Læknablaðið - 15.05.2004, Page 69
UMRÆÐA & FRÉTTIR / NÝTT ORLOFSHÚS
iiiini/
Húsið að Skaftárvöllum
er á vel rœktaðri lóð. Að
neðan má sjá eldhús og
borðstofu.
Orlofsnefnd
á Klaustri
kaupir hús
7
Orlofsnefnd Læknafélags íslands festi í lok mars
kaup á nýjum orlofsbústað. Um er að ræða einbýlis-
hús sem stendur við götuna Skaftárvelli í þéttbýlinu á
Kirkjubæjarklaustri.
Húsið er 120 fermetrar að flatarmáli með tvöföld-
um bílskúr sem er tæplega 50 fermetrar að stærð.
Húsið er byggt árið 1982 úr timbri á einni hæð og
skiptist í stofu, borðstofu, fjögur svefnherbergi, bað-
herbergi og eldhús. Ræktuð lóð er umhverfis húsið.
Verðið sem greitt var fyrir eignina er 11,2 milljónir
króna.
Sigurbjörn Björnsson formaður orlofsnefndar LI
sagði í spjalli við Læknablaðið að nefndin hefði um
nokkurt skeið haft augastað á Suð-Austurlandi.
- Fyrir nokkrum árum höfðum við hús á leigu í
Hornafirði en það gaf ekki nógu góða raun. Kirkju-
bæjarklaustur er nær Reykjavík og liggur auk þess vel
við bæði veiðum og hálendisferðum. Skammt frá eru
einhver bestu sjóbirtingsveiðisvæði landsins og stutt
er að fara upp á hálendið og á jökul. sagði hann.
Eins og fram kom hér í Læknablaðinu í haust
stendur nú yfir smíði á sumarhúsi fyrir orlofsnefnd
lækna að Húsafelli og kemst það hús í gagnið í sumar
eins og húsið á Klaustri. Orlofsnefnd er að svipast um
eflir fleiri kostum og hefur einkum í sigtinu að bæta
við heilsárshúsi á Norðurlandi, helst nærri Mývatni.
Er það gert að eindreginni ósk lækna fyrir norðan.
Jafnframt beinast sjónir nefndarmanna að Snæfells-
nesi og Norðurlandi vestra. Loks er verið að íhuga
hvort ástæða væri til að fjölga kostum fyrir félags-
menn í útlöndum og þá ekki endilega yfir hásumarið.
Úthlutun sumarbústaða og annars sem orlofs-
nefndin býður upp á í sumar fór fram í apríl og gekk
vel. 240 umsóknir bárust um 224 kosti og fengu 155,
eða 65% umsækjenda, úthlutað að eigin vali í fyrstu Þröstur
umferð. Haraldsson
Læknablaðið 2004/90 433