Milli mála - 01.01.2010, Síða 115
Eins og sjá má var Þórhallur mjög iðjusamur og virtist ekkert
varðandi málefni rómanskra þjóða vera honum óviðkomandi hvort
sem það var á sviði menningar, sögu eða viðskipta. Hann skrifaði
greinar um spænskar bókmenntir, um Spán og fjölbreytileika
landsins, gröf heilags Jakobs á Spáni og ýmsa spænska rithöfunda,
svo sem Blasco Ibáñez, Lope de Vega, Calderón de la Barca,
unamuno, Juan ramón Jiménez að verkinu El Cid ógleymdu.
Menning spænskumælandi þjóða rómönsku ameríku var honum
einnig hugleikin. Hann skrifaði um argentínskar bókmenntir og
gátsjóana (argentínsku kúrekana), Kólumbus og ameríkuför hans,
Brasilíufarana og annað efni, svo sem tungumálanám og kennslu,
viðskipti við Spán og Filippseyjar sem voru að brjótast undan
spænsku herraþjóðinni. En skrif hans einskorðuðust ekki við
spænsk an arf; hann skrifaði einnig um franskar bókmenntir, albert
Camus og goðsögnina um Sísyfos, þýðingar og endursagnir úr
ítölskum miðaldaritum, Luigi Pirandello og íslenska sálma úr
trúarljóðum Prúdentíusar.56 Einnig skrifaði hann um íslensk efni í
erlend rit.
Árið 1939 gaf Þórhallur út bókina Byltingin á Spáni og borg-
arastyrjöldin 1936–1939. Bókin er um margt greinargóð og sýnir
mikla þekkingu á sögu Spánar, sérstaklega kaflarnir um annað
lýðveldið og aðdraganda þess. aftur á móti hallar á sagnfræðina
þegar kemur að kaflanum um stjórn lýðveldissinna, það er „El
frente popular“, og borgarastyrjöldina sjálfa. Bókin fékk misjafna
dóma. K.B. sagði í Vísi: „Bók þessi ber það með sér, að mjög hefir
málstaður stjórnar þeirrar, sem nú ríkir á Spáni [Francos] verið af -
fluttur, einkum í málgögnum socialista og annara rauðliða, og
KrISTÍn guðrún JÓnSDÓTTIr
115
56 Sjá til dæmis Þórhallur Þorgilsson, „Frá Spáni“, Borgin 1/1932, bls. 22–30;
„Brasilíufararnir. Frásögn um útflutning Íslendinga til Brasilíu á síðari hluta 19. aldar“,
Borgin 2/1933, bls. 8–17 (birtist síðar í Lesbók Morgunblaðsins, 25. apríl 1971); „Þættir úr
spænskri bókmentasögu“ (birtist í mörgum köflum 1932 og 1934) bæði í Rökkri og Vísi,
einn ig Heimskringlu; „Páfagaukurinn frá Salamanca, Miguel de unamuno“, Morgunblaðið,
14. jan. 1937, bls. 5–6; „Tungumálanám og málakennsla í skólum“, Vikan 5/1938, bls. 3–4;
„Viðskiptamál Spánverja“, Frjáls verslun 3/1939, bls. 6–7, 31; „um argentínskar bók-
menntir“, Vikan 1/1939, bls. 10–11; „Þegar Kólumbus fann ameríku“, Lesbók
Morgunblaðsins, 18. okt. 1942, bls. 321–323 og 25. okt., bls. 332–334, 336; „Cid –
Þjóðhetja Spánverja“, Vísir Sunnudagsblað, 24. jan. 1943, bls. 1–4; „gröf Jakobs“,
Eimreiðin 1/1940, bls. 70–78; „nýja ríkið í Kyrrahafinu“, Samtíðin 2/1943, bls. 4–10; „Juan
ramón Jiménez“, Stefnir 3/1956, bls. 54–57; „albert Camus og Sísyfosargoðsögnin“,
Dagskrá 1/1958, bls. 55–61; „um íslenzka sálma úr trúarljóðum Prúdentíusar“, Árbók
Landsbókasafns Íslands, 10–11/1953–1954. Fleiri greinar liggja eftir Þórhall.
Milli mála 2011_Milli mála 1-218 6/28/11 1:38 PM Page 115