Læknablaðið - 15.11.2005, Blaðsíða 71
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÖKUHÆFNI SJÚKLINGA
Er því einkum beitt eftir alvarleg veikindi þar sem
augljóst er að skerðing hefur orðið á færni viðkom-
andi. Er mikil framför að slíku stöðluðu mati og
æskilegt að það sé framkvæmt í mun fleiri tilvikum.
Til þess að slíkt mat geti tekið á öllum þeim vanda-
málum sem tengjast ökuhæfni er nauðsynlegt að
hægt sé að leita sérþekkingar ýmissa aðila, svo sem
augnlækna, iðjuþjálfa, hjartalækna, taugalækna,
ökukennara og öldrunarlækna.
Til greina hlýtur að koma að aðrir en læknar
geti vísað málum til nánara mats á ökuhæfni, til
dæmis ættingjar sem eru farnir að hafa áhyggjur af
ökulagi fjölskyldumeðlims. í könnun okkar reynd-
ust 93% aðspurðra lækna telja nauðsynlegt að til
staðar væri slík sjálfstæð þjónusta til þess að meta
ökuhæfni sjúklinga.
í 53. grein umferðarlaga er að finna heimild
fyrir lögreglustjóra til þess að afturkalla ökurétt-
indi ef hlutaðeigandi fullnægir ekki lengur skil-
yrðum til að öðlast ökuskírteini. Ef ekki er hægt að
tryggja öryggi vegfarenda með öðrum og mildari
leiðum teljum við nauðsynlegt að því úrræði verði
beitt oftar. Líf okkar allra og heilsa í umferðinni
er í húfi.
Heimildir
1. Longo MC, Hunter CE, Lokan RJ, White JM, White MA.
The prevalence of alcohol, cannabinoids, benzodiazepines
and stimulants amongst injured drivers and their role in driver
culpability. Acc Anal Prev 2000; 32: 613-22
2. Lee W, Wolfe T, Shreeve S. Reporting epileptic drivers to
licensing authorities is unnecessary and counterproductive.
Ann Emerg Med 2002; 39: 656-9.
KB ATVINNULÍF
Pantaðu ráðgjöf á kbbanki.is eða
komdu viö í næsta útibúi KB banka.
Sérsniöin þjónusta fyrir lítil og meöalstór fyrirtæki
KB banki býöur rekstraraðilum smærri og meöalstórra fyrirtækja
persónulega, faglega og skjóta þjónustu í fjármálum,
hvort heldur er á sviði rekstrar eöa einkafjármála.
KB BANKI
- krafturtil þín!
www.kbbanki.is
Læknablaðið 2005/91 871