Milli mála - 01.01.2010, Page 75
Ljósmyndin verður einhvers konar frummynd, ljósmynd dögun-
ar, ekki aðeins hvað varðar skáldskap Djebar, heldur líka hlutverk
föðurins, Tahar Imalhayénel. Hann fremur í myndinni áhrifamesta
gjörning sinn sem kennari: Hann setur inn í myndina aðskotahlut
sem er fyrirboði nýrrar veraldar þar sem karlar og konur ganga
saman. Kennarinn er óafvitandi frumkvöðull – fyrir tíð frum kvöðla.
Hann sér til þess að elsta barn sitt, þrátt fyrir kyn þess, öðlist
menntun sína og menningarlega arfleifð. assia Djabar, konan, er
inni í myndinni.
3. Konur og þjóðernishyggja
Verk Djebar fjalla um baráttuna fyrir félagslegu réttlæti og frelsi
múslímskra kvenna. nokkur þeirra fjalla einnig um áhrif stríðs á líf
kvenna. Femínísk afstaða hennar og nálgun hafa vakið upp andúð
þjóðernissinna og bókstafstrúarmanna í alsír. Mjög lítið hefur
verið birt eftir hana á arabísku í alsír, en hún er þekkt í Evrópu og
Bandaríkjunum, þar sem hún er nú prófessor við new York-
háskóla, og er enn að skrifa á áttræðisaldri. Fyrsta skáldverk henn-
ar, La soif (Þorstinn)8, kom út árið 1957 og var strax þýtt á ensku.
Enska útgáfan vakti mikla athygli í Bandaríkjunum; hún var gefin
út í kilju og náði mikilli útbreiðslu. Verk hennar hafa nú verið þýdd
á 23 tungumál.
assia Djebar hefur getið sér góðan orðstír, en hún skapaði sér
einnig nafn í öðrum skilningi. Tilviljanakennd og lýsandi saga ligg-
ur að baki því skáldanafni sem hún gaf sér – því að „assia Djebar“
er nafn sem hún valdi sér sem rithöfundur. Þegar fyrsta skáldsaga
hennar var á leið í prentsmiðju þurfti hún að finna skáldanafn í
hvelli, þar sem hún vildi ekki að fjölskylda sín kæmist að því að
hún væri að gefa út bók. Einkum var mikilvægt að faðir hennar yrði
þess ekki áskynja. Þegar hún var á leið í prentsmiðjuna í bíl bað
hún kærasta sinn að þylja eftir minni 99 lofgjörðir til allah í þeirri
von að finna hentugt pennanafn. Hún valdi „Djebbar“, en það
orðtak lofar allah hinn ósveigjanlega. Í flýti skrifaði hún orðið með
einu b-i djebar sem þýðir „heilari“ á arabísku.
IrMa ErLIngSDÓTTIr
75
8 assia Djebar, La soif, París: Julliard, 1957.
Milli mála 2011_Milli mála 1-218 6/28/11 1:38 PM Page 75