Læknablaðið - 15.01.2005, Blaðsíða 7
RITSTJÓRNARGREINAR
Læknablaðið 90 ára
Um þessar mundir er Læknablaðið 90 ára. Á liðnu vori
vaknaði sú hugmynd innan ritstjórnar blaðsins að vert
væri að minnast þessara tímamóta og gefa yfirlit yfir
það sem birst hefur í blaðinu með því að endurbirta
eina grein frá hverjum áratug úr útgáfusögu blaðsins.
Ákveðið var að fá fyrrverandi ritstjórnarmenn til að
velja greinarnar og fylgja þeim úr hlaði með greinar-
gerð um valið eða fjalla um efni greinarinnar í ljósi
nútímaþekkingar í læknisfræði. Nú er þessi hugmynd
orðin að veruleika og komið að lesendum að skoða
hvernig til hefur tekist. Ritstjórnin þakkar hér með
þeim sem tekið hafa að sér að velja greinarnar og
ræða þær. Læknablaðið er afar háð þeim sem í það
skrifa og taka að sér viðlíka verkefni og hér er á ferð
og allt er það gert án þess að það gefi peninga í aðra
hönd. Læknablaðið væri ekki til án þeirra sem í það
hafa skrifað frá upphafi og til þessa dags og helst það í
hendur við að blaðið hefur haft trygga lesendur.
Læknablaðið er blað lækna. Það er að mestu skrif-
að af læknum um læknisfræði og hefur lengst af borist
eingöngu læknum þó dreifing þess hafi orðið miklu
umfangsmeiri á síðustu áratugum og þar með áhrif-
in. Nú er blaðinu meðal annars dreift til alþingis og
fjölmiðla þar sem efni þess hefur oft vakið umræðu.
Það yfirlit sem hér er gefið um það sem birst hefur í
blaðinu í 90 ára sögu þess er um margt athyglisvert og
greinarnar eru af tvennum toga. I fyrsta lagi eru grein-
ar um einstaka sjúkdóma eða sjúkdómaflokka, grein-
ingu þeirra, meðferð, gang og horfur. I öðru lagi eru
greinar um heilbrigðismál íslensku þjóðarinnar, það
sem nú er kallað lýðheilsa. Greinarnar um sjúkdóm-
ana bera því vitni að íslenskir læknar hafa á umræddu
tímabili fylgst vel með í fræðum sínum, höfundarn-
ir kynna nýjungar, hver í sinni sérgrein, fyrir öðrum
læknum með það að markmiði að sem best gagnist
sjúklingunum. Efni þessara greina eiga sér hliðstæð-
ur í erlendum læknatímaritum og Læknablaðið hefur
því ekki staðið eitt að þekkingardreifingu fræðanna.
Læknar sem lögðu sig eftir nýrri þekkingu gátu einnig
lesið um þetta annars staðar og þannig fengið vísbend-
ingar um nýjungar. Þekkingarsvið læknisfræðinnar
er alþjóðlegt og þar hefur Læknablaðið verið þátt-
takandi jafnframt því sem það hefur veitt þeim sem
ekki eru læknislærðir innsýn í fræðilegar nýjungar á
íslensku.
Greinarnar um lýðheilsumálin hafa ekki síður al-
þjóðlega skírskotun auk þess að varða hag og heill
allrar þjóðarinnar. í þessum greinum nota höfundar
faraldsfræðilegar rannsóknaraðferðir nútímans eins
og þar sem best hefur tíðkast í nágrannalöndum
okkar. Fjallað er um algenga sjúkdóma í sögulegu
samhengi og skal hér nefnd grein um berklaveiki en
einnig greinar um leiðir til þess að koma í veg fyrir
kransæðasjúkdóm og um það hvernig lífshættir og
hegðunarmynstur ráða holdafari og þar með heilsu.
Enn skal á það minnt að þessar vönduðu læknisfræði-
legu greinar eru ekki einungis skrifaðar af læknum til
lækna heldur höfða þær ekki síður til almennings og
til stjórnvalda. Lýðheilsumál er oft á tíðum flókin og
hápólítísk og kalla því á nákvæma og vandaða umfjöll-
un og framsetningu þannig að málinu sé lið unnið og
fái sem flesta fylgjendur og stuðningsmenn svo nægi-
legt afl sé til að hrinda fram forvarnaraðgerðum.
Læknablaðið er á íslensku. Mörgum finnst það
öllu skipta að Læknablaðið sé á móðurmálinu. Þeirra
rök eru meðal annars að læknar verði að geta tjá sig
um læknisfræði á íslensku við sjúklinga og að Lækna-
blaðið sé góður æfingavöllur til þess. Aðrir láta sér
fátt um finnast og gætu eins hugsað sér að blaðið væri
á alþjóðlega fræðimálinu, á því máli koma flestar nýj-
ungar fram, án þeirra stöðnum við.
Læknablaðið fylgir stöðluðum reglum alþjóðlegra
læknatímarita, hvað varðar framsetningu og hönn-
un fræðigreina (1, 2). Þar eru einnig fyrirmyndir að
ritrýnisferli og gæðamati á innihaldi greina í Lækna-
blaðinu. Á þeim kröfum og stífu reglum verður í engu
slakað: Þær eru órjúfanlegur hluti þess trúverðugleika
sem læknisfræðin og Læknablaðið njóta. Reglukerfi
þetta, sem er í stöðugri endurskoðun, miðar að því
að leitast sé við að hafa sannar og réttar frásagnir og
að ályktanir byggi á röklegum samanburði og þar er
mannvirðing höfð að leiðarljósi. Þessar reglur hafa
læknatímaritin sjálf sett sér, hvorki stjórnvöld, há-
skólar né læknadeildir hafa komið að gerð þeirra. Þær
eru umgjörð samvinnunnar sem ritstjórn og höfundar
eiga um fræðigreinarnar.
Margur íslenskur læknirinn hefur fyrst reynt sig
á hinum fræðilega ritvelli á síðum Læknablaðsins.
Nánd blaðsins við íslenska lækna er mikil og það
hefur ef til vill lokkað og hvatt til fræðiiðkana. Það
er auðvelt sem ritstjóri að sjá fyrir sér höfunda fræði-
greina, einkum hina yngri, glíma við textagerðina.
Löngu áður hafa þeir velt vöngum yfir skipulagi rann-
sókna sinna og spurt spurninganna, safnað gögnurn,
stillt þeim saman, lagt á þær tölulegt mat og hugleitt
ályktanir.
Aftur þakkir til höfunda, það eruð þið sem gert
hafið blaðið.
Heimildir
1. Uniform requirements for manuscripts submitted to biomedical
journals. Intemational Committee of Medical Journal Editors.
Med Educ 1999; 33: 66-78.
2. www.laeknabladid.is/fragangur/
—
Vilhjálmur
Rafnsson
Höfundur er prófessor í heil-
brigðisfræði við læknadeild
Háskóla íslands og ábyrgðar-
maður Læknablaösins.
Læknablaðið 2005/91 7