Morgunblaðið - 23.10.2014, Blaðsíða 100
100 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 2014
Ökufærni er lykilatriðið
þegar ungmenni hefja akstur.
Hvar fær ungmennið þitt kennslu?
Hluti námsins fer fram í fullkomnum ökuhermi
Áhersla lögð á færni nemenda og öryggi þeirra í umferðinni
Allt kennsluefni innifalið
Ökukennsla www.bilprof.is
Upplýsingar og innritun í síma 567 0300 • Opið 10-17 alla daga.
Hringdu
núna
og bóka
ðu
ökuskól
ann
ÖKUSKÓLINN Í MJÓDD
– yfir 40 ár í fagmennsku.
Þekking og reynsla í fyrrirúmi
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þetta er fyrsta heildarverkið sem
Vinnslan setur upp í leikhúsi,“ segir
Vala Ómarsdóttir leikstjóri um verk-
ið Strengi sem frumsýnt verður í
Tjarnarbíóí í kvöld kl. 19. Bendir hún
á að ólíkt svonefndum Vinnslu-
kvöldum þar sem margir listamenn
vinna að nokkrum ólíkum verkum sé
hér um eitt heildstætt verk að ræða
þótt það sé sýnt í átta ólíkum rým-
um,
„Við bjóðum áhorfendum að
skyggnast bak við grímu leikhússins.
Hægt er m.a. að fara inn í tæknirým-
ið þar sem efniviðurinn er unninn og
tættur í öreindir; búningsherbergið
þar sem leikkonan klæðir sig í bún-
inginn sem aldrei verður tilbúinn;
æfingasalinn sem leyfir tímanum að
vinna með þreki og þrotlausum
tækniæfingum; eldhúsið, þar sem
leikkonan situr með kaffibollann og
þylur upp textann; myndlistarrýmið
þar sem hugmyndin er tekin og unn-
in myndrænt og svítuna þar sem
dramatúrginn hendir fram fræðum
og hugmyndum auk þess sem tón-
listarmenn búa til tónlistarverk sam-
an í sitthvorum staðnum í húsinu. Öll
tengjast rýmin og innihald þeirra
órjúfanlegum böndum,“ segir Vala
og tekur fram að áhorfendur geti
ferðast frjálst milli rýma og upplifað
og tekið þátt í verkinu á eigin for-
sendum og hraða, en verkið tekur
um fjórar klukkustundir í flutningi,
þ.e. frá kl. 19 til 23. „Þetta er leik-
húsverk sett upp eins og myndlist-
arsýning, þannig að hver og einn
áhorfandi upplifir þetta á sinn hátt.
En við mælum með því að áhorf-
endur gefi sér góðan tíma, vegna
þess að því meiri tíma sem ein-
staklingurinn gefur sér í þetta þeim
mun meira nær hann að upplifa.“
Alls taka 24 listamenn úr öllum
listformum þátt í flutningnum,
þeirra á meðal eru allir liðsmenn
Vinnslunnar, sem eru auk Völu þau
María Kjartans sem stýrir myndlist-
arþættinum, Biggi Hilmars sem
stjórnar tónlistinni, Guðmundur Ingi
Þorvaldsson leikari, Harpa Fönn
Sigurjónsdóttir framleiðandi, Arnar
Ingvarsson ljósahönnuður og flytj-
andi og Starri Hauksson barstjóri.
Þess má að lokum geta að aðeins eru
fyrirhugaðar þrjár sýningar á verk-
inu auk frumsýningarinnar í kvöld,
þ.e. 24. og 31. október og loks 1. nóv-
ember. Miðasala fer fram á midi.is
og á tjarnarbio.is.
Hvað er bak við grímuna?
Ólík listform Alls taka 24 listamenn úr öllum listformum þátt í frumflutn-
ingi listahópsins Vinnslunnar á Strengjum í Tjarnarbíói í kvöld.
Vinnslan frumsýnir Strengi í Tjarnarbíói í kvöld kl. 19
Vefur verður spunninn í átta ólíkum rýmum leikhússins
Leturgerð grafíska hönnuðarins
Guðmundar Inga Úlfarssonar, L10,
verður notuð fyrir kynningarefni
kvikmyndahátíðarinnar Sundance í
Bandaríkjunum á næsta ári, að því
er fram kemur á vef Hönnunar-
miðstöðvar. Letrið hannaði Guð-
mundur fyrir afmælisrit listahátíð-
arinnar LungA árið 2010 og hlaut
fyrir það verðlaun FÍT fyrir bestu
leturgerðina. Hönnunarfyrirtækið
Mother sér um kynningarefni
Sundance og lét breyta leturgerð-
inni örlítið.
Stofnandinn Robert Redford stofnaði
Sundance-hátíðina sem haldin er í Utah.
Sundance notar
letur Guðmundar
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Rússneskir kvikmyndadagar hefjast
í Bíó Paradís í dag kl. 18 með sýn-
ingu á Belye
nochi pochtalona
Alekseya Trya-
pitsyna (e. The
Postman’s White
Nights), kvik-
mynd leikstjór-
ans Andreis
Konchalovskiys
sem hlaut fyrir
hana leik-
stjóraverðlaun
kvikmyndahátíð-
arinnar í Feneyjum á þessu ári, Silf-
urljónið. Aðgangur verður ókeypis
að opnunarsýningunni og eru kvik-
myndadagarnir haldnir í samstarfi
við rússneska sendiráðið á Íslandi.
Fimm kvikmyndir verða sýndar á
hátíðinni og segir um opnunarmynd-
ina í tilkynningu að henni megi lýsa
sem „síðkommúnískri nostalgíu með
vodkabragði“. Hinir myndirnar fjór-
ar eru Leviathan eftir leikstjórann
Andrei Zvyagintsev sem er framlag
Rússa til Óskarsverðlaunanna 2015,
Angely Revolucii (e. Angels of Re-
volution) eftir Aleksei Fedorchenko,
Mesyats v derevne (e. Two Women)
eftir Veru Glagoleva og White Rein-
deer Moss eftir Vladimir Tumayev.
Kvikmyndadagarnir standa til og
með 27. október og verða allar
myndirnar sýndar með enskum
texta, að undanskilinni Leviathan
sem verður með íslenskum texta.
Ádeila á spillingu
„Við erum að gera þetta í sam-
starfi við rússneska sendiráðið og
manneskju frá menningarmálaráðu-
neytinu í Moskvu og myndirnar
voru valdar með tilliti til norð-
urslóða, þetta eru svona norð-
urslóðamyndir,“ segir Ragnheiður
Pálsdóttir, starfandi fram-
kvæmdastjóri Bíó Paradísar, um
kvikmyndadagana en hún er mikil
áhugamanneskja um rússneskar
kvikmyndir.
Ragnheiður segir opnunarmynd-
ina og Leviathan vera í öndvegi á
kvikmyndadögunum. Leviathan sé
afar umdeild þar sem hún lýsi spill-
ingu í rússnesku stjórnkerfi. Hún
hafi hlotið mikið lof, m.a. fullt hús
stiga hjá gagnrýnanda breska dag-
blaðsins Guardian sem hafi kallað
hana nýtt rússneskt meistarverk.
Myndin þyki einstaklega vel gerð
og leikin. Í tilkynningu segir að hún
sé byggð á sögunni af Job úr Jobs-
bók Biblíunnar. „Sá varð nokkurs
konar miðdepill valdabaráttu guðs
og djöfulsins og þurfti að þola ólýs-
anlegar raunir áður en yfir lauk.
Slíkt hið sama á við um söguhetju
Leviathan, sem þarf að takast á við
spilltan borgarstjóra sem ásælist
landið hans,“ segir m.a. þar um
myndina.
Um opnunarmyndina segir Ragn-
heiður að leikstjórinn hafi verið lær-
lingur Andreis Tarkovskíjs, eins af
meisturum rússneskrar kvikmynda-
sögu og að henni sé ótrúlega vel
leikstýrt. Leikarar séu allir áhuga-
menn, þorpsbúar á einangraðri eyju
í norðurhluta Rússlands sem er
sögusvið myndarinnar. Fjarlægðin
við Moskvu og nútímann sé til um-
fjöllunar í myndinni, Rússland sé
gríðarstórt land og gæðunum mis-
skipt, milli stóru borganna og jað-
arsins.
Lýsa nútímanum vel
Ragnheiður er spurð hvort hún
fylgist vel með rússneskri kvik-
myndagerð og segist hún fylgjat
nokkuð vel með henni. „Það kemur
náttúrlega mikið af rusli frá Rúss-
landi en inn á milli koma perlur sem
lýsa nútímanum dálítið vel,“ segir
hún. Oft séu þessar kvikmyndaperl-
ur þungar og langar en virkilega vel
gerðar í alla staði og leikstjórar sem
þori að deila á stjórnvöld, líkt og
gert sé í Leviathan, séu í raun að
leggja sig í hættu þar sem tjáning-
arfrelsið sé ekki í hávegum haft í
Rússlandi. „Þeir sem skera sig úr
núna eru að reyna að koma því á
framfæri við umheiminn hvernig líf
venjulegs fólks er í Rússlandi,“ segir
Ragnheiður um rússneskar kvik-
myndir hin síðustu ár.
Frekari upplýsingar um myndir
hátíðarinnar og sýningartíma má
finna á bioparadis.is.
Fimm perlur
frá Rússlandi
Framlag til Óskarsins meðal mynda
á Rússneskum kvikmyndadögum
Ádeila Stilla úr kvikmyndinni Leviathan sem tekur á spillingu og kúgun í Rússlandi.
Ragnheiður
Pálsdóttir