Morgunblaðið - 23.10.2014, Qupperneq 77
77
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 2014
kenndi mér þó ekki. Það var mik-
ill skóli að spila þetta verk með
þeim ágæta fiðluleikara. Svo spil-
aði ég þetta verk einu sinni með
Guðnýju Guðmundsdóttur sem er
fráfarandi konsertmeistari Sin-
fóníuhljómsveitar Íslands.
Ég verð að segja að það var
beinlínis dásamlegt að spila þetta
með Guðnýju, sem var kennarinn
minn og samstarfskona til
margra ára. Nú fæ ég að spila
þetta sama verk með nýjum
konsertmeistara.“
Eru aðventutónleikarnir við-
burður hjá ykkur tónlistarmönn-
unum?
„Já, þeir eru alltaf mikill við-
burður, fjölbreyttir og gefandi.“
Hvaða verk eru þér eft-
irminnileg frá aðventutónleikum
undanfarinna ára?
„Í fyrra söng hún Hallveig
Rúnarsdóttir mjög fallega fyrir
okkur aríur, það var í Hörpu. Það
er raunar hrein dásemd að hafa
þessa tónleika í Eldborginni í
Hörpu, miðað við í Háskólabíói.“
Er Dobbel konsert erfitt verk
tæknilega?
„Það er ekki auðvelt. Maður
þarf að hafa mikla snerpu og
hreinleika og í hæga og kaflanum
þarf maður að tengja tónana
mjög fallega saman – á mús-
íkmálinu heitir það: Legato.“
Harpa hefur vinninginn
Ertu með margt á verkefna-
skránni núna?
„Já, ég er til dæmis að fara til
Kanada til að spila Sibelius-
fiðlukonsertinn í Winnepeg á nor-
rænni hátíð og svo er ég búin að
vera með annan fótinn í Kaup-
mannahöfn í haust. Þar hef ég
verið gestakonsertmeistari hjá
Konunglegu dönsku óperunni.“
Er það nýtt hjá þér að spila
þar?
„Nei, ég hef verið þarna viðloð-
andi síðastliðin tvö ár. Kon-
unglegu dönsku óperuhljómsveit-
ina vantaði hjálp, ef svo má
segja. Þetta bara gerðist og hef-
ur gengið vel. Það hefur verið af-
ar lærdómsríkt fyrir mig að geta
gert þetta allt saman. Ég fæ
öðruvísi sjónarhorn á verkefnin.“
Eru Danir þægilegir í sam-
starfi?
„Þeir eru yndislegir, þeir passa
að hafa alltaf góðan vinnuanda.
Þeir reyna að vera léttir og al-
mennilegir, hressir og skemmti-
legir. Þetta er gömul hljómsveit
og þeir kunna þetta.“
Hvernig hús er óperuhúsið
danska að spila í?
„Það er æðislegt að spila í því
en Harpa hefur samt vinninginn,
Eldborg hefur sérstaklega góðan
hljómburð.“
Hvernig gengur að samræma
utanlandsstarfið við verkefnin
hér?
„Það gengur ágætlega. Þetta
er stundum púsluspil. Maður þarf
að vera mjög skipulagður og
púsla þessu vel saman. En ég er
svoddan spennufíkill að mér
finnst þetta gaman. Það hjálpar
líka að vera óbundin af börnum.
Ég á bara lítinn kettling og hann
fer í pössun til systra sinna þeg-
ar ég er erlendis. Systur kett-
lingsins eiga heimili sitt hjá
Bryndísi Gylfadóttur sellóleikara.
Það er mjög sætt að sjá þessi
kattasystkini kúra saman í
kassa.“
Hafa verkefni þín verið að
breytast á undanförnum árum?
„Verkefnin hafa breyst með
komu Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands inn í Hörpu. Þetta er orðið
miklu meira krefjandi starf fyrir
okkur. Tónleikarnir eru stærri og
erfiðari og það mæðir meira á
okkur en gerði áður, finnst mér.
Við erum líka miklu sýnilegri.
Bæði heyrist meira í hljómsveit-
inni en áður og hún sést betur.
Að sumu leyti má segja að ný
hljómsveit hafi fæðst við að flytja
í Hörpu. Við erum svo heppin að
hafa fengið frábæra stjórnendur
og sólista til okkar síðan við kom-
um í Hörpu, því nú vilja þeir
koma til landsins. Við eigum að
standast samanburð við erlendar
hljómsveitir sem eru góðar og við
erum að koma okkur á þann
stað.“
Hafa verkefnin breyst með til-
komu nýrra stjórnenda?
„Nei, ekki svo mikið en kröf-
urnar hafa aukist. Bæði erum við
afskaplega kröfuhörð við okkur
sjálf og svo eru gerðar miklar
kröfur til okkar.“
Vaxið af verkefnunum
Hefur sjálfsmynd tónlistar-
mannanna tekið breytingum?
„Já, ég myndi nú aldeilis segja
það. Hún hefur batnað með aukn-
um kröfum. Ég tel að við höfum
vaxið af verkefnum okkar.“
Er mikið af erlendum hljóð-
færaleikurum í ykkar hópi núna?
„Það eru nokkrir, alls ekki þó
alltof margir. Þegar ég hugsa til
baka, þegar hljómsveitin var að
þróast, þá verð ég að segja að við
værum ekki á þeim stað sem við
erum núna hefðum við ekki feng-
ið þá til samstarfs. Við getum
staðist samanburð við aðrar
hljómsveitir fyllilega og þurfum
ekki lengur að vera með neina
minnimáttarkennd. Það er góð
tilfinning. Og fólk verður að trúa
því sjálft að þetta sé svona –
sumir trúa þessu ekki – en þetta
er staðreynd.
Ég vil taka það fram að það
eru ekki bara útlendingar í Sin-
fóníuhljómsveit Íslands. Ef ég
ber saman hljómsveit Dönsku óp-
erunnar og Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands þá eru ekkert fleiri útlend-
ingar hér hjá okkur en eru í
dönsku hljómsveitinni.“
Og hvernig leggst svo aðventan
í þig?
„Aðventan leggst mjög vel í
mig. Þá verður Danmerkuræv-
intýrið mitt búið í bili og ég ætla
að vera rosalega dugleg að
hreyfa mig. Ég er nýlega byrjuð í
miklu prógrammi sem vinur minn
í Danmörku hefur lagt upp fyrir
mig og hvatt mig til að fylgja. Ég
hef þá trú að ég verði eiturhress
í vetur ef mér tekst að fylgja
þessu æfingaprógrammi. Það er
mjög gott því að það er óneit-
anlega mikið álag að spila sem
konsertmeistari með Sinfón-
íuhljómsveit Íslands, verkefnin
mörg og margvísleg. Það getur
stundum líka verið erfitt að vinna
á svona stórum vinnustað. En við
erum með gott fólk í kringum
okkur sem er að hjálpa okkur að
byggja okkur upp og vera góð við
hvert annað. Það verður gaman
að spila Dobbel konsert Bach
með honum Nicola, sem er frá
Ítalíu. Hann er gull af manni og
við erum að verða hreinir perlu-
vinir.“
– með morgunkaffinu
2014
Veitingahúsið Perlan - Sími: 562 0200 · Fax: 562 0207 - Netfang: perlan@perlan.is - www.perlan.is
Villibráðarhlaðborð Perlunnar er frá 23.
október til 19. nóvember
10.500kr.
Tilboð mánud.-miðvikud.
7.500 kr.
GjafabréfPerlunnar
Góð gjöf viðöll tækifæri!
9.500 kr.
tilboð mánud.-miðvikud
8.500 kr.
Perlunnar er frá 20. nóvember til 30. des
ember.
Hádegistilboð kr. 5.900 föstudagana & lau
gardagana
5. & 6. - 12.& 13. og 19.& 20. desember
Í hádeginu á Þorláksmessu
Skötu og Jólahladbord