Milli mála - 01.01.2011, Side 97
97
skrifar um ástæður til fararinnar í bréfi til Sigurðar Sumarliðasonar,
fylgdarmanns síns og Hans Recks:
Ég vil taka það fram hér, að okkur og yður greinir mjög á um tilgang
þessa ferðalags. Þér sjáið aðeins litlar líkur til þess að lík tvímenninganna,
sem drukknuðu í Öskjuvatni 10. júlí sé þar að finna. – Við komum til
þess að leita verksummerkja manna sem fórust ekki 10. júlí, heldur tóku
ljósmyndir 14 dögum síðar, (eins og sannast af skriflegum athugasemdum
unnusta míns, sem ég fékk með farangri hans til baka) og tólf ljósmyndum
af umhverfi Öskjuvatns (sem herra kapt. Daniel Bruun sagði mér að væru
þaðan). Rithönd unnusta míns þekki ég ekki aðeins nákvæmlega, svo það er
ekki til neins fyrir herra Spethmann að ætla að róa okkur með fullyrð-
ingum um, að hann hafi sjálfur ritað umræddar athugasemdir.9
Hún er sannfærð um að þær ástæður sem sagðar eru fyrir hvarfi
Walthers von Knebels og Hans Rudloffs séu ekki réttar og leggur
því í förina til Íslands.
Eins og Ida Pfeiffer skrifaði Ina von Grumbkow bók um ferða-
lagið: Ísafold. Reisebilder aus Island.10 Myndir af íslenskri náttúru
teiknaðar af henni prýða bókina og einnig eru þar ljósmyndir. Bók
Inu von Grumbkow kom út ári eftir Íslandsförina. Í formála
bókarinnar kemur fram að vonin um að fá skýringu á því sem
gerðist við Öskju er einlæg:
Fyrir okkur, sem ekki þekktum Ísland, var svo sporlaust hvarf óskiljanlegt.
Við vissum ekkert um ókleifa bakka þessa umrædda vatns, ekkert um
ómælisdýpi þess né ógnandi skriðuföll, sem dynja dag og nótt á því ofan
úr hlíðunum. Við höfðum enga raunhæfa þekkingu á margra mílna
hartnær ófærum miðhálendisins. Við vonuðum bara örugglega, að nýr
leitarleiðangur sem dveldist um hríð í Öskju og leitaði þar, gæti brugðið
einhverri skímu á orsök slyssins.11
9 Haraldur Sigurðsson, „Íslandsferð Inu von Grumbkow 1908. Fimm bréf“, Land og stund.
Afmæliskveðja til Páls Jónssonar, útgáfunefnd Anton Holt o.fl., Reykjavík: Lögberg bókaforlag,
1984, bls. 67–81, hér bls. 74–75.
10 Ina von Grumbkow, Ísafold. Reisebilder aus Island, Berlín: Dietrich Reimer 1909.
11 Ina von Grumbkow, Ísafold. Ferðamyndir frá Íslandi, þýð. Haraldur Sigurðsson, Reykjavík: Örn og
Örlygur, 1982, bls. 29.
ODDNÝ G. SVERRISDÓTTIR