Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.2005, Page 25

Læknablaðið - 15.01.2005, Page 25
1925-1934 / GLÆPIR OG GEÐVEIKI brenglaðir að óhugsandi virtist að þeir gætu aðlagast kröfum nútímaþjóðfélags, 12% voru haldnir ákveðn- um geðsjúkdómi. Loks hefir Caldwell 1929 gert rannsóknir á and- legum þroska - gáfnafari - 492 drengja, að meðaltali 14 ára, og 252 stúlkna í Wisconsin sem gerst höfðu sek um glæpi. - Gáfnafarið er oft gefið upp í gáfna- farskvótanum en það er hlutfallið á milli gáfnafars- aldursins og almanaksaldursins, - Gk = Ga/Aa. Ef t.d. 10 ára unglingur aðeins leysir þau gáfnapróf sem svara til 6 ára þá er Gk = 6/10 = 60%, eða 60 eins og það er stytt venjulega. Gáfnafarskvótinn er talinn haldast óbreyttur alla ævi, frá 4-5 ára aldri. Kvóti á milli 86 og 105 er tal- inn normal, undir 86 fyrir neðan meðalgáfur, yfir 105 meir en meðalgáfur. Meðal barna upp og niður voru 11,2 undir meðal, 349 yfir meðalgáfum; meðal krim- inellu barnanna voru 64,9 undir en aðeins 1,6% yfir meðaltalinu. Nýlega hefir austurrískur læknir, próf. Michel, birt mjög nákvæmar rannsóknir á nokkrum hundruðum vana-glœpamanna. 83% þeirra höfðu meiri eða minni einkenni geðveiki eða geðveilu. Nokkuð sama fann áður próf. Reiss í Ludwigsberg, 88%. Auk almenns andlegs vanþroska ber einkum á misvægi í tilfinninga- lífi þessara manna. Orsakir afbrotanna mátti að heita alltaf rekja til „meðfæddra“ eiginleika hjá mönnum þessum. Hjá 11% virtist um ættgenga andlega veilu að ræða, oft voru heilar fjölskyldur krimínellar og þær eru vanalegar stórar. Vana-glæpamennirnir áttu að meðaltali 4 systkini hver. Ökonomískar kringumstæð- ur foreldranna vanalega góðar en afleitt fjölskyldulíf vegna geðveilu foreldranna og einkum alkóhólisma föðurins (í 40%). 20% = 5. hver þessara manna hafði orðið brotlegur við hegningarlögin þegar á barns- eða uppvaxtarárunum. Allskonar eiturnotkun er mjög al- geng með vana-glæpamönnum, fyrst og fremst óhóf- leg tóbaksnautn, alkóhólismi (50%), einnig morfín- og kókaínnotkun. Oftast eru þeir hypersexuell og oft sexuelt abnorm á einn hátt eður annan. Rannsóknir þessar benda til þess að vana-glœpa- menn séu að heita má allir eitthvað psykiskt abnorm- ir. Eins og ég tók fram þá er ekki til neinn sérstakur geð- sjúkdómur sem glæpsemin sé aðaleinkennið upp á. Og heldur ekki er til nein sérstök manntegund sem glæpsemin sé sérkennileg fyrir. Lombrosos L'huomo delinqvente er að geðveikralækna dómi ekki til í hinni upprunalegu meiningu Lombrosos þó að rit hans vafalaust eigi rót sína í raunveruleika eins og ég síðar mun koma að. Hið einasta krimínella sérkenni sem flestir víst viðurkenna að sé til er hið krimínella augnaráð sem mér vitanlega engum hefir þó ennþá tekist að lýsa en sem mjög æfðir spesíaldómarar og mjög æfðir réttarlæknar telja sig þekkja með vissu. Hvaða glæpi fremja geðveikir einkum? Skýrslum um þetta virðist bera nokkuð vel saman frá Norðurlöndunum og Þýskalandi. Ég tek því sem dæmi skýrslu sem mér er vel kunn af vissum ástæð- um. 1212 menn sem 1905-26 höfðu verið lagðir á VI. deild á Kommunehospitalet í Kaupmannahöfn, ob- servationis causa, voru langflestir, 745, þar vegna auðgunarbrota, 233 vegna skírlífisbrota í víðustu merkingu, 122 vegna ofbeldisverka. Aðrir glæpir voru miklu sjaldgæfari (Wimmer). Auðgunarglœpirnir eru vitanlega langalgengastir eins og í öllum krimínalstatistíkum. Andleg afbrigði þeirra er þá höfðu framið var fávitaháttur á ýmsum stigum í 208 tilf. og svonefnd degeneratio psycho- pathia, - eða andleg brenglun, án þess að um sérstak- an geðsjúkdóm sé að ræða - í 243 tilf., þ.e.a.s. sumpart menn sem fyrir skynsemisskort eða aðra vöntun veitir erfitt að komast heiðarlega í gegnum lífið og sumpart menn sem beint eru háðir asósíal og amórölskum hvötum og tilhneigingum að mjög miklu leyti. Organ- iskir heilasjúkdómar og alkóhól sem á líkan en máski vægari hátt brýtur niður andlegar hömlur manna, leggja drjúgan skerf til andlegs afbrigðiástands sem verður valdandi margra þessara glæpa. Annar aðalflokkurinn voru allskonar skírlífis- brot, 213 voru í honum; var aðallega um 3 teg. andl. abnormitets að ræða: fávitaháttur (60), degen. psycho- pathia (70) og sljóvgaðir (43), aðallega fyrir elli sakir. Þriðji aðalflokkurinn er ofbeldisverk, 122 afbrot. Er hér oftast um degen. psychop. og fávitahátt eða alkóhólismus að ræða, sjaldnar nokkuð um geðsjúk- dóminn paranoia, melancholi, flogaveiki o.fl. - Di Tullio sem ég áðan minntist á hefir haft tækifæri til þess að rannsaka 400 morðingja. Hann álítur að 373 þeirra hafi verið psychisk abnorm með einu móti eða öðru. 137 höfðu epilepsi, 175 „neurastheni", 45 degen. psychop. Kinberg álítur morðingja allt að 200 sinnum oftar geðveika en heilbrigða. M.ö.o.: Vissir glœpir hljóta mjög að vekja grun um geðveiki hjá þeim er þá fremja. En það eru einkum öll hryðjuverk, morð, ikveikjur og aðrar skemmdir, mis- þyrmingar og kynferðisglœpir sem hér koma til greina. Alveg sérkennileg einkenni fyrir afbrot geðveikra eru ekki til. Þó getur eins og ég minntist á tegund glœpsins vakið grun um geðveiki; ennfremur getur það hvernig liann er framinn leitt líkur að því að um geðveiki sé að ræða, og loks það gagnvart hverjum glæpurinn er framinn. Sumir geðveikir, t.d. paranoia-sjúklingar og sjúkl. rneð degen. psychopathia, geta verið afar útspekú- leraðir í glæpum sínum eins og öðrum gerðum; fá- vitar eru oft einnig talsvert útsmognir. Oftar eru þó glæpir geðveikra frekar einskonar skyndibrögð, óundirbúnir, illa eða rang-hugsaðir, klaufalega eða Læknablaðið 2005/91 25
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.