Læknablaðið - 15.01.2005, Síða 102
1 975-1984 / BERKLAVEIKI
Berklapróf
Framkvæmd og túlkun
Moro-próf (percutan próf)
Moro-próf er gert á börnum til 12-13 ára aldurs. Við framkvæmd
prófsins er notaður túberkúlínáburður Moro og heftiplástur.
Klipptir eru niður tveir lappar ca. 2Vi x 21h cm að stærð og sett ör-
lítið af áburði á annan þeirra sem síðan er komið fyrir vinstra megin
á brjósti barnsins. Hægra megin er settur samanburðarplástur án
áburðar (mynd A 1 og 2).
Plástrarnir eru teknir burtu eftir Wi sólarhring en dæma skal próf-
ið að 3 sólarhringum liðnum. Reynist prófið jákvætt sést allt frá
roðahellu (mynd A 3) og einstaka sinnum blöðrum niður í nokkrar
smábólur þar sem áburðurinn var settur. Til þess að prófið teljist já-
kvætt þurfa að sjást minnst 3 bólur.
Roðni undan báðum plástrunum bendir það til ofnæmis fyrir
þeim og er þá rétt að gera mantoux-próf og eins ef útkoma er svo
lítil að erfitt sé að dæma um hvort hún eigi að teljast jákvæð eða
ekki.
Mantoux-próf (intracutan próf)
Prófið er notað við þá sem eru eldri en 12 ára og er túberkúlínið í
tveim styrkleikum, það er 1 T.U. (1 eining) í 0,1 ml sem svarar til
1/50000 úr mg af túberkúlíni (hreinsað túberkúlín) og 10 T.U. (10
einingar) í 0,1 ml sem svarar til 1/5000 úr mg.
Oftast er nægilegt að nota veikari styrkleikann en einstaka sinn-
um er þó nauðsynlegt að grípa til 10 T.U. ef ekki fæst jákvæð svörun.
Á þetta einkum við um gamalt fólk og þá sem bólusettir hafa verið
gegn berklaveiki en nokkur hluti þeirra sýnir fyrst jákvæða svörun
sé sá styrkleiki notaður.
Nauðsynlegt er að nota sérstakar mantoux-sprautur og (einnota)
intracutan nálar.
Mantoux-prófið er gert á vinstri framhandlegg, innanvert og rétt
neðan olnbogabótar. Efninu er sprautað í húðina (intracutant), 1/10
úr ml, og á þá að myndast blaðra, 6-8 mm að stærð, sé prófið gert á
réttan hátt, það er ekki stungið of djúpt og þess gætt að ekkert leki
með nálinni (mynd B 1).
Prófið er athugað eftir 3 sólarhringa. Reynist það jákvætt sést
roði og bólga á stungustaðnum sem mæld er á eftirfarandi hátt:
1. Roði án þrota: neikvæð svörun.
2. Pvermál þrota í mm og verður hann að mælast minnst 8 mm til
þess að prófið teljist jákvætt (mynd B 3).
Þroti minni en 6 mm: neikvæð svörun (mynd B 2). Proti 6-8 mm:
vafasöm svörun. Prófið endurtakist með 10 T.U. ef til er.
Athugasemd. Fundist hefur á seinni árum fjöldi sýkla (mycobact-
eria) sem eru svo skyldir berklasýklum að þeir geta stundum valdið
jákvæðu berklaprófi. í flestum tilfellum eru sýklar þessi óskaðleg-
ir mönnum. Hér á landi hefur á undanförnum áratug öðru hverju
orðið vart við jákvæð berklapróf sem ástæða er til að ætla að séu
þannig til komin.
Oftast er þó svörun lítil og fremur endingarstutt, það er sé við-
komandi endurprófaður að nokkrum árum liðnum reynist hann
oftast algjörlega neikvæður. Framleidd hafa verið efni úr þessum
sýklum á sama hátt og í sama styrkleika og túberkúlín og nefnast
þau sensitín til aðgreiningar frá venjulegu túberkúlíni.
Sé prófað samtímis með túberkúlíni og sensitíni fæst oft sterkari
svörun með því síðarnefnda sé smitunin af slíkum uppruna.
Mynd A 1
Mynd A 2
Mynd A 3
Mynd B 1
Mynd B 2
Mynd B 3
102 Læknablaðið 2005/91