Morgunblaðið - 23.10.2014, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 2014
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
„Við erum bara mjög ánægð með
þetta og þetta er viðurkenning fyrir
starfsmenn bæjarins,“ segir Ás-
gerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri
Seltjarnarnesbæjar, en sveitarfé-
lagið var á dögunum útnefnt
„Draumasveitarfélagið 2013“ af Vís-
bendingu – vikuriti um viðskipti og
efnahagsmál.
Seltjarn-
arnesbær fékk
einkunnina 9,3 en
útreikningar Vís-
bendingar byggj-
ast á rekstr-
artölum úr
ársreikningum
2013.
Seltjarnarnes
var í 9. sæti á
lista Vísbend-
ingar yfir fjárhagslega stöðu sveit-
arfélaganna fyrir árið 2011 en stökk
þess í 1. sæti má m.a. rekja til þess
að útsvarsprósentan á Nesinu hefur
lækkað og stendur nú í 13,66%. Þá
segir Ásgerður lágt skuldahlutfall
og hagstætt veltufjárhlutfall einnig
skipta máli í þessu samhengi.
„Við höfum, með góðu samstarfi
stjórnenda þeirra stofnana sem
bærinn hefur, náð því fram að geta
veitt mjög góða þjónustu á sama
tíma og við höfum getað haft álögur
á íbúa lægri en gengur og gerist,“
segir Ásgerður um góðan árangur
Seltjarnarnesbæjar en hagræðing-
araðgerðirnar undanfarin ár hafi
m.a. falist í því að endurskoða inn-
kaup og aðkeypta vinnu og sameina
leik- og grunnskóla.
Ásgerður segir kannanir hafa
sýnt að íbúar Seltjarnarness, sem
eru um 4.400 talsins, séu ánægðir
með þjónustuna í sveitarfélaginu en
á dagskrá bæjaryfirvalda sé m.a. að
létta undir með fjölskyldufólki. Hún
segir smæð sveitarfélagsins ótví-
rætt hafa sína kosti. „Það eru marg-
ir kostir sem felast í því að vera í
kringum 5.000 eins og okkar sveit-
arfélag er. Það er nálægðin bæði við
íbúa og nálægðin milli stjórnenda.
Þær eru styttri boðleiðirnar, t.d. til
íbúanna varðandi t.d. ákvarð-
anatöku. Það er allt auðveldara,“
segir hún.
Allt í blóma í Grindavík
Það sveitarfélag sem hefur náð
hvað mestum framförum sam-
kvæmt útreikningum Vísbendingar
er Grindavíkurbær, sem stekkur úr
30. sæti 2011 í 4. sæti fyrir árið
2013. „Árið 2011 greiddum við upp
meira og minna allar okkar skuldir
og það spilar þarna væntanlega
stórt hlutverk,“ segir Róbert Ragn-
arsson, bæjarstjóri Grindavíkur, en
þá hafi útsvarið einnig verið lækk-
að.
Róbert segir að ráðist hafi verið í
umtalsverðar hagræðingaraðgerðir
eftir mikla útgjaldaaukningu 2007-
2010. „Það sem við fórum í þá var að
hagræða talsvert mikið hjá okkur
og það var allt undir í því, og á sama
tíma hækkuðum við gjaldskrár á
ýmsa þjónustuþætti og náðum í
kjölfarið betri rekstrarafkomu. Og
2012 var hún mjög góð,“ segir hann.
Grindavíkurbær sparaði m.a. 12
milljónir á árunum 2010-2012 með
því að segja upp aksturssamningum
við starfsmenn en Róbert segir að
mestu hafi skipt vöxtur í atvinnulíf-
inu. „Á sama tíma og við erum að
draga úr útgjöldum þá gengur mjög
vel í sjávarútvegi og ferðaþjónustu
og það fjölgar störfum og laun
hækka. Við höfum ekki verið í þessu
atvinnuleysi eins og önnur sveit-
arfélög á Suðurnesjum,“ segir hann.
Draumur að búa á Seltjarnarnesi
Seltjarnarnes útnefnt „Draumasveitarfélagið“ af vikuritinu Vísbendingu Hafa lækkað útsvarið
og hagrætt með góðum árangri Íbúarnir ánægðir Grindavíkurbær hoppar upp um 26 sæti
Morgunblaðið/Ómar
Útiveran alltaf vinsæl Göngu- og hjólreiðastígarnir á Seltjarnarnesi njóta mikilla vinsælda árið um kring.
Ásgerður
Halldórsdóttir
Forsendur drauma-
sveitarfélagsins 2014*
1. Skattheimtan þarf að vera sem
lægst. Sveitarfélög með útsvars-
hlutfallið 13,66% fá 10 og sveitarfélög
með hlutfallið 14,48% fá núll. Skalinn
er í réttu hlutfalli þar á milli.
2. Breytingar á fjölda íbúa þurfa að
vera hóflegar. Fjölgun á bilinu 1,6 til
3,6% gefur 10 og frávik um 1% frá
þessummörkum lækka einkunnina
um einn heilan.
3. Afkoma sem hlutfall af tekjum á
að vera sem næst 10%, sem gefur
einkunnina 10. Dreginn er frá 1 fyrir
hvert prósentustig sem sveitarfélag
er fyrir neðan 10% hlutfall. Dreginn er
einn þriðji frá 10,0 fyrir hvert
prósentustig yfir 10%.
4. Hlutfall nettóskulda af tekjum sé
sem næst 1,0. Frávik um 0,1 yfir þessu
hlutfalli lækkar einkunnina um 1,0
frá einkunninni 10. Frávik um 0,1 fyrir
neðan þetta hlutfall lækkar hana um
0,2. Ef skuldir eru mjög litlar getur
það bent til þess að sveitarfélagið
hald að sér höndum við framkvæmdir.
Þetta er breyting. Áður var miðað við
frádrátt upp á 0,5.
5. Veltufjárhlutfall sé nálægt 1,0 (sem
gefur 10) þannig að sveitarfélagið hafi
góða lausafjárstöðu en hafi ekki of
mikla peninga í lélegri ávöxtun. Frávik
um 0,1 neðan við hlutfallið gefur 1
í frádrátt. Frávik um 0,1 fyrir ofan
hlutfallið gefur 0,2 í frádrátt. Hlutfall
yfir 2,0 gefur einkunnina 8. Þetta er
breyting frá fyrra ári þegar það hlutfall
gaf 5.
Allir þættirnir gilda jafnt.
*Birt með góðfúslegu leyfi ritstjóra
Vísbendingar.
Einkunnir sveitarfélaganna 2012-2014*
*Um er að ræða 20 efstu af 35 stærstu sveitarfélögum landsins.
Útreikningar miðast við rekstrartölur úr ársreikningum sveitarfélaga 2011-2013.
Eink. 2013 Eink. 2012 Eink. 2011 Meðaltal
Seltjarnarnes
Garðabær
Bláskógabyggð
Grindavíkurbær
Fjallabyggð
Vestmannaeyjar
Snæfellsbær
Húnaþing vestra
Akureyri
Rangárþing ytra
Ölfus
Dalvíkurbyggð
Akranes
Eyjafjarðarsveit
Árborg
Fjarðabyggð
Reykjavík
Rangárþing eystra
Hornafjörður
Ísafjarðarbær
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
9,3
8,7
7,4
7,1
6,9
6,9
6,9
6,9
6,8
6,6
6,5
6,5
6,4
6,4
6,2
6,1
5,9
5,7
5,7
5,5
2
1
12
10
6
7
3
13
14
25
5
11
16
18
20
8
31
19
4
21
7,2
8,8
5,4
5,5
6,3
6,2
7
5,3
5,2
4,1
6,4
5,4
5
4,9
4,8
5,7
3,4
4,8
7
4,5
9
1
24
30
11
10
3
15
2
32
12
6
5
7
16
13
17
23
4
29
5,7
9
3,9
3,7
5,4
5,4
6,8
5,1
7,2
3,4
5,4
6,7
6,7
6,3
5
5,1
5
4,2
6,7
3,7
7,4
8,9
5,6
5,4
6,2
6,2
6,9
5,7
6,4
4,7
6,1
6,2
6,1
5,8
5,3
5,6
4,7
4,9
6,5
4,6
Röð 2014 Röð 2013 Röð 2012 Sveitarfélag
Heimild: Vísbending
Smart föt, fyrir smart skvísur
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
sími 571 5464
Stærðir 38-52
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Opið virka daga 10–18, laugard. kl. 11–16, sunnud. 14–16
Opnun kl. 15, laugardaginn 25. október
Allir velkomnir
sýning á málverkum
Þorsteinn Helgason
Listmuna
uppboð
Erum að taka á móti
verkum á næsta uppboð
Áhugasamir geta
haft samband
í síma 551-0400