Læknablaðið - 15.01.2005, Qupperneq 38
Vóstar-R
Vóstar-R forðatöflur
Hver foröatafla inniheldur: Diclofenacum INN,
natríumsalt, 75 mg eða 100 mg.
Ábendingar: Gigtarsjúkdómar, þar með taldir iktsýki (arthritis rheumatoides),
hiygggigt (spondylitis ankylopoetica), slitgigt og vöðvagigt. Verkir. Þvagsýrugigt.
Skammtar og lyfjagjöf: Skammtastaerðir handa fullorðnum: Venjulegur
skammtur er ein forðatafla 75 mg eða 100 mg á dag, með mat. Skammtastærðir
handa börnum: Þetta lyfjaform er ekki ætlað börnum. Frábendingar: Sár í
maga eða skeifugörn. Lyfið má ekki gefa sjúklingum sem fá astma, nefrennsli
eða ofsakláða af acetýlsalicýlsýru eða öðrum skyldum lyfjum. Skorpulifur.
Alvarleg hjartabilun og nýrnasjúkdómur. Ofnæmi fyrir innihaldsefnum lyfsins.
Varnaðarorð og varúðarreglur: Varúðar skal gæta hjá sjúklingum með colitis
ulcerosa, Crohns-sjúkdóm, truflaða blóðmyndun, blæðingar-tilhneigingu eða
hjartabilun. Enn fremur skal gæta varúðar við gjöf lyfsins ef sjúklingar eru með
skerta nýrna- eða lifrarstarfsemi (t.d. aldraðir), taka segavarnarlyf, þvagræsilyf
(blóðkalíum) eða lyf við sykursýki. Við langtlmameðferð þarf að fylgjast með
lifrarstarfsemi og blóðhag. Porfyria. Milliverkanir: Lyfið virðist hvorki hafa áhrif
á lyfjahvörf segavarnarlyfja né lyfja við sykursýki, en rétt er að sýna aðgát ef
slik lyf og díklófenak eru gefin samtímis, vegna mikillar próteinbindingar í
blóði. Blóðþéttni lltíums og dígoxíns hækkar ef díklófenak er gefið samtímis.
Háskammta metótrexatgjöf samtlmis gjöf díklófenaks getur valdið alvarlegum
eiturverkunum vegna minnkaðs útskilnaðar á metótrexati. Meðganga oq
brjostagjöf: Lyf, sem hindra prostaglandínframleiðslu geta haft ýmis áhrif á
fóstur, svo sem leitt til háþrýstings í lungnablóðrás og öndunarerfiðleika eftir
fæðingu. Þau geta einnig aukið blæðingarhættu vegna áhrifa á blóðflögur oq
valdið nýrnaskemmdum sem leiða til skertrar þvagframleiðslu ef'ir fæðinqu
og minnkun á legvatni. Lyf af þessum flokki ber þvi að forðast á meðqönqu
en einkum er mikilvægt að nota lyfið ekki á síðasta þriðjungi meðgönqu oq
alls ekki siðustu daga fyrir fæðingu. Lyfið skilst út í brjóstamjólk en ólikleqt
er að lyfjaáhrifa gæti hjá barni á brjósti við venjulega skömmtun lyfsins Athuqið-
Eftir inntöku 100 mg lyfsins hjá konum með barn á brjósti fannst lyfið ekki í
mjólk (greiningarmörk: 10 ng/ml). Akstur: Ef höfuðverkur, þreyta eða svimi
gera vart við sig eftir inntöku lyfsins er ekki ráðlegt að aka vélknúnu ökutæki
Aukaverkanir: I upphafi meðferðar fá um 10% sjúklinganna óþægindi frá
meltingarfærum, sem venjulega hverfa á fáeinum dögum þrátt fvrir
áframhaldandi töku lyfsins. Algengar (>!%): Höfuðverkur, svimi Maqaverkir
ógleði, uppköst, niðurgangur. Lltbrot. Sjaldgæfar (0,1-1%); Bjúgur Ofnæmi'
Þreyta. Meltingarsár, blæðing frá meltingarfærum. Ofsakláði Trufluð
lifrarstarfsemi. Mjög sjaldgæfar (<0,1%): Fækkun blóðflagna, hvítra blóðkorna
og/eða rauðra blóðkorna. Sjóntruflanir, eyrnasuð, svefntruflanir óróleiki
krampar. Rugl. Blöðrumyndun á húð, regnbogaroðasótt (erythema múltiforme)'
Steven-Johnsons heilkenni, Lyells heilkenni, hárlos, Ijósóþol. Truflað húðskyn'
Bráð nýrnabilun, blóð í þvagi, nýrna- og skjóðubólga, nýrungaheilkenni
(nephrotic syndrome). Lyfhrif: Lyfið minnkar myndun prostaglandina i
líkamanum. Það hefur bólgueyðandi og verkjastillandi verkun. Lyfjahvörf:
Aðgengi (nýting) díklófenaks er u.þ.b. 50%. Þetta lyfjaform hefur forðaverkun
og nær blóðþéttni lyfsins hámarki 6-8 klst. eftir inntöku, sé lyfið gefið með mat,
en verkun helst i 12-24 klst. Próteinbinding í blóði er 99,7%. Lyfið skilst út sem
umbrotsefni, um 60% í þvagi og um 30% í saur. Útlit: Forðatafla 75 mg:
Ljosbleik, kúpt, 0 9mm. Forðatafla 100 mg: Hvít, kúpt, merkt með þríhyrningi
a annarri hlið, 0 12 mm. Pakkningar og hámarksverð í smásölu (01.10.04):
Forðatöflur 75 mg: 30 stk. 2.147 kr„ 100 stk. 5.589 kr. Forðatöflur 100 mg: 30
stk. 2.723 kr„ 100 stk. 7.356 kr. Afgreiðslutilhögun: R. Greiðsluþátttaka: E.
Markaðsleyfishafi: Actavis hf. JÚIÍ2004.
hannr í hpilcii