Milli mála - 01.01.2010, Page 19
um at skjóta svá at þrjú váru á lopti senn. nú sem faðir hans
var andaðr, þá hafði Parceval þat til siðar, at hann reið á skóg
með fola sinn ok gaflök ok skaut dýr ok fugla. Ok einn dag
sá hann ríða fimm riddara, ok hann reið í skóginn, ok einn af
þeim sá at piltrinn var skammfulligr ok reið hann til hans ok
spyrr, ef hann hefði sét um ríða fjóra riddara ok með þeim
tvær konur. En honum varð ekki annat á munni en spyrja
riddarann, ef hann væri guð; kvað móður sína hafa sagt sér
at ekki væri jafn fagrt sem guð.31
Þar næst spyr Parceval nokkurra spurninga um vopn og
herklæði riddaranna, ríður svo heim á leið og tilkynnir móður sinni
að hann ætli að fara til hirðar artúrs konungs og gerast riddari.
Móðir hans er leið yfir ákvörðun hans en gerir honum klæði að
sveitasið, segir honum þar næst stuttlega frá því hverra manna hann
er og leggur honum lífsreglurnar.
Vorstemningunni sem einkennir margrætt upphaf franska text-
ans er sleppt, hvort sem fuglasöngur eða vorstörf akurkarla eiga í
hlut. Þýðandinn hefur einnig fellt niður vangaveltur piltsins yfir því
sem hann heyrir og sér. Broslega hliðin á samtali sveinsins og ridd-
arans hefur gufað upp og frásögn móðurinnar af fjölskyldumálum
Parcevals, sem nær yfir 82 ljóðlínur í franska textanum, dregur
þýðandinn saman í fimm línur þar sem móðirin segir syni sínum af
ættgöfgi hans og horfnum auðæfum þeirra foreldranna. Hins vegar
staldrar þýðandinn við heilræði móðurinnar og verða þau fleiri hér
en hjá Chrétien. Þessi byrjun er í samræmi við þær áherslur sem eru
í verkinu öllu: Þýðandi hefur einkum áhuga á Parceval sjálfum,
þroska hans og framgangi.
nafn aðalsöguhetjunnar og uppruni er mikilvægur þáttur í sögu
Chrétiens. Strax í upphafi verksins, þegar Perceval hittir riddarana,
kemur í ljós að hann veit ekki hvað hann heitir. Móðirin hefur
kallað hann ýmsum gælunöfnum og sveinninn ungi heldur að þetta
séu nöfn sín. Í Parcevals sögu er nafn söguhetjunnar notað frá upp-
hafi. Parceval er þó hvorki ávarpaður með nafni né spurður nafns
fyrr en hann hittir frænku sína rétt eftir að hafa kvatt kastala fiski-
konungsins: „En hinn er eigi vissi nafn sitt, nema hann gat til: ‘Þat
ÁSDÍS r. MagnúSDÓTTIr
19
31 Sama rit, bls. 108.
Milli mála 2011_Milli mála 1-218 6/28/11 1:38 PM Page 19