Morgunblaðið - 23.10.2014, Qupperneq 57

Morgunblaðið - 23.10.2014, Qupperneq 57
FRÉTTIR 57Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 2014 Jens Garðar Helgason hefur til- kynnt að hann muni bjóða sig fram til formanns í nýjum samtökum í sjávarútvegi á sameiginlegum aðal- fundi Landssambands íslenskra út- vegsmanna og Samtaka fiskivinnslu- stöðva sem haldinn verður á Hilton Nordica föstudaginn 31. október næstkomandi. Fyrir aðalfundinum liggur tillaga um sameiningu sam- takanna. Ef aðalfundir LÍÚ og SF sam- þykkja sameiningu í nýtt félag, þá er félagsmönnum heimilt að bjóða sig fram til formanns eða stjórnar á stofnfundi nýrra samtaka, eða þá til kjörnefndar sem sér um fram- kvæmd kosninga á stofnfundinum, að því er segir á heimasíðum LÍÚ og SF. Jens er fæddur og uppalinn á Eskifirði 1976, stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri og stundaði nám í viðskiptafræði í Há- skóla Íslands 1997-2000. Hann hóf störf hjá Fiskimiðum ehf. á Eski- firði, sem sérhæfir sig í útflutningi á fiskimjöli og lýsi, árið 1999. Jens Garðar tók við starfi framkvæmda- stjóra Fiskimiða árið 2001 og hefur því verið þar við störf í nær 14 ár. Jens Garðar er einnig formaður bæj- arráðs í Fjarðabyggð. Jens Garðar á þrjú börn, Heklu Björk, Vögg og Thor. Sambýliskona hans er Kristín Lilja Eyglóardóttir, læknir í Gautaborg. Býður sig fram til formennsku  Sameiginlegur aðalfundur nýrra samtaka í sjávarútvegi Jens Garðar Helgason Árið 2012 voru tæplega 80% Ís- lendinga á aldr- inum 18-44 ára með allar eigin tennur (28 tenn- ur eða fleiri), en voru rúmlega 50% árið 1990. Tæplega 10% Ís- lendinga 65-79 ára voru með allar eigin tennur árið 2012. Árið 1990 voru hins vegar einungis 2,6% Ís- lendinga í þessum sama aldurshópi með allar eigin tennur. Þetta kemur fram í Talnabrunni, fréttabréfi landlæknis um heilbrigðis- upplýsingar. 26% tannlausir árið 1990 Þar segir ennfremur að á sama tíma og fjölgun hafi orðið í hópi full- orðinna með allar eigin tennur hafi tannlausum fækkað jafnt og þétt. Árið 2012 hafi tæplega 5% Íslend- inga á aldrinum 18-79 ára verið tannlausir en þeir voru tæplega 26% árið 1990. Tennurnar tolla betur í Íslendingum en áður Kristján Þór Júlíusson heilbrigð- isráðherra hyggst fela Sjúkratrygg- ingum Íslands að semja við Land- spítalann um áframhaldandi rekstur ADHD-teymis sem sett var á fót á síðasta ári, eins og fram kemur í til- kynningu frá velferðarráðuneytinu. Fram kom á dögunum að Landspít- alinn hygðist ekki halda starfsemi ADHD-teymis spítalans áfram þar sem ekki hafi verið gert ráð fyrir fjármunum til teymisins í fjárlaga- frumvarpi 2015. Heilbrigðisráðherra sagði í kjölfarið að hann hefði sjálfur talið að gert væri ráð fyrir því í rekstri spítalans án þess að sérstök grein væri gerð fyrir því í fjárlaga- frumvarpinu. Ráðherrann lagði áherslu á að brýnt væri að halda starfsemi teymisins áfram og væri samningar Sjúkratrygginga og spít- alans liður í því. Elín H. Hinriksdóttir, formaður ADHD-samtakanna, tekur undir með ráðherra um mikilvægi teym- isins. Segir hún árangur þess áþreif- anlegan og með greiningu og réttri meðferð aukist lífsgæði fullorðinna einstaklinga til muna og þeir geti tekið virkan þátt í samfélaginu á ný. Hún ítrekar að líta beri á starfsemi teymisins sem skref í átt að betra samfélagi en ekki sem kostnað. Landspítalinn ADHD-teymið starf- ar á geðsviði Landspítalans. Framtíð ADHD- teymis í húfi  Teymið mikilvægt að mati ráðherra Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt 22 ára karlmann í fimm mán- aða skilorðsbundið fangelsi fyrir umferðarlagabrot, fíkniefnalaga- brot og líkamsárás. Þá var honum gert að greiða fórnarlambi sínu hálfa milljón í bætur og máls- kostnað og 240 þúsund krónur í annan sakarkostnað. Maðurinn var sakfelldur fyrir að hafa 28. maí 2013 utandyra við bak- hús í Fálkagötu í Reykjavík slegið karlmann hnefahöggi í andlitið svo hann féll í götuna og hlaut nef- og miðnesbrot, kinnbeinsbrot og áverka á neðanaugntóttartaug. Sá gerði kröfu um 1,2 milljónir króna í skaða- og miskabætur en fékk þriðjung af þeirri upphæð. Maðurinn játaði brot sín fyrir dómi en þrátt fyrir ungan aldur á hann að baki nokkurn sakaferil. Hálf milljón fyrir að berja mann í götuna AKUREYRI Draupnisgötu 5 462 3002 EGILSSTAÐIR Þverklettum 1 471 2002 REYKJAVÍK Skeifunni 5 581 3002 REYKJAVÍK Skútuvogi 12 581 3022 – fyrir kröfuharða ökumenn www.dekkjahollin.is Skoðaðu úrvalið á vefnum okkar: /dekkjahollin Verum örugg á veginum Dekkin skipta öllu máli! Þú færð þau í Dekkjahöllinni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.