Læknablaðið - 15.11.2005, Blaðsíða 45
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AÐALFUNDUR LÍ
Gunnar Ármannsson
framkvœmdastjóri LÍ
lengst til vinstri og Jón
Kristjánsson heilbrigðis-
ráðherra lengst til hægri
en á milli þeirra ertt lœkna-
nemarnir fimm semfóru til
Kenýa í sumar.
Aðalfundur með afrískum tilbrigðum
- Ráðherra svarafár um hugsanlegan samning við heimilislækna
Aðalfundur Læknafélags íslands var haldinn
í húsakynnum félagsins í Kópavogi dagana 30.
september og 1. október. Ekki verður sagt um
fundinn að hann hafi verið stormasamur. Stjórnin
var öll endurkjörin og engin breyting gerð á fé-
lagsgjaldi. Helstu umræðuefni voru ný skýrsla
um stöðu heimilislækninga sem lögð var fram
fyrir fundinn, ógnanir gegn læknum og samskipti
lækna og lyfjaiðnaðarins, auk þess sem sameiningu
Lífeyrissjóðs lækna og Almenna lífeyrissjóðsins
bar á góma.
Sigurbjörn Sveinsson formaður setti fundinn en
í stað þess að flytja hefðbundna setningarræðu gaf
hann hópi læknanema orðið. Þeir voru nýkomnir
úr ferð til Kenýa, meðal annars fyrir tilstyrk LI,
og höfðu frá mörgu að segja. Er óhætt að segja
að frásögn þeirra hafi hrært strengi í brjóstum
fundarmanna því margir þeirra sem á eftir töluðu
vitnuðu til þeirra.
Ráðherra og þriðji liðurinn
Jón Kristjánsson heilbrigðis- og tryggingaráðherra
ávarpaði fundinn og ræddi um það sem efst er á
baugi í málaflokknum að hans mali. Meðal þess
var ályktun alþingis um nauðsyn þess að gert verði
átak í að auka heilbrigði landsmanna með því að
hvetja til breytts mataræðis, aukinnar hreyfingar
og breytinga á lífsstíl. Sagðist ráðherra eiga von
á tillögum faghóps um málið á vordögum 2006
en að þeim fengnum vildi hann efla til átaks með
þátttöku læknasamfélagsins, ráðuneytisins og Lýð-
heilsustöðvar.
Þegar ráðherra svaraði fyrirspurnum snerust
þær ekki síst um málefni heilsugæslulækna og þá
einkum þriðja lið viljayfirlýsingar ráðherra um þau
mál sem hann gaf út fyrir hartnær þremur árum.
Sá liður snerist um samninga við sjálfstætt starf-
andi heimilislækna en fátt hefur orðið um efndir
á honum. Ráðherra svaraði því til að ástæður
þess að ekkert hefði þokast væru af ýmsu tagi en
honum væri annt um að standa við orð sín og því
yrði undinn bráður bugur að því að hefja viðræður
um þriðja liðinn.
Ráðherra var spurður um ýmislegt fleira, svo
sem hvort hann sæi fyrir sér að sveitarfélögin tækju
að sér fleiri verkefni í heilbrigðisþjónustu. Því
svaraði hann játandi en sagði að hann teldi betra
að flytja verkefni til sveitarfélaga og tekjurnar með
í stað þess að gera þjónustusamninga eins og til-
raun hefur verið gerð með. Slíkir samningar væru
allt of vinnufrekir og snúnir í framkvæmd. En til
þess að sveitarfélögin yrðu fær um að taka að sér
þessi verkefni þyrftu þau að stækka og þar stendur
hnífurinn í kúnni (eins og best sást í sameiningar-
kosningunum viku eftir aðalfund).
Loks má nefna að í máli ráðherra kom fram að
nú starfa um 40 manns í ráðuneyti hans sem hann
taldi of fátt. Það jafngildir því að velta ráðuneyt-
isins á hvern starfsmann séu um tveir milljarðar
króna. Alþingi væri hins vegar viðkvæmt fyrir
Þröstur
Haraldsson
Aðalfundarfulltrúar hlýða
á erkibiskups boðskap.
Læknablaðið 2005/91 845