Læknablaðið - 15.01.2005, Blaðsíða 108
1 985-1 994 / ÁHÆTTUÞÆTTIR KRANSÆÐASJÚKDÓMA
sóknarinnar og var þá boðið þeim konum sem áttu
sömu fæðingardaga. í annan áfanga var sömu hópum
boðið á ný en einnig þeim sem fæddir voru 2., 5., 8.,
dag hvers mánaðar o.s.frv. (C-hópur). Karlarnir voru
rannsakaðir á árunum 1970-1971, en konurnar í öðr-
um áfanga á árunum 1971-1972. I þriðja áfanganum
1974-1978 var þessum tveimur hópum (B og C) boð-
ið enn á ný og nýjum rannsóknarhópi, hópi A, þeim
sem fæddir voru 3., 6., 9. o.s.frv. bætt við. Loks í fjórða
áfanga var fyrsta hópnum boðið í fjórða sinn og síðan
fjórða hópnum, hópi D, sem aldrei hafði komið áður,
en það voru þeir sem fæddir voru 1., 4., 7. dag hvers
mánaðar o.s.frv. árin 1908, ’09, ’ll, ‘13, T5, ’23, ’25,
Table 1. Participants in the Reykjavík study who were invited and examined in stages i-iV.
Males Invited Examined Response %
Stage 1 1967-'68 2941 2203 (74.9)
Stage II 1970-'71 5589 4058 (72.7)
Stage III 1974-'76 7994 5564 (69.6)
Stage IV 1979-'81 4662 3244 (69.6)
Females Invited Examined Response %
Stage 1 1968-’69 3085 2371 (76.9)
Stage II 1971-72 6011 4184 (69.6)
Stage III 1976-78 5801 3902 (67.3)
Stage IV 1981-'84 4992 3577 (71.7)
'21, ’29, ’30, ’32 og 1933, árin sem í upphafi voru und-
anskilin. Fjórða áfanga karlarannsóknarinnar lauk
1981 en fjórða áfanga kvennarannsóknarinnar 1984.
Alls var 10.263 karlmönnum boðin þátttaka í
rannsókninni. Þar af hafa 8001 komið að minnsta
kosti einu sinni. Mætingarhlutfall meðal karla er því
um 78% (tafla I). Boðið var 11.069 konum og 8468
(76,5%) komu einu sinni eða oftar.
Sérhverju boðsbréfi um þátttöku fylgdi staðlaður
spurningalisti um félagslegar aðstæður, lifnaðarhætti
og heilsufar.
Spurningalistinn hefur áður verið birtur í heild
(7, 8). Sérþjálfaður ritari fór síðan yfir spurningarnar
með hverjum þátttakanda til að tryggja sem áreiðan-
legastar upplýsingar. Ýmsar þessara spurninga lúta
beint að áhættuþáttum kransæðasjúkdóms. ítarlega
var spurt út í reykingavenjur með spurningum sem
flestar voru þýddar úr breskum spurningalista (9).
Figure 1. Sludy plan oftlie
Reykjavík Study sliowing
the number of participants
in each cohort and the years
when the different stages of
the study were carried out.
1 1915-24 1925-34 1935-44 1945-54 1955-64 1965-74 1975-84 1985-94 1 995- 04
Það var Ijúft verk
en ekki létt að velja
bestu greinina í
Læknablaðinu á
árunum 1985-1994.
Það kom skemmti-
lega á óvart hversu
margar mikilvægar
greinar höfðu verið
ritaðar í Læknablað-
ið á þessu tímabili.
í fyrsta tölublaði
74. árg. árið 1988
skrifaði Ólafur heit-
inn Jensson yfirlits-
grein um arfgengt æðamýlildi og heilablæðingu
- rannsóknaryfirlit (1). Þessi grein ásamt grein
Hannesar Blöndal og fleiri í 6. tbl. Læknablaðs-
ins 1989 (2) bera vitni einu glæsilegasta rann-
sóknarverkefni í íslenskri læknisfræði þar sem
íslenskir visindamenn hafa upplýst vefjafræði,
eðli og erfðafræði arfgengra heilablæðinga á
íslandi.
í 3. tbl. 78. árg. árið 1992 fjalla María Sigur-
jónsdóttir og samstarfsmenn (3) um helicobact-
er pylori í magaslímhúð og í 4. tbl. 81. árg. árið
1994 fylgja Einar Oddsson og félagar þessu ef-
tir með grein (4) um meðhöndlun á helicobacter
pylori sýkingum hjá sjúklingum með meltingar-
ónot. Þessar greinar gera góða grein fyrir þeirri
byltingu á skilningi manna á meltingarfærasjúk-
dómum sem fólst í uppgötvun helicobacter
sýkinga og áhrifa þeirra í meltingarvegi. Álíka
frumkvöðulsstarf kemur fram í grein Katrínar
Rutar Sigurðardóttur, Gunnars Sigurðssonar og
Jóns Inga Jósafatssonar í 3. tbl. 81. árg. árið
1994 (5) þegar þau fjalla um beinþéttnimælingar
í framhandlegg íslenskra kvenna. Enn á ný flytur
Læknablaðið íslenskum læknum það nýjasta
í læknisfræðilegum rannsóknum og segir frá
frumlegum og mikilvægum íslenskum læknis-
fræðirannsóknum.
Að þessum greinum og öllum öðrum ólöst-
uðum taldist besta grein áranna 1985-1994 í
Læknablaðinu vera grein Guðmundar Þorg-
eirssonar, Davíðs Davíðssonar, Helga Sigvald-
asonar og Nikulásar Sigfússonar sem birtist
í 7. tbl. 78. árg. árið 1992 (6): „Áhættuþættir
kransæðasjúkdóms meðal karla og kvenna á
íslandi. Niðurstöður úr hóprannsókn Hjarta-
verndar 1967-1985“. Hjartaverndarverkefnið er
eitt mikilvægasta og metnaðarfyllsta rannsókn-
arverkefni sem ráðist hefur verið í á íslandi.
Metnaður, framsýni og kraftur frumkvöðlanna
verður seint fullmetinn, bæði vísindamannanna
og annarra frumkvöðla sem áttu stóran þátt i að
tryggja verkefninu fjármagn og aðstöðu. Eins
og gjarnan er með viðamikil rannsóknaverkefni
þá leið langur tími frá því að fyrst var sáð þar til
að uppskeru kom. Grein Guðmundar Þorgeirs-
sonar og félaga er hluti af uppskerunni, eins
konar fyrsti sláttur og segir frá dánartíðni, dán-
arorsökum og helstu áhættuþáttum hjá rúmlega
8000 körlum og heldur stærri hópi kvenna.
Þessi umfangsmikla faraldsfræðilega rannsókn
hefur lagt grunn að margs konar rannsóknum á
hjartasjúkdómum á íslandi, þar á meðal á erfða-
fræði þeirra og um leið byggt upþ Hjartavernd
sem öfluga islenska rannsóknastofnun. Það er
ánægjulegt að sjá hve vel Læknablaðið greinir
frá þessari þróun og hversu vel lestur Lækna-
blaðsins lýsir því hvað er að gerast í íslenskum
læknisfræðirannsóknum á hverjum tima.
Heimildir
1. Jensson Ó. Arfgengt æðamýlildi og heilablæðing
- rannsóknaryfirlit. Læknablaðið 1988; 74:9-16.
2. Blöndal H, Guömundsson G, Benedikz E, Jóhann-
esson G. Arfgeng heilablæðing 1. Vitglöp við cyst-
atin C mýlildi. Læknablaðið 1989; 75 :197-201.
3. Sigurjónsdóttir M, Árnason A, Jóhannsson JH,
Þjóðleifsson B, Oddsson E, Guðjónsson H. et al.
Rannsókn í tengslum Helicobacter pylori í maga-
slímhúð við vcfjaflokka og magabólgur. Lækna-
blaðið 1992; 78:99-105.
4. Oddsson E, Guðjónsson H. Björnsson S, Gunn-
laugsson Ó, Theodórs Á, Gormsen M, et al. Upp-
ræting á helicobacter pylori sýkingu hjá sjúklingum
með mellingarónot - Langtímaáhrif á einkenni.
Læknablaðið 1994; 80:127-31.
5. Sigurðardóttir KR, Sigurðsson G, Jósafatsson
JI. Bcinþéttnimælingar í framhandlegg íslenskra
kvenna. Læknablaðið 1994; 80:91-8.
6. Þorgeirsson G, Davíðsson D, Sigvaldason H. Sig-
fússon N. Áhættuþættir kransæðasjúkdóms meðal
karla og kvenna á íslandi. Niðurstöður úr hóprann-
sókn Hjartaverndar 1967-1985. Læknablaðið 1992;
78: 267-76.
108 Læknablaðið 2005/91