Læknablaðið - 15.01.2005, Blaðsíða 88
Table VII. Results of tuberculin tests on children 7-13 years of age in the entire country, by age and seiected five-year periods of tests 1931-1970.
Age (years) Percentage tested of total population in the 7-13 year
7 8 9 10 11 12 13 Total 7-13 years
Year Percentage positive percentage positive age group
1931 21.3 21.0 26.4 33.6 36.5 37.2 46.5 32.4 12.7
1935 15.7 20.9 21.4 23.4 28.6 30.9 34.2 26.1 43.1
1940 7.5 12.6 12.3 15.8 21.6 21.6 21.8 16.1 33.5
1945 5.8 8.2 8.0 8.5 10.8 12.0 16.1 10.1 75.0
1950 5.2 6.4 8.1 9.4 10.0 13.4 18.1 9.5 70.2
1955 3.4 3.9 4.1 5.0 6.0 7.8 8.7 5.3 67.4
1960 1.6 2.3 2.6 2.7 3.3 3.4 4.1 2.8 71.8
1965 0.6 1.2 1.4 1.6 1.9 2.2 2.6 1.7 84.0
1970 0.2 0.4 0.6 0.7 0.7 1.1 1.1 0.7 84.8
berklaprófið og næst því eigi nema nokkur hluti hinna
jákvæðu. Ennfremur hefur árangur berklaprófsins í
mörgum tilfellum verið dæmdur of snemma (eftir 24
klst. í stað 72). Pá eru eigi greinileg mörk sett hvað
talið sé jákvæð og neikvæð svörun (mælt í mm) og
ekki getið hvers konar tuberkulin hafi verið notað til
rannsóknanna. Allt þetta gefur rannsóknunum minna
gildi en ella. En metnar með þessum fyrirvara gefa
þær þó engu að síður nokkra hugmynd um berklasmit-
un áðurgreindra héraða. í ritgjörðum sínum gerir
héraðslæknirinn ennfremur gleggri grein fyrir berkla-
sjúklingafjölda í héruðunum en hægt hefði verið að
hafa úr opinberum skýrslum. Virðist gangur og út-
breiðsla veikinnar rakin í héruðum þessum nokkurn
veginn eftir því sem föng voru á.
Heilbrigðisstjórnin stofnaði tvívegis til sérstakra
rannsókna í læknishéruðum þar sem mikil brögð voru
að berklaveiki. Par voru framkvæmd berklapróf.
(Húsavík 1932 (58), Raufarhöfn 1934 (109).)
Eftir 1930 fjölgar einnig þeim læknum sem fram-
kvæma berklapróf í héruðum sínum en sem fyrr ná
þessar rannsóknir svo að segja eingöngu til barna á
aldrinum 7-13 ára. Flestir læknanna munu ávallt hafa
notað Pirquets-cutan-próf en eigi percutan eða intra-
cutan-próf. Árið 1935 sendi heilbrigðisstjórnin (berkla-
yfirlæknir) í fyrsta sinn öllum héraðslæknum sams
konar tuberkulin til rannsóknanna ásamt glöggum fyr-
irmælum um hvernig þær skyldu framkvæmdar. Hafa
þeir síðan einu sinni á hverju ári fengið tuberkulin á
þennan hátt ef það hefur verið fáanlegt. Tuberkulinið
sem notað var á árunum 1935-40 var tuberkulináburð-
ur frá Serumstofnuninni í Kaupmannahöfn til húðprófs
(percutanprófs ad. mod. Moro) og fyrirmælum þeirrar
stofnunar um notkun áburðarins, svo og hvernig dæma
bæri rannsóknina, fylgt sem nákvæmast. í fjölda vafatil-
fella mun rannsóknin hafa verið endurtekin, sumpart
með sams konar prófi eða cutanprófi (Pirquetsprófi).
Eftir 1940 var einnig notað percutanpróf (heftiplást-
ursaðferð ad. mod. Volmer) þar eð hið fyrra efni var
þá ófáanlegt sökum ófriðarins.
Á töflu 7 og mynd 15 sést árangur þessa berkla-
prófs á börnum á aldursskeiðinu 7-13 ára með fimm
ára bilum á 40 ára tímabilinu 1931-70 og nær það til
alls landsins. Er ljóst að þessar rannsóknir verða æ
tíðari eftir 1930 og ná þegar til um 13% barna í þess-
um aldursflokkum á árinu 1931. Árið 1935 taka þær
mikið stökk við hvatningu berklayfirlæknis og ná þá
til yfir 40% barna í hinunr greindu aldursflokkum.
Auk þess verður árangur rannsóknanna eftir þetta
mun öruggari þar sem nú er notað sama efni og sama
aðferð við framkvæmd prófanna um allt landið. Enn-
fremur senda nú 36 af 49 læknishéruðum landlækni
árangur berklaprófanna á þar til gerðum eyðublöðum
svo að fullt samræmi fékkst einnig á mati prófanna. Á
næstu árum náðu rannsóknir þessar til meira en helm-
ings barnanna í hinum greindu aldursflokkum (árin
1938 og 1939) en lækka strax árið 1940 er samgöngur
stöðvast við Danmörku vegna ófriðarins og eru það
ár aðeins 33,5% þessara aldursflokka prófaðir. Seint
á því ári tókst þó að útvega tuberkulin frá Banda-
ríkjum Norður-Ameríku (Volmerspróf) sem talið var
svara til þess að hér hafði áður verið notað og var það
notað til ófriðarloka 1945. Þá höfðu berklaprófsrann-
sóknirnar þegar náð til 75% barna í fyrrgreindum
aldursflokkum og nú síðustu áratugi hafa þær kom-
ist yfir 80%. Fyrst eftir að berklaprófin voru hafin og
rannsóknirnar náðu aðeins til fárra héraða verður að
gera ráð fyrir því að yfirleitt hafi þéttbýlli svæði lands-
ins verið rannsökuð þar sem héraðslæknarnir sátu.
I’ar sem berklasmitun þjóðarinnar hefur verið meiri
í þéttbýlinu má gera ráð fyrir að fyrstu árin, meðan
þátttaka var eigi almenn, hafi hundraðstala jákvæðra
verið nokkru hærri en svaraði til raunverulegs með-
altals smitunar þessara aldursflokka meðal þjóðar-
innar allrar. Gæti hin hraða lækkun smitunarinnar á
40 ára tímabili því sem hér um ræðir, úr um 30% og
niður í um Vi%, því verið raunverulega nokkru minni
en tölurnar benda til (samanber töflu 7). Pá verður
ávallt að meta þessar rannsóknir með þeim fyrirvara
að hér er um að ræða eins konar samrannsóknir, það
er að þær eru ekki framkvæmdar af mörgum læknum
og fram til 1935 án sérstakra fyrirmæla og þá venju-
88 Læknablaðið 2005/91