Morgunblaðið - 23.10.2014, Page 40
FRÉTTASKÝRING
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Í dag er það orðið opinbert. Sem Ís-
lendingur getur þú, lesandi góður,
hallað þér að næsta Dana, Svía,
Norðmanni eða Finna og sagt: „Við
erum betri en þið í fótbolta.“ Á nýjum
styrkleikalista FIFA, alþjóðaknatt-
spyrnusambandsins, er íslenska
karlalandsliðið nefnilega efst Norð-
urlandaþjóða, eftir stórkostlegt gengi
undanfarin misseri sem kórónað var
með fræknum sigri á Hollandi fyrr í
mánuðinum.
Ef viðmælandi þinn svarar „nej,
men hvordan kan det være muligt?“
eða eitthvað í þá áttina, þá er svarið
ekkert einfalt. Fyrir tveimur og hálfu
ári var Ísland í 131. sæti á styrkleika-
listanum, fyrir neðan Færeyjar. Nú
er liðið í hópi 30 bestu landsliða heims
samkvæmt listanum. Að baki svona
svakalegri uppsveiflu liggja margar
ástæður.
Augljósa svarið er það að við eigum
betri leikmenn í dag. Lars Lagerbäck
og Heimir Hallgrímsson virðast einn-
ig hafa verið hárréttu mennirnir til að
taka við þjálfun liðsins. En af hverju
eigum við betri leikmenn í dag og
hvað er svona gott við Lars og
Heimi? Þarna er talið að ráði mestu
hve öll aðstaða til knattspyrnuiðk-
unar hefur gjörbreyst til hins betra
hér á landi og hve háu menntunar-
stigi þjálfarar yngri flokka hafa náð.
Fánaberar A-landsliðsins í dag, menn
eins og Gylfi Þór Sigurðsson og Kol-
beinn Sigþórsson, eru taldir afrakst-
ur þess, strákar sem hafa vanist því
að ná árangri með félagsliðum og
yngri landsliðum.
Vanir því að ná árangri
„Þessir strákar í A-landsliðinu í
dag, sem er nokkuð ungt landslið,
hafa margir hverjir komist í loka-
keppni EM með U21-landsliðinu og
jafnvel líka U17-landsliðinu. Þeir hafa
lengi verið góðir, fengið mikilvæga
reynslu og sætta sig ekki við neitt
minna en að komast einnig í loka-
keppni með A-landsliðinu,“ sagði Sig-
urður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari og
fyrrverandi atvinnumaður í knatt-
spyrnu. Sigurður Ragnar var
fræðslustjóri KSÍ um árabil og þekk-
ir vel til þess hvernig haldið hefur
verið á spöðunum í knattspyrnu-
hreyfingunni hérlendis.
Ólíkt öðrum Norðurlöndum
„Við erum með annað skipulag á
okkar yngriflokkaþjálfun en tíðkast
hjá öðrum norrænum þjóðum. Þar er
mjög algengt að foreldrar eða aðrir
ómenntaðir sjálfboðaliðar sinni
barna- og jafnvel unglingaþjálfun.
Það er ekki fyrr en á táningsaldri sem
knattspyrnufólk þar nýtur hand-
leiðslu menntaðra þjálfara og oft er
það einfaldlega svolítið seint,“ sagði
Sigurður. „Besti aldurinn fyrir tækni-
þjálfun er 8-12 ára. Þar stöndum við
mjög vel að vígi, sérstaklega stráka-
megin, hvað varðar menntun þjálf-
ara. Við erum með þjálfara sem
kunna fræðin, eru í launaðri vinnu
sem slíkir og margir hverjir auk þess
menntaðir íþróttakennarar. Það er
ofboðslega góð barnaþjálfun á Ís-
landi. Börnin byrja fyrr og æfa oftar
en á öðrum Norðurlöndum. Það er
líka jákvætt að þau prófa flest fleiri
íþróttagreinar, sem veita góðan
grunn,“ sagði Sigurður.
70% með UEFA-B-réttindi
„Það er rosalega hátt hlutfall þjálf-
ara á Íslandi sem hafa tekið þjálf-
aranámskeiðin hjá KSÍ. Það eru tæp-
lega 700 þjálfarar starfandi í
knattspyrnuhreyfingunni á Íslandi og
ég held að núna séu um 70% þeirra
með UEFA-B-réttindi og um 25%
með UEFA-A-réttindi. Þetta er mun
hærra hlutfall en í öðrum löndum,“
bætti hann við. Bestu knattspyrnu-
menn þjóðarinnar hafa eftir gott upp-
eldi hér heima margir haldið snemma
í atvinnumennsku.
„Við sjáum það á landsliðshópnum
í dag að margir þessara leikmanna
hafa farið út án þess að spila leik, eða
alla vega mjög lítið, í Pepsídeildinni.
Það gildir um okkar bestu menn í
dag. Þeir fá sína þjálfun erlendis frá
16-17 ára aldri. Ég held að þetta henti
mjög vel, en það er engin ein formúla
sem hentar til að búa til góðan lands-
liðsmann. Viðar Örn Kjartansson og
Alfreð Finnbogason hafa til dæmis
báðir farið seint út en staðið sig frá-
bærlega, en Gylfi Þór Sigurðsson fór
mjög ungur út og hefur skarað fram
úr,“ sagði Sigurður. Fleira spilar inn í
en góð þjálfun. Öll aðstaða er gjör-
breytt.
Gervigrasið enn mikil-
vægara en hallirnar?
„Frá árinu 2002 hófst þessi knatt-
spyrnuhallavæðing og jafnframt
gervigrasvæðing sem er ekki síður
mikilvæg. Við eigum núna sjö eða
átta hallir í fullri stærð og nokkrar
minni, en það hafa líka verið byggðir
margir gervigrasvellir sem gera okk-
ur kleift að æfa knattspyrnu allt árið.
Áður fyrr var fótbolti ekki heilsárs-
íþrótt. Ég var sjálfur hálft árið í
ræktinni og úti að skokka og svo
kannski í innanhússfótbolta einu sinni
eða tvisvar í viku. Núna er þetta allt
annað og bæði tækni og leikskilningi
leikmanna hefur fleygt fram,“ sagði
Sigurður og það má til sanns vegar
færa. Styrkur Íslands felst ekki í
grjóthörðum varnar- og miðjumönn-
um heldur afburðalunknum leik-
mönnum.
Aldrei fleiri atvinnumenn
„Við eigum mun fleiri góða leik-
menn, eins og sést á því að landslið-
unum okkar gengur betur, og einnig
félagsliðunum í Evrópukeppnum. Við
eigum fleiri atvinnumenn erlendis en
nokkru sinni fyrr, í kringum 90 tals-
ins, og þetta eru allt staðreyndir þrátt
fyrir að iðkendafjöldi hafi ekki aukist
neitt gríðarlega. Við erum bara kom-
in með betri aðstöðu og betri þjálfun
og gerum þannig betur með þá iðk-
endur sem við höfum. Þetta er allt á
uppleið og íslenskur fótbolti alltaf að
vaxa,“ sagði Sigurður.
Auk bættrar aðstöðu og mennt-
unar þjálfara, sem hefur skilað sér í
betri leikmönnum, verður ekki
framhjá því litið að innkoma Lars
Lagerbäcks, hins reynda fyrrverandi
landsliðsþjálfara Svíþjóðar, hefur
breytt miklu. Þeir Heimir Hall-
grímsson virðast ná fullkomlega sam-
an og hafa mótað leikskipulag sem
svínvirkar, auk þess að koma aga á
leikmannahópinn, sem oft virtist
vanta upp á. Leikmenn hafa sjálfir
ítrekað bent á að fagmennskan í allri
umgjörð kringum liðið hafi stór-
batnað.
Lagerbäck deilir ábyrgðinni
„Leikmenn verða fyrst og fremst
betri hjá félagsliðum sínum. Þegar
þeir koma í landsliðsverkefni er mik-
ilvægt að búið sé að leikgreina and-
stæðinginn vel, hugmyndafræðin sé í
lagi, afreksumhverfi, þjálfararnir
hæfir og allir með sín hlutverk á
hreinu. Það hefur tekist einstaklega
vel hjá A-landsliði karla,“ sagði Sig-
urður.
„Þjálfarateymi liðsins er mjög hæft
á sínu sviði. Lars Lagerbäck hefur
verið mikið í umræðunni og ég vil
ekkert taka af honum en það er
kannski einblínt fullmikið á hann.
Heimir Hallgrímsson og Guðmundur
Hreiðarsson [markvarðaþjálfari] eru
líka í þessu teymi og ég veit að þeir
eru mjög mikilvægir. Lars deilir
ábyrgðinni vel og vill að allir komi að
borðinu,“ sagði Sigurður.
Virðumst geta unnið alla
„Þjálfararnir og þeir sem að liðinu
standa eiga allir sinn hluta í þessum
árangri og síðast en ekki síst leik-
mennirnir sem hafa verið frábærir og
fylla mann stolti í hverjum leik. Þeir
eru rosalega metnaðarfullir, spila
stóra rullu í sínum félagsliðum og
standa sig vel. Svo eigum við leik-
menn sem spila kannski ekki á hæsta
stigi fótboltans með sínum félags-
liðum en fúnkera mjög vel í landslið-
inu okkar því allt skipulag í vörn og
sókn er mjög gott og allir leikmenn
agaðir. Það eru þannig gæði og hug-
arfar í hópnum núna að við virðumst
geta unnið hvaða þjóð sem er á góð-
um degi.“
Besta landslið Norðurlandanna
Gervigrasvæðing, hátt menntunarstig þjálfara í öllum flokkum og koma Svíans Lars Lagerbäcks
eru á meðal ástæðna fyrir ævintýralegri uppsveiflu íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu
Morgunblaðið/Golli
Á flugi Með Gylfa Þór Sigurðsson og fyrirliðann Aron Einar Gunnarsson á miðjunni hefur íslenska landsliðið verið
nánast óstöðvandi og flogið upp styrkleikalista FIFA. Þeir voru báðir í U21-landsliði Íslands í lokakeppni EM 2011.
Staða Íslands á heimslista
‘00 ‘05‘01 ‘06 ‘10‘02 ‘07 ‘11‘03 ‘08 ‘12‘04 ‘09 ‘13 ‘14
*Staða miðast við lok hvers árs
1
30
60
90
120
150
**Áætluð staða á lista sem birtist í dag
Ár
131 sæti
27 sæti**
Sæ
ti
40 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 2014
Skjól í amstri dagsins
Smiðjuvegur 9 • 200 Kópavogur • Sími 535 4300 • Netfang axis@axis.is • www.axis.is
EINRÚM Hönnuður: Sturla Már Jónsson Húsgagna og innanhúsarkitekt