Læknablaðið - 15.11.2005, Blaðsíða 13
FRÆÐIGREINAR / HATIÐNIÖNDUNARVÉL
Árangur meðferðar með hátíðniöndunarvél
hjá nýburum með alvarlega öndunarbilun
Sólrún Björk
Rúnarsdóttir'
LÆKNANEMI
Atli
Dagbjartsson1,2
BARNALÆKNIR
Gestur Pálsson1,2
BARNALÆKNIR
Hörður
Bergsteinsson1,2
BARNALÆKNIR
Sveinn
Kjartansson1,2
BARNALÆKNIR
Þórður
Þórkelsson1,2
BARNALÆKNIR
'Háskóli íslands, læknadeild,
2Barnaspítali Hringsins,
Landspítala Hringbraut.
Fyrirspurnir og bréfaskipti:
Þórður Þórkelsson,
Barnaspítala Hringsins,
Landspítala Hringbraut, 101
Reykjavík.
Sími: 543-1000,
bréfsími: 543-3021.
thordth @landspitali. is
Lykilorð: hátíðniöndunarvél,
nýburar, lungnasjúkdómar.
Ágrip
Tilgangur rannsóknar: Kanna árangur meðferðar
með hátíðniöndunarvél (HTÖ) hjá nýburum með
alvarlega öndunarbilun.
Tilfelli og aðferðir: Afturvirk rannsókn sem tók
til tímabilsins 1994 til 2004. Klínískar upplýsingar
voru fengnar úr sjúkraskrám barnanna. í rann-
sókninni voru eingöngu börn þar sem meðferð
með hefðbundinni öndunarvél hafði ekki borið
tilætlaðan árangur. Blóðildun, loftun og sýru-basa-
vægi voru metin rétt áður en HTÖ meðferðin var
hafin, tveimur og fjórum klukkustundum eftir að
hún hófst.
Niðurstöður: Sextíu og einn nýburi uppfyllti þátt-
lökuskilyrði. Eftir tvær klukkustundir á HTÖ var
blóðildun (A-a pO, mismunur), loftun og sýru- og
basavægi marktækt betra en fyrir meðferð með
HTÖ. Ekki reyndist marktækur munur á mæl-
ingunum við tvær og fjórar klukkustundir. Fyrir
ineðferð með HTÖ var blóðildun þeirra sem lifðu
(41 barn) og þeirra sem létust (20 börn) svipuð, en
eftir tvær klukkustundir á HTÖ var hópurinn sem
lifði með marktækt betri blóðildun. Þrjátíu og eitt
barn af þeim sem lifðu höfðu betri blóðildun eftir
að HTÖ meðferð var hafin, en aðeins átta af þeim
sem létust (p=0,03).
Ályktun: Meðferð með HTÖ bætir blóðildun, loft-
un og sýru-basavægi flestra nýbura með alvarlegan
lungnasjúkdóm þegar meðferð með hefðbundinni
öndunarvél ber ekki tilætlaðan árangur. Svörun
við meðferð með HTÖ hefur visst forspárgildi um
horfur nýbura með alvarlega öndunarbilun.
Inngangur
Lungnasjúkdómar eru helsta ástæða þess að
nýburar þurfa á gjörgæslumeðferð að halda. I
flestum tilfellum er um ræða væga og tímabundna
öndunarörðugleika, einkum vegna seinkaðrar
aðlögunar að lífi utan móðurkviðar. I öðrum til-
vikum er vandamálið alvarlegra og þarf þá oft að
meðhöndla börnin með öndunarvél. Dæmi um
slíka sjúkdóma eru glærhimnusjúkdómur sem or-
sakast einkum af skorti á spennuleysi (surfactant) í
lungunum og kemur aðallega fyrir hjá fyrirburum.
Aðrir sjúkdómar sem valdið geta öndunarbilun
hjá nýburum eru lungnabólga, barnabikssvelging
(meconium aspiration) og ýmiss konar fæðingar-
gallar (1).
í flestum tilvikum gengur vel að meðhöndla
ENGLISH SUMMARY
Rúnarsdóttir SB, Dagbjartsson A, Bergsteinsson H,
Pálsson G, Kjartansson S, Þórkelsson Þ
The efficacy of high frequency ventilation
in severe neonatal respiratory failure
Læknablaðið 2005;91:813-9
Objective: To evaluate the efficacy of high frequency
ventilation (HFV) in infants failing conventional ventilator
therapy at our institution.
Study Group and Methods: Medical records of
all infants managed on HFV after having failed
conventional ventilator management from 1994-2004
were reviewed. Ventilatory settings, blood gases and
pH just prior to starting HFV, and two and four hours
after starting HFV were recorded.
Results: Sixty one infants met the study criteria. At
two hours of HFV there was a significant improvement
in oxygenation (Alveolar to arterial oxygen tension
difference), ventilation and acid-base balance. These
values were not significantly different between two and
four hours of HFV. There was no significant difference
in oxygenation between survivors (n=41) and
nonsun/iviors (n=20) prior to HFV, but after two hours
of HFV the survivors had significant improvement in
oxygenation. Thirty one of the survivors had improved
oxygenation at two and four hours of HFV, but only
eight of the nonsurvivors (p=0.03).
Conclusions: HFV results in significant improvements
in oxygenation, ventilation and acid-base balance
in most infants failing conventional ventilatory
management. The immediate response to HFV may be
a predictor of survival in infants with severe hypoxic
respiratory failure.
Keywords: high frequency ventilation, infants, iung disease.
Correspondence: Þórður Þórkelsson, thordth@landspitali.is
nýbura með hefðbundinni öndunarvél, en stund-
um ber sú meðferð ekki tilætlaðan árangur. í
þeim tilvikum er oft gripið til meðferðar með
hátíðniöndunarvél (HTÖ), sem oft gefur betri
árangur. Hátíðni-öndunarvélameðferð byggist á
mjög hárri öndunartíðni, yfirleitt 600-900 á mínútu
(10-15 Hz), en mjög lítilli andrýmd (tidal volume).
Meðalþrýstingurinn í öndunarveginum stuðlar
að því að halda lungnablöðrunum opnum og er
þannig ákvarðandi fyrir blóðildun (oxygenation).
Loftun (ventilation) ákvarðast hins vegar einkum
af þrýstingssveiflum umhverfis meðalþrýstinginn
sem öndunarvélin gefur (2).
Læknablaðið 2005/91 813