island im Jahre 1845 og kom hún út í tveimur bindum árið
1846.
2 Frank Schroeder, Hula þagnarinnar. Myndbrot frá Íslandsferð, þýð. Sigurjóna Scheving, Hafnarfjörður:
Sigurjóna Scheving, 2008.
3 „Im Jahre 1845 trat ich also abermals eine bedeutende Reise an, und zwar nach dem hohen
Norden – Island war eine jener Gegenden, nach denen ich mich seit dem Anfange meines Denkens
sehnte. – In diesem von der Natur ganz eigentümlich ausgestatteten Lande, das wohl nirgends auf
Erden seinesgleichen finden mag, da hoffte ich Dinge zu schauen, die mich mit neuem, un -
nennbarem Erstaunen erfüllen würden.“ Ida Pfeiffer, Nordlandfahrt, bls. 17. Þýðing höfundar.
Höfundur þýðir allar tilvitnanir í óþýdd verk.