Læknablaðið - 15.11.2005, Blaðsíða 5
LISTAMAÐUR
MÁNAÐARINS
II M R Æ Ð A 0 G F R É T T I R
844 Af sjónarhóli stjórnar LÍ: Stimpilklukka á Landspítala
Hulda Hjartardóttir
845 Aðalfundur með afrískum tilbrigðum
Ráðherra svarafár um hugsanlegan samning við heimilislækna
Þröstur Haraldsson
847 Ályktanir aðalfundar LÍ 2005
850 Málþing á aðalfundi LÍ. Ævistarf Arnar Bjarnasonar krufið til
mergjar
Þröstur Haraldsson
852 Nýr spítali á að rísa á 13 árum
Norrænn hópur arkitekta og verkfræðinga átti sigurtillöguna í samkeppni
um skipan nýja Landspítalans
Þröstur Haraldsson
853 Tillagan hefur marga kosti
- segir Sigurður Ólafsson formaður skipulags- og þróunamefndar læknaráðs Landspítala
Þröstur Haraldsson
855 Viljum að læknar tilkynni um aukaverkanir lyfja
Lyfjastofnun auðveldar læknum að tilkynna aukaverkanir með rafrænum hætti
Þröstur Haraldsson
857 Norðurevrópskt þing kvenna í læknastétt. Kynjamunur í heilsu
helsta umræðuefnið
Þröstur Haraldsson
861 Úr ýmsum áttum
862 Um fyrstu íslensku konurnar í Iæknastétt
II. Hrefna Finnbogadóttir/Harriet Kurtz, síðar McGraw, læknispróf 1907, Chicago
Margrét Georgsdóttir
865 Er Don Kíkóti upprisinn á íslandi?
Bjarni Þjóðleifsson, Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir
869 Að gefnu tilefni - tilraun til að hefta ritfrelsi
Tómas Helgason
870 Ökuhæfni sjúklinga
Hjalti Már Björnsson, Kristín Sigurðardóttir
872 Sullaveikivarnir í Stykkishólmshéraði 1962-63
Guðmundur Helgi Þórðarson
875 Tilkynning / Frá Landlæknisembættinu / Frá TR
F A S T I R P I S T L A R
877 íðorð 181: Bjúgaður, verkjaður, lyfjaður
Jóhann Heiðar Jóhannsson
879 Broshorn 63: Barnamagnýl og tvíslá
Bjarni Jónasson
880 Læknadagar 2006
882 Okkar á milli
883 Lausar stöður/þing/styrkir
884 Sérlyfjatextar
895 Ráðstefnur og fundir
({} o
© Ólafur Elíasson/Ljósm. Einar Falur Ingólfsson
Allt frá árinu 1990 hefur Ólafur Elí-
asson notað Ijós I verkum sínum á
einn eða annan hátt. Skemmst er að
minnast tveggja sýninga, YourActi-
vity Horizon i Lisasafni Reykjavíkur þar
sem lárétt Ijóslína umlukti stóran sal og
breytti litum, og The Weather Project,
eða „sólin“ í Tate Modern. Ekki má
gleyma eldri sýningum í i8 gallerí þar
sem hann varpaði annars vegar blikk-
Ijósi á vatnsiðu svo hún virtist frosin í
augnablikinu og notaði hins vegar for-
ritaða kastara til að varpa upplýstum
formum á vegg sem umbreyttu salar-
kynnum gallerísins. Þetta eru dæmi um
verk sem byggja á tækni og rafljósum
en það má nefna að Ólafur hefur líka
gert einföld verk með samspili sólar-
Ijóss og rýmis, til dæmis með því einu
að gera gat í loft sýningarsalarins
og upp í himininn. Önnur verk vísa
jafnframt til þess að auk náttúrulög-
málanna eru honum hugleikin náttúran
sjálf en síðast en ekki síst manneskjan
og skynjun hennar á umhverfi sínu.
Ljósmyndin á forsíðu Læknablaðs-
ins er af verki sem nú er til sýnis í Safni
á Laugavegi, myndin er falleg en verkið
er þess eðlis að betra væri að gera
sér ferð og upplifa virkni þess. Hvað
gerist þegar gengið er inn í herbergið
með Limbo Lamp for Pétur (2005)?
Samspil Ijóskastara og glerdisks sem
snýst veldur þvi að Ijós og litir eru á
iði um rýmið. Glerið er þannig úr garði
gert að það endurvarpar rauðum lit en
um leið kemur fram andstæða hans,
grænn. Hér er á ferð leikur með eigin-
leika Ijóss og lita og hvernig manns-
augað nemur þennan leik. Maður hrífst
en áttar sig um leið á því að Ijósið fellur
ekki aðeins á veggina heldur á mann
sjálfan og aðra gesti. Þetta er nokkuð
sem maður kannast við frá tónleikum
þegar spottinn á sviðinu fer á flakk um
salinn og á áhorfendur. Maður verður
sér meðvitaður og er ekki lengur hlut-
laus, upplifir sig sem þátttakanda og
áhorfanda um leið. Þetta er lykilatriði
í list Ólafs; að virkja áhorfandann til
þátttöku svo hann verði hluti af verkinu
eða I sumum tilvikum að áhorfandinn
verði einn eftir með rýminu án milli-
göngu listaverks.
Ólafur heldur áfram rannsóknum
sínum á Ijósi og verður næsti vett-
vangur hans hér á landi tónlistarhúsið
við Reykjavíkurhöfn en þar vinnur hann
með veggi byggingarinnar.
Markús Þór Andrésson
Læknabladid 2005/91 805