Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.2005, Page 97

Læknablaðið - 15.01.2005, Page 97
1975-1984 / BERKLAVEIKI vist tæpast nauðsynleg úr því. Áherslu verður þó að leggja á stöðugt áframhald nreðferðar og fylgjast vel með því að lyfin séu tekin samkvæmt fyrirmælum. Sé vafi á slíku má með þvagrannsóknum hjá sjúklingum sannfærast um lyfjanotkunina. Þar sem vanda skal til berklavarna og meðferðar sjúkdómsins verður að teljast nauðsynlegt að hafa sjúklingana einangraða meðan þeir eru smitandi vegna smithættunnar og ennfremur að þeir séu í sjúkrahúsi meðan fylgst er með fyrstu viðbrögðum þeirra við lyfjameðferðinni. Sé henni vel fylgt eftir, einkum framan af meðferðartímanum, ber fiestum stofnunum saman um að 95-98% sjúklinga nái fullum bata. Annars er nú unnið svo mjög að rannsókn nýrra berklalyfja að gera má ráð fyrir að ný lyf, áhrifameiri og með minni eiturverkanir komi fram áður en langt um líður. Um 3. lið: Nauðsynlegt er að heilsugæslustöðvar fylgist vel með hinum berklaveika fyrstu árin, rann- saki og láti rækta úr sputum, framkvæmi blóðrann- sóknir og taki sjúklinginn af berklaskrá þegar hann telst eigi lengur virkur eða hefur lokið meðferð. Röntgenmyndun er nauðsynleg öðru hvoru, einkum fyrst í stað. Aðalatriðið er að öllum heilsugæslustöðv- um sé ljóst að þeim ber að fylgjast með heilsufari sjúklingsins og séu ábyrgar fyrir réttri skráningu hans um hver áramót. Uni 4. lið: í kaflanum um bólusetningu gegn berkla- veiki hér að framan er getið nokkurra starfshópa eða annarra hópa fólks sem talið er að séu í meiri berkla- smithættu en almennt gerist. Þar sem nú er reiknað með að BCG bólusetning veiti um 80% hinna bólu- settu vörn gegn sjúkdómnum og að þessara varna gæti að minnsta kosti í 10 ár eftir bólusetninguna (151) þykir rétt að halda áfram að bólusetja einstak- linga fyrrgreindra hópa sem telja má að fremur öðr- um geti orðið fyrir berklasmitun. Er því nauðsynlegt að stjórn berklavarnanna hér sjái um að alltaf sé á boðstólum BCG bóluefni af bestu tegund ásamt tuber- kúlíni sem heilsugæslustöðvar geta notfært sér þegar þess er þörf. Ennfremur að annast að allir þeir sem þannig eru berklabólusettir verðir skráðir sérstaklega í heimahéraði sínu og einnig í aðalberklabólusetning- arskrá ríkisins í Berklavarnastöðinni í Reykjavík. Um 5. lið: Gera verður ráð fyrir því að berklapróf- um á börnum í aldursflokkunum 6-13 ára verið haldið áfram í sem flestum læknisumdæmum minnst árlega. Með því að takmarka mjög notkun BCG bóluefnis, bólusetja aðeins fáa vandlega valda hópa þjóðfélags- ins og hafa þá alla á sérstakri bólusetningarskrá er auðvelt að greina þá sem verða jákvæðir eftir bólu- setningu frá hinum sem verða það vegna venjulegrar smitunar. Berkladeild Heilsuverndarstöðvar Reykja- víkur hefur vegna reynslu sinnar og góðs árangurs á þessu sviði gengið svo langt á síðustu árum að taka upp þá nýlundu að framkvæma berklapróf á skóla- börnum 6-13 ára tvisvar sinnum á ári, það er haust og vor, við byrjun og lok skólagöngu (84). Með þessu hefur á ódýran og auðveldan hátt fengist aukið öryggi gegn því að smitunaruppsprettur leynist lengi meðal almennings eins og altítt var áður fyrr og enn gerist, einkum meðal þjóða þar sem fólk almennt er berkla- bólusett á unga aldri. Þar missir berklaprófið það gildi sitt að hafa upp á hinum nýsmituðu og sjúku (smit- unaruppsprettunum) í tæka tíð. Til þess að fylgjast sem nánast með berklasmitun þjóðarinnar verður að teljast nauðsynlegt að gert verði einnig öðru hvoru, til dæmis á 25 ára fresti, berklapróf á eldri aldursflokkum, jafnvel til 40-50 ára aldurs. Til slíks prófs verður að velja marktækan fjölda íbúa í hverjum aldursflokki af báðum kynjum og úr ýmsum landshlutum svo að sem jafnast verði valið milli dreifbýlli og þéttbýlli héraða landsins. Þá ber að lokum nauðsyn til að vandlega verði gætt 4. og 5. gr. berklavarnalaganna um skrásetningu berkla- sjúklinga (berklabækur og héraðslæknaskýrslur D og DA). Stjórn berklavarna í landinu verður síðan að fá skýrslur þessar samræmdar um hver áramót til að koma í veg fyrir tvítalningu svo sem gert hefur verið frá og með árinu 1939. Ennfremur ber að fara yfir dánar- skýrslur berklaveikra frá Hagstofu fslands og gera þær upp samkvæmt gildandi alþjóðlegri dauðameinaskrá. Uin 6. lið: Með hinni miklu og tíðu notkun berkla- prófs sem að framan hefur verið lýst má gera ráð fyrir að fiestar nýsmitanir barna og unglinga komi furðu fljótt í ljós. Er því auðvelt að fylgjast með því hvort hinn nýsmitaði nær sér fijótt eða verður berkla- sjúklingur með greinileg sjúkdómseinkenni. Enginn læknir hikar þá við notkun berklalyfjanna. Undan- farin ár hefur talsvert verið af því gert og einnig hér á landi að gefa nýsmituðum berklalyf í varnarskyni áður en sjúkdómseinkenni koma í Ijós. Mætti nefna slíka meðferð sjúkdómsvarnir. Er þá lyfjameðferðin mun styttri en ef um meðferð berklasjúklings er að ræða, eða aðeins 6-12 mánuðir (secundær chemopro- phylaxis, sjúkdómsvarnir). Ef vissa er fyrir því að ósmitaðir hafi dvalist með smitandi berklasjúklingum hafa sumir læknar þegar í stað notað hin sérhæfðu berklalyf og gefið þau jafnvel áður en vitað var um smitun og jákvætt berklapróf. Er slíkt nefnt primær chemoprophylaxis, smitunarvarnir. Þegar þetta er ritað eru enn ýmsir þeirra sem rnikla reynslu hafa fengið af notkun berklalyfjanna sem ráða frá þessari tegund smitunarvarna (150). Lyfjagjöfinni geta fylgt alvarlegar aukaverkanir (43,68) og auðvelt er fyrir lækna og heilsugæslustöðvar að fylgjast svo vel með fólki sem er í smitunar- eða sýkingarhættu að lyfjameðferð geti byrjað þegar í stað ef sjúkdómsein- kenni koma í ljós. í síðastliðin 18 ár hefur enginn sjúklingur látist úr heilahimnu- né bráðaberklum hér á landi. Læknablaðið 2005/91 97
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.