Stígandi - 01.04.1945, Page 40
NOKKRAR SKYRINGAR
Stígancli flytur að þessu sinni þrjár myndir eftir hinn unga teiknara og málara ,
Örlyg Sigurðsson.
Örlygur er sonur hjónanna Halldóru Ólafsdótlur og Sigurðar Guðmundssonar,
skólameistara. Vakti hann snemtna á sér athygli í skóla vegna teiknileikni sinnar, »
og er hann hafði lokið hér menntaskólanámi, hélt hann til Vesturheims til náms í
teikni- og málaralist. Síðastliðinn vctur var í Reykjavík haldin sýning á myndum
eftir Örlyg og fengu þær góðar viðtökur. Seldust flestar þeirra þegar á sýningunni,
og mun það ekki algengt, þegar nýr málari á i hlut. Varð ráðið af dómum skyn-
bærra manna um sýningu þessa, að Örlygur þætti líklegur til afreka í málara- og
teiknilistiuni. Sérstaklega vöktu andlitsmyndir hans athygli, svo og hinar hiimor-
ísku. Um þær farast Kristjáni Eldjárn svo orð í Degi 28. marz s.l.:
„Að efnisvali minna sumar myndirnar á teikningar Guðmundar Thorsteinsson.
l>að eru kímilegar, íslenzkar senur. En húmor Örlygs er allur stórkarlalegri. Hann
hefir ekki cins góðlátlegt gaman af mannkindinni og Guðmundur. Htirnor lians
er oddhvassari, nálgast jafnvel smáskæruhernað stundum, en er þá líklega öllu is-
lenzkari í cðli. En myndirnar af Guddu gömlu og Hofsláka eru þó fyndnar í beztu
merkingu. Þær sýna, að góður málmur er í fyndni Örlygs, þótt hann sé ekki enn
að fullu skírður. Og það er ástæða til að vona, að hann eigi eftir að gera margar
þjóðsagnamyndir, sem mannfagnaður er að.“
Myndirnar, sem hér birtast eru þessar: Gunnar Matthiasson (í eigu Magnúsar
Matthíassonar) Æringinn Hofsláki (í eigu Níelsar Dungal próf.) og Timburmenn í
Tobbu (í eigu Sig. Guðm., skólameistara).
Gunnar Matthíasson er sonur Matthíasar Jochumssonar, skálds. Hann er fæddur
í Odda á Rangárvöllum 8. ág. 1882, cn fór 16 ára gamall til Vesturheims, og er nú
búsettur i Los Angeles, Hann er kvæntur Guðnýju Árnadóttur Sveinssonar.
Br. S.