Milli mála - 01.01.2010, Síða 185
Það ætti enginn að velkjast í vafa um að enska er nú mál vísinda og
þekkingar eins og David Crystal benti á fyrir tæpum áratug.27 En
umræðan um hvernig eigi að framfylgja þessari tvímálastefnu er
ekki langt á veg komin.
3. Viðhorf: aðrar rannsóknir
Víða, en þó einkum á norðurlöndum, hafa spurningar vaknað um
afleiðingar aukinnar tvímálanotkunar í fræðasamfélaginu og hvern ig
við henni skuli bregðast. Í málstefnunum hér að ofan, þar sem
kallað er eftir notkun þjóðmáls og ensku, er minna um tillögur um
hvernig skuli framkvæma slíkt. Hvernig er hægt að auka ensku -
notkun en einnig styrkja þjóðmálið? Seidlhofer og fleiri hafa bent
á að enska er enn „eign“ þeirra sem hafa hana að móðurmáli og því
standa þeir sem nota hana sem samskiptamál (e. lingua franca)
ekki eins vel að vígi þegar kemur að því að gæði skrifa séu metin.28
alvarlegust er ef til vill gagnrýni sem tengist kenningum um
umdæmistap (e. domain loss). Phillipson og fleiri halda því fram að
mikilvægt sé að staldra við og spyrja gagnrýninna spurninga um
áhrif þess að fræðileg skrif verði nær alfarið á ensku því svo geti
farið að akademísk og hugsanlega fagleg málumdæmi glatist á
móðurmálinu með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.29
nokkrar rannsóknir hafa verið gerðar á viðhorfum háskóla-
kennara til aukinnar enskunotkunar á háskólastigi. Flestar þeirra
hafa fjallað um notkun ensku í kennslu og áhrif hennar á nám. Í
fáeinum hafa viðhorf fræðimanna til notkunar ensku í fræðastörf-
um verið könnuð og þá oftast sem hluti af umfangsmeiri rannsókn-
um. Á vegum Center for internationalisering og parallel sproglig-
hed (CIP) við Kaupmannahafnarháskóla var gerð viðamikil könn-
un á viðhorfum kennara til enskunotkunar sem náði til um 1104
BIrna arnBJörnSDÓTTIr Og HaFDÍS IngVarSDÓTTIr
185
27 David Crystal, English as a global language, 2. útg., Cambridge: Cambridge university
Press, 2003.
28 Barbara Seidlhofer, ,,English as a lingua franca“, ELT Journal, 59(4)/2005; Brutt-griffler,
Janina og Keiko Samimy, ,,Transcending the nativeness Paradigm“, World Englishes,
20(1)/2001, bls. 99–106.
29 robert Phillipson, English-Only Europe? Challenging Language Policy, London, new York:
routledge, 2003.
Milli mála 2011_Milli mála 1-218 6/28/11 1:39 PM Page 185