Læknablaðið - 15.11.2005, Blaðsíða 25
FRÆÐIGREINAR / SÁLFÉLAGS LEGT VINNUUMHVERFI
Tafla II b. Samspil heilsufarseinkenna, vöktun. Karlar. kyns og aldurs viö rafræna
Hefur fundið fyrir OR 95% vikmörk
- verk fyrir brjósti eða hjarta ,846 ,427 1,675
- verið óvenju andstutt (ur) 1,912 ,891 4,101
- verkjum í vöðvum eða liðum 1,303 ,880 1,929
- höfuðverk 2,066 1,347 3,170
- verk í baki 1,247 ,840 1,853
- verk í hálsi og heröum 1,364 ,923 2,014
- magaverk 1,505 ,833 2,718
- hjartsláttartruflunum ,891 ,390 2,036
- svima 1,552 ,681 3,563
- lystarleysi 1,926 ,733 5,061
- þreytu eftir það sem á að teljast 1,874 1,169 3,005
nægur nætursvefn
- svefnerfiðleikum 1,676 1,042 2,694
- kvíða eða spennu 1,768 1,114 2,805
- áhyggjum eða dapurleika 1,560 ,950 2,560
Tafla II a. Samspil heilsufarseinkenna, kyns og aldurs við rafræna vökt- un. Konur.
Hefur fundiö fyrir OR 95% vikmörk
- verk fyrir brjósti eða hjarta ,530 ,254 ,995
- verið óvenju andstutt(ur) ,889 ,487 1,623
- verkjum I vöðvum eða liöum ,907 ,617 1,335
- höfuöverk ,891 ,608 1,307
- verk í baki 1,273 ,866 1,870
- verk í hálsi og herðum 1,328 ,890 1,982
- magaverk ,662 ,407 1,078
- hjartsláttartruflunum ,634 ,281 1,432
- svima ,860 ,451 1,639
- lystarleysi ,637 ,282 1,439
- þreytu eftir það sem á að teljast nægur nætursvefn ,986 ,658 1,478
- svefnerfiöleikum 1,116 ,736 1,692
- kvíða eða spennu 1,080 ,717 1,627
- áhyggjum eða dapurleika 1,233 ,802 1,896
eftir vinnudaginn ynnu þau undir rafrænu eftirliti.
Líkindahlutfallið hjá konum var OR 2,3 (95%
CI 1,4-3,7) og hjá körlum OR 2,6 (95% CI 1,5-
4,3). Pað sama gilti um það að hafa fundið frekar
eða mjög mikið fyrir vinnutengdri streitu nýlega
(konur OR 1,6 (95% CI1,1-2,5) og karlar 2,0 (95%
CI 1,3-3,2)). Því fleiri tegundir rafræns eftirlits
sem starfsfólk vann undir, því líklegra var það til
að hafa nýlega fundið frekar eða mjög mikið fyrir
vinnutengdri streitu nýlega. Það kom einnig fram
hjá báðum kynjum að þau sem vinna undir rafrænu
eftirliti voru líklegri en aðrir starfsmenn til að geta
sjaldan eða aldrei ráðið vinnuhraðanum (OR 2,2
(95% CI1,6-3,0)) og þau voru meira en tvöfalt lík-
legri en aðrir starfsmenn til að segjast sjaldan eða
aldrei ánægð í starfi (konur OR 2,2 (95% CI 1,3-
3,5), karlar OR 2,0 (95% C1 1,2-3,4)). Konurnar
sem unnu undir rafrænu eftirliti voru auk þess
meira en tvöfalt líklegri en aðrar starfssystur þeirra
til að segjast eiga oft eða alltaf erfitt með að upp-
fylla kröfur eða væntingar yfirmannsins, að starfið
bjóði sjaldan eða aldrei uppá skemmtileg verkefni
og að starfsandinn sé lítið eða alls ekki þægilegur.
Þegar skoðuð voru tengsl á milli þess að vinna
undir rafrænu eftirliti og líðanar í starfi voru
tengslin augljós hjá körlum (tafla Ilb). Þannig
voru þeir karlar sem unnu undir rafrænu eftirliti
líklegri en starfsbræður þeirra til að hafa á síðustu
12 mánuðum fundið fyrir höfuðverk (OR 2,1 (95%
CI 1,3-3,2)), þreytu eftir það sem á að teljast nægur
nætursvefn (OR 1,9 (95% CI 1,2 - 3,0)), kvíða og
spennu (OR 1,8 (95% CI 1,1-2,8)) og svefnerf-
iðleikum (OR 1,7 (95%CI 1,2-2,7)). Þessi tengsl
komu hins vegar ekki í ljós hjá konum (tafla Ila).
Þegar horft er eftir hvaða tengsl eru á milli sál-
félagslegra vinnuþátta og rafrænnar vöktunar að
Tafla III. Samspil sálfélagslegra vinnuþátta, kyns og aldurs viö rafræna vöktun metiö meö logistískraöhvarfsgreiningu.
Áhættuþáttur OR 95% vikmörk
Kyn 1,388 1,022 1,883
Aldur 1,050 1,037 1,064
Oft eða alltaf úrvinda eftir vinnudaginn 1,140 ,940 1,382
Hefur fundið frekar eða mjög mikiö fyrir vinnutengdri streitu nýlega 1,290 1,036 1,607
Á oft eða alltaf erfitt með að uppfylla kröfur/ væntingar yfirmannsins ,950 ,791 1,140
Starfið býður sjaldan eða aldrei uppá skemmtilega krefjandi verkefni 1,069 ,893 1,279
Getur sjaldan eða aldrei ráðið vinnuhraðanum ,822 ,717 ,942
Getur sjaldan eða aldrei haft áhrif á mikilvægar ákvarðanir sem varða starfið ,884 ,742 1,054
Fæ sjaldan eða aldrei stuðning og hjálp með verkefni frá samstarfsmönnum ,976 ,810 1,177
Fæ sjaldan eða aldrei stuöning og hjálp með verkefni frá næsta yfirmanni 1,105 ,929 1,312
Yfirmaður minn hvetur mig sjaldan eða aldrei til að taka þátt í mikilvasgum ákvörðunum ,993 ,846 1,165
Starfsandinn lítið eða alls ekki hvetjandi og styðjandi 1,068 ,856 1,333
Starfsandinn lítið eða alls ekki afslappaður og þasgilegur ,925 ,743 1,152
Sjaldan eða aldrei ánægð(ur) í starfi ,793 ,623 1,008
teknu tilliti til kyns og aldurs með lógistískri
aðhvarfsgreiningu þá hafa þeir sem vinnu undir
rafrænni vöktun marktækt oftar fundið nýlega
fyrir vinnutengdri streitu (tafla III). I samræmi við
það hafa þeir sem vinna undir rafrænni vöktun að
teknu tilliti til aldurs og kyns oftar fundið fyrir því
að vera óvenju andstuttir og svefnörðugleikum
(tafla IV).
Þeir sem vinna undir rafrænu eftirliti eru lík-
legri (26,3%) en aðrir starfsmenn (18,4%) til að
Læknablaðið 2005/91 825