Morgunblaðið - 23.10.2014, Side 11
Morgunblaðið/Malín Brand
Vinir Þeir Claude Gbedey og Njörður P. Njarðvík hafa þekkst lengi og vinna í sameiningu að uppbyggingu SPES.
tán ára og segir Njörður að þeim
verði hjálpað að finna sér nám eða
starf við hæfi þegar þar að kemur
en engum verði hent út í djúpu
laugina daginn sem hann verður
átján ára.
Lánsamur maður
Mikið er lagt upp úr að börnin
finni að þau séu heima hjá sér en
ekki á munaðarleysingjahæli.
Barnaþorpin í Tógó eru annars
vegar í Lóme og hins vegar í bæn-
um Kpalimé. „Þau ganga í skóla
rétt eins og önnur börn og þau
yngri eru í venjulegum leikskólum.
Á okkar vegum eru bæði læknir og
sálfræðingur sem fylgjast með
börnunum. Þau alast upp hjá okkur
við mjög góðar aðstæður, jafnvel
betri en gengur og gerist hjá börn-
um í Tógó almennt,“ segir Gbedey
sem lítur á það sem forréttindi að
fá að nýta eftirlaunaárin með börn-
unum í SPES-þorpinu. „Ég er lán-
samur og ég vil gefa þeim tíma
minn. Það sem mestu máli skiptir
er að gefa börnunum von og við
gefum þeim von,“ segir hann. Þó
svo að fólk í Tógó sé alla jafna ekki
auðugt eru þeir til sem leggja
börnum SPES lið með stuðningi
sínum. Til dæmis eru tvær systur
Gbedeys styrktarforeldrar tveggja
barna.
„Þeir sem halda utan um
barnaþorpin í Tógó eru heimamenn
og þeir sjá um börnin dags dag-
lega. Við viljum að börnin alist upp
við siði og venjur lands síns,“ segir
Njörður. Gengið er þannig frá mál-
um við yfirvöld að SPES tekur alla
ábyrgð á börnunum, rétt eins og
foreldri.
Það er ljóst að börnin skipta
þá sem halda utan um SPES miklu
máli og má sjá blik í augum Gbe-
deys þegar hann segir blaðamanni
frá því að þau kalli hann „pepe“ og
fagni honum iðulega ákaft þegar
hann kemur á heimili barnanna.
„Vertu velkominn, pepe!“ segja þau
brosandi.
„Á síðasta ári veiktist ég og
dvaldi um þriggja mánaða skeið í
Frakklandi. Ég saknaði þeirra svo
sárt og þau söknuðu mín líka. Þeg-
ar ég kom til baka sögðu þau:
Pepe, vonandi ertu orðinn hress,“
segir Gbedey og þurrkar tárin sem
brutust fram við upprifjunina. Tár-
in eru líka gleðitár því Gbedey er
maður með stórt hjarta þar sem
rúm er fyrir öll þau börn sem þurfa
á aðstoð að halda.
Börn frá Tógó ættleidd
Gbedey hefur á síðastliðnum
tveimur árum komið að ættleið-
ingum nokkurra barna frá Tógó
hingað til lands og segir hann að
mikið ánægjuefni sé að börn geti
eignast góða fjölskyldu og framtíð.
„Ég hitti þrjú þeirra í gær og þau
voru mjög kát og ljóst að þeim líð-
ur vel. Það er nú það mikilvægasta.
Þau eru búin að læra íslensku og
hafa aðlagast vel,“ segir og Claude
Gbedey hjá SPES. Hvort sem
börnin eru ættleidd eða styrkt af
styrktarforeldrum er markmiðið
alltaf það sama eins og þeir Njörð-
ur og Gbedey hafa útskýrt. Það er
að gefa börnum það sem þau þurfa:
Ást, umhyggju, öryggi, fræðslu og
síðast en ekki síst von um góða
framtíð.
Þeir sem vilja bætast í hóp
styrktarforeldra geta gengið frá
umsókn á síðu SPES, www.spes.is.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 2014
Tógó er ríki í Vestur-Afríku sem
á landamæri að Gana, Benín og
Búrkína Fasó. Tógó öðlaðist
sjálfstæði frá Frakklandi árið
1960 og eru íbúar rúmlega 7,3
milljónir. Franska er opinbert
tungumál í Tógó en einnig eru
þar töluð mál á borð við Ewe,
Mina, Kabye og Dagomba.
Um 40% íbúa eru yngri en
fimmtán ára, eða um þrjár millj-
ónir. Aðeins 3,2% íbúa eru sex-
tíu og fimm ára og eldri, eða
um 136.000 manns. Meðalaldur
karlmanna er 61 ár en kvenna
67 ár. Það kemur því ekki á
óvart að í Tógó sé eftirlaunaald-
urinn frá 55 til 60 ára.
Hver kona fæðir að meðaltali
4,53 börn sem er nokkuð hátt í
samanburði við lönd heimsins
og er númer 28 á lista yfir frjó-
semi í heiminum. Til samanburðar má geta þess að Ísland er í 143.
sæti með 1,88 börn að meðaltali á hverja konu. Barnadauði er til-
tölulega algengur, eða 46,73 á móti hverjum 100.000 fæddum
einstaklingum. Talið er að um 50% barna á aldrinum 5-14 ára stundi
vinnu í Tógó.
40% ÍBÚA YNGRI EN 15 ÁRA
Örlítið um Tógó
Nýstárlegt og glæsilegt útlitið kemur á óvart, en þú verður fyrst verulega hissa þegar þú kemur inn í bílinn og finnur hversu rúmgóður hann er.
Fóta- og höfuðrýmið í þessum fyrsta hlaðbaki sinnar tegundar frá Škoda er nefnilega það mesta sem fyrirfinnst í þessum stærðarflokki bíla.
Skyggða sóllúgan, sem hægt er að fá sem aukabúnað, og stór afturrúðan auka svo enn frekar á frelsistilfinninguna. Þegar við þetta bætast
allar góðkunnu „Simply Clever“ lausnirnar frá Škoda er útkoman bíll sem á engan sinn líka. Sestu inn og njóttu þess að láta fara vel um þig.
Nýr ŠKODA Rapid Spaceback
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · www.skoda.is
5 stjörnur í árekstrar-
prófunum EuroNcap
Eyðsla frá 4,4 l/100 km CO2 frá 114 g/km
114g
4
,4
Nýr ŠKODA Rapid Spaceback kostar aðeins frá:
3.080.000,-
m.v. ŠKODA Rapid Spaceback 1.2TSI, 86 hestöfl, beinskiptur.
SIMPLY CLEVER
UPPLIFÐU
RÝMI