Læknablaðið - 15.11.2005, Blaðsíða 75
UMRÆÐA & FRÉTTIR / TILKYNNING / FRÁ LANDLÆKNISEMBÆTTINU / FRÁ TR
Tilkynning
frá Klínískri lífefnafræðideild Landspítala', Rannsóknadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri2, Rannsóknastofu sjúkrahúss
Akraness3, Rannsóknastofu heilbrigðisstofnunar Suðurlands4, Rannsóknastofu heilbrigðisstofnunar Suðurnesja5,
Rannsóknadeild heilbrigðisstofnunar Þingeyinga6, Rannsóknastofunni í Domus Medica7, Blóðrannsóknastofunni í Glæsibæ8,
Klínískri lífefnafræðistofu Hjartavemdar9, Rannsóknastofunni í Mjódd10
Breyting á viðmiðunarmörkum í klínískri líf-
efnafræði frá 1. nóvember 2005
Undanfarin ár hefur verið unnið að því verkefni
á vegum Norrænu meinefnafræðisamtakanna
(NFKK, Nordisk förening för klinisk kemi) að
skilgreina og innleiða samnorræn viðmiðunar-
rnörk fyrir 25 algengustu rannsóknir í klínískri
lífefnafræði hjá fullorðnum. Rannsóknastofur á
Norðurlöndum, alls 102, tóku þátt í verkefninu,
þar af þrjár á íslandi. Alls voru mæld sýni frá 3036
manns 18 ára og eldri. Á hinum Norðurlöndunum
hafa nýju viðmiðunarmörkin verið tekin í notkun.
Þau eru svipuð þeim eldri nerna fyrir þrjú ensím
sem eru alkalískir fosfatasar (ALP), amýlasar
Mæling Ný samnorræn viðmiðunarmörk Eldri viðmióunarmörk á LSH Einlngar
S-ALP 35-105 50-300 U/L
S-Amýlasi 25-120 126-400 U/L
SAmýlasi frá brisi 10-65 U/L
SLD 105-205 240-480 U/L
og laktat dehydrogenasi (LD). Samtímis verður
breytt um aðferðir fyrir þessi ensím samkvæmt til-
lögum IFCC (International Federation of Clinical
Chemistry). Breytingarnar leiða til þess að niður-
stöður úr þessum ensímmælingum lækka mikið
eins og sést í töflunni. Nánari upplýsingar fást hjá
undirrituðum og á slóðinni: www.furst.no/norip/
Ingunn Porsteinsdóttir læknir'4, ísleifur Ólafsson yfirlæknir1-5, Vigfús Þorsteinsson yfirlæknir26,
Þorvaldur Veigar Guðmundsson læknir3, Matthías Kjeld læknir7, Sturla Arinbjarnarson læknir8,
Elín Ólafsdóttir yfirlæknif', Leifur Franzson lyfjafræðingur10
Dreifibréf Landlæknisembættisins nr. 6/2005
Tilkynning frá
sóttvarnalækni
Nýjar leiðbeiningar um greiningu og meðferð
höfuðlúsarsmits
Til: Yfirlækna og hjúkrunarfbrstjóra/-stjóra heilsugæslustöðva, heimilis-
lækna, skólastjóra grunnskóla, leikskólastjóra
Sóttvarnalæknir vill vekja athygli á hjálögðum leiðbeiningum um meðferð
við höfuðlúsasmiti en þær hafa verið endurskoðaðar. Hægt er að nálgast
þær á heimasíðu Landlæknisembællisins www.Iandlaeknir.is undir efnis-
flokknum sóttvarnir/smitsjúkdómar.
í leiðbeiningunum er meðal annars mælt nteð tveggja vikna meðferð
sem felst í vandaðri kembingu í að minnsta kosti fimm skipti og notkun
lúsadrepandi efnis í ísóprópýlalkóhóllausn sem sett er í hárið tvisvar sinn-
um með viku millibili.
Minnt er á að frá árinu 1999 hefur höfuðlús verið skráningarskyldur
sjúkdómur og því er skylt að senda sóttvarnalækni skýrslu um fjölda
höfuðlúsatilfella einu sinni í rnánuði.
Seltjarnarnesi, 3. október 2005
Sóttvarnalæknir
Endurskoðun vinnu-
reglna við útgáfu
lyfjaskírteina
Umfangsmikil endurskoðun og samræming
hefur átt sér stað á vinnureglununt á síðustu
mánuðum. Á heimasíðu Tryggingastofnunar rík-
isins www.tr.is ííhí//> krækjunni lyfjamál má linna
algengustu vinnureglurnar. Nokkrar þeirra eru
enn í vinnslu og munu þær birtast á heimasíðunni
um leið og þær eru tilbúnar. Nánari upplýsingar
veitir Guðrún I. Gylfadóttir, lyfjafræðingur.
Læknir sækir um lyfjaskírteini á þartil-
gerðunt vottorðum sem eru á heimasíðu TR,
sjúkdómsgreining og/eða sjúkrasaga er alltaf
forsenda fyrir útgáfu lyfjaskírteinis.
Tryggingastofnun hefur heimild til út-
gáfu lyfjaskírteina skv. 12. gr. reglugerðar nr.
458/2005 um greiðslur almannatrygginga í
lyfjakostnaði. í samræmi við reglugerðina hefur
TR sett sér vinnureglur þar sem meðal annars
koma fram skilyrði fyrir samþykki/útgáfu lyfja-
skírteinis og gildistími þeirra. Urn er að ræða
almenna vinnureglu og sértækar vinnureglur
er taka til ákveðinna lyfja, lyfjaflokka eða sjúk-
dóma.
Læknablaðið 2005/91 875