Læknablaðið - 15.01.2005, Blaðsíða 31
1 935-1 944 / HEILSUVERNDARSTARFSEMI
Heilsuverndarstarfsemi
og skipulag heilbrigðismála
Erindi flutt í L.R. 10. janúar 1939
Læknablaðiö 1939; 25: 17-25
Júlíus
Sigurjónsson
1907-1988
Á fundi hér í félaginu síðastliðinn vetur hélt próf.
Guðm. Thoroddsen snjallt erindi um framtíðarskipu-
lag heilbrigðismála. Urðu allmiklar umræður um til-
lögur hans sem flestir ræðumanna töldu mjög merkar,
og virtust yfirleitt allir á einu máli um það að fyllilega
væri tímabært að tala unt skipulagsbreytingar eða nýtt
skipulag í þessum efnum þótt að sjálfsögðu gætu verið
skiptar skoðanir um það hverjar leiðir skyldi þar fara.
Þá heyrðust og margar raddir um það að ekki væri
nóg að skipuleggja alla lækningastarfsemi hvað launa-
kjör og lækningastarfsemi snerti, heldur þyrfti að gera
grundvallarbreytingu á starfsviði læknanna, og þá
einkum embættislæknanna, þannig að aðaláherslan
væri lögð á „preventive medicin" í stað þess að ein-
blína á lækningastarfsemi í þrengri merkingu.
Ég er algerlega sammála um þetta, en af þessu
leiðir að áður en við förum að tala um ákveðið fyrir-
komulag í þessum efnum verðum við að gera okkur
grein fyrir meginþáttum þeirrar starfsemi sem við
ætlumst til að verði framkvæmd, gera að nokkru
leyti starfsáætlun í stórum dráttum, en byggja síðan
upp viðeigandi skipulag er hafi það eina markmið að
greiða fyrir og styðja að framkvæmdum starfsáætlun-
arinnar á sem hagkvæmastan hátt. Skipulagið á hér
sem annarsstaðar að vera til vegna starfseminnar og
mótast af henni.
Ég mun nú ganga út frá þeim forsendum að ef þörf
sé á endurbættri skipulagningu heilbrigðismálanna sé
það aðallega til þess að styðja að aukinni starfsemi
á sviði heilsuverndarinnar, og mun ég því fyrst gera
grein fyrir því í stórum dráttum hvað ég á við með
heilsuverndarstarfsemi og hvernig hún sé framkvæm-
anleg, en síðan minnast á helstu atriði viðvíkjandi
skipulagningu slíkrar starfsemi.
Ég sá það að vísu fljótlega að það er að færast of
mikið í fang að ætla sér að gera þessu hvorutveggja
góð skil í einu stuttu erindi, enda mun ég aðeins stikla
á því stærsta án þess að koma með ákveðnar tillögur
í einstökum atriðum; og er ætlunin því aðallega sú að
vekja menn til umhugsunar um þessi mál hvern og
einn, og væri æskilegt að sem flestir vildu leggja eitt-
hvað til málanna svo að sem flest viðhorf komi í ljós.
1915-24 1925-34 1935-44 1945-54 1955-64 1965-74 1975-84 1985-94 1995- m
GreinaskrifíLækna-
blaðiðáþessutíma-
bili sem ber hvað
hæst fjalla um þá
þróun er framund-
an var í heilbrigðis-
málum íslendinga. I
upphafi tímabilsins
er berklaveikin ein
helsta dánarorsök
hér á landi og lagði
ekki síst að velli
fólk í blóma lífsins.
Árið 1935 var Sig-
urður Sigurðsson
skipaður berkla-
yfirlæknir og tók við stjórn þeirrar baráttu sem
lauk með því að berklum var að mestu útrýmt í
landinu. Umræður um þá baráttu og þróun heil-
brigðismála í heild áttu ríkan sess á aðalfundum
L.í. og þá ekki síst árið 1938. Þeim umræðum
eru gerð góð skil á síðum Læknablaðsins.
Kemur þar glöggt fram hve læknar stóðu þétt
að baki berklayfirlæknis og liðsmönnum hans.
Enda þótt baráttuna við berklaveiki beri hátt
á þessum árum er þó helst ein grein sem upp
úr stendur um þetta efni en það er bréf berkla-
yfirlæknis til heilbrigðisyfirvalda um þörfina á
þerklavarnarstöðvum til greiningar berklaveiki
áfrumstigi.
Ýmsir yngri læknar, við framhaldsnám eða
nýkomnir heim frá námi, setja svip á greina-
skrif í blaðið, gjarnan með yfirlitsgreinum eða
niðurstöðum eigin rannsókna. Hinir eldri skýra
oft frá dýrmætri reynslu sinni í starfi eða fjalla
um málefni læknastéttarinnar. Einnig bregður
fyrir harðorðum ritdeilum og stýrir þá Vilmundur
Jónsson landlæknir gjarnan penna af fimi gegn
óvægnum starfsbræðrum sínum.
Sá sem reynir að fara af gagnrýni yfir greinar
frá þessum tíma verður að varast að falla í þá
gryfju að finnast þær lítilsverðar og bera vott
fákunnáttu séu þær bornar saman við lækn-
isþekkingu nútímans. Ailar eru þær framlag til
þróunarinnar og ber aö meta sem slíkar. Það
þarf ekki að fara 60 ár aftur í tímann til að finna
vitneskju sem nú telst úrelt.
Meðal góðra greina sem birtust í blaðinu á
þessum áratug má nefna: Ungbarnadauðinn á
íslandi síðustu 100 árin eftir Júlíus Sigurjóns-
son, 1940; 26: 97-108. Um mótefni gegn lif-
andi vefjafrumum eftir Björn Sigurðsson, 1940;
26:129-38. Um diabetes eftir Valtý Albertsson,
1941;27: 97-126.
Ég hef þó valið grein eftir Júlíus Sigurjóns-
son: Heilsuverndarstarfsemi og skipulag heil-
brigðismála sem fulltrúa þeirrar umræðu um
heilbrigðismál er fram fór á þessu tímabili. Eins
og ýmsar greinar aðrar er hún upþrunalega flutt
sem erindi á fundi í Læknafélagi Reykjavíkur
10. janúar 1939 en birt í Læknablaðinu 1939;
25: 17-25.
Júlíus sér fyrir sér að landlæknir haldi styrkri
hendi um alla meginþætti heilsuverndarstarf-
seminnar. Enda þótt lögð sé áhersla á skyldur
héraðslækna til að sinna hinum margþættu
áherslum heilbrigðismála er drepið á þróun
heilsuverndarstöðva sem þá átti enn langan veg
fyrir höndum að heilsugæslustöðvum nútímans.
Greinin stendur annars fyllilega fyrir sínu og
best að lesa hana til að dæma um hve vel hún
hafi staðist tímans tönn.
Júlíus Sigurjónsson fæddist 1907 og lést
1988. Hann lauk læknaprófi frá HÍ1931. Hann
lagði stund á framhaldsnám í heilbrigðisfræðum
og meinafræði. Er heim kom hóf hann störf
á Rannsóknastofu Háskólans í meinafræði en
varð forstöðumaður Matvælaeftirlits ríkisins
1937-1942. Eftir það var hann ráðunautur land-
læknis um heilbrigðismál og forstöðumaður
Rannsóknastofu í heilbrigðisfræði. Frá 1934-
1963 var hann alloft staðgengill prófessorsins
í meinafræði. Árið 1937 hóf hann að kenna
heilbrigðisfræði við HÍ en var prófessor í þeim
fræðum 1945-1975. Doktorsritgerð varði hann
við HÍ1940 og var heiti hennar Studies on the
human thyroid in lceland. Eftir hann liggur fjöldi
ritverka sem birtust hér á landi og ytra.
Páll Asmundsson
1934
Læknablaðið 2005/91 31