Læknablaðið - 15.11.2005, Blaðsíða 57
UMRÆÐA & FRÉTTIR / KONUR í LÆKNASTÉTT
Norðurevrópskt þing kvenna í læknastétt
Kynjamunur í heilsu helsta umræðuefnið
í síðustu viku september héldu konur í læknastétt
mikla ráðstefnu á Grand Hóteli. Það var 15. þing
Norður-Evrópuhluta Alþjóðasamtaka kvenna í
læknastétt (Medical Women's International As-
sociation eða MWIA) sem nú var haldið í fyrsta
sinn hér á landi. Forseti þingsins var Ólöf Sig-
urðardóttir meinefnafræðingur en Læknablaðið
hitti hana að máli eftir að þinginu lauk.
„Þessi þing eru haldin á þriggja ára fresti en
það síðasta var í Lundúnum og þar tóku fulltrúar
Félags kvenna í læknastétt á íslandi þátt í fyrsta
sinn. Við urðum fyrir góðum áhrifum af þessum
konum og buðumst til að halda næsta þing. Félagið
okkar er stofnað árið 1999 en rnörg þessara félaga
í Evrópu eru stofnuð snemma á síðustu öld svo þau
eru miklu rótgrónari en hér. Alþjóðasamtökin voru
stofnuð 1919, þau eru með elstu samtökum lækna
í heiminum og eiga formlega aðild að alþjóða-
heilbrigðisstofnuninni og fulltrúa hjá Sameinuðu
þjóðunum.
Það ríkti almenn ánægja með þingið og fyrir-
lesararnir voru sérstaklega góðir. Þingið sátu
hátt í 150 manns frá 14 löndum, flestar frá Norð-
urlöndunum og öðrurn nágrannalöndum okkar
en einnig frá Rússlandi, Tékklandi og Tyrklandi
svo eitthvað sé nefnt. Auk þess voru konur frá
Alþjóðasamtökunum, þeirra á meðal fráfarandi
formaður sem er frá Kanada og aðalframkvæmda-
stjórinn frá Þýskalandi auk þess sem fyrrverandi
formaður bandarísku landssamtakanna tók einnig
þátt.“
Staða læknastéttar með þátttöku kvenna
Fyrsti dagurinn fór að mestu í að skoða stöðu
kvenna í læknastétt.
„Þar töluðu konur úr ýmsum áttum, lækn-
ingum, stjórnsýslu og stjórnmálum,“ segir Ólöf.
„Við fengum líka unglækna og fólk sem hefur
rannsakað, stjórnað eða starfað með kvenlæknum,
Þorgerði Einarsdóttur félagsfræðing og nokkra
karlkollega, Pálma V. Jónsson öldrunarlækni,
Einar Guðmundsson geðlækni og prófessorana
Olaf Aasland frá Osló og Lars von Knorring frá
Uppsölum. Erindi Vilhelmínu Haraldsdóttur vakti
athygli þar sem hún kynnti kynskipta tölfræði um
Landspítala sem vinnustað. Þar eru 80% starfs-
manna konur en 28% lækna. Skipting lækna eftir
kyni á sviðin er svipuð og víða erlendis, með lægra
hlutfall kvenna á skurðdeildum og bráðadeildum
en hærra á kvennadeild. Hins vegar vakti það at-
hygli erlendra gesta okkar hve lágt hlutfall kven-
lækna starfar á Barnaspítala Hringsins, eða rétt
tæp 7%. Þorgerður Einarsdóttir kom inn á þögla
kennslu í læknisfræði þar sem hefðbundnum hlut-
verkum er viðhaldið með kynjaðri þögulli kennslu
á hefðum og nefndi erlend dæmi um móttökur
sem kvenlæknar sem sóttu í skurðlækningar hafi
fengið hér áður fyrr. I anda „new professionalism"
eða endurnýjaðrar fagvitundar sé breytt hlutverk
lækna þar sem markmiðið sé að styðja sjúklinga
í að stýra eigin meðferð með breyttum lífsstfl, til
dæmis í langvinnum sjúkdómum eins og sykursýki.
Þessum markmiðum megi ná með aukinni næmi á
kynjamun meðal annars.
Olaf Aasland kynnti fyrri rannsóknir um hvern-
ig heilsa lækna hefur batnað með bættri afkomu
þeirra og hvernig sjá megi breytt val kvenna þar
sem þær völdu áður ýmist að vera ógiftar og/eða
barnlausar til að gefa sig að starfinu en væru
núorðið oftar giftar og ættu börn. Konur í lækna-
stétt séu ánægðari í starfi en karlar þó enn megi
bæta aðbúnað þeirra og auðvelda þeim að sam-
hæfa kröfur starfs og heimilis.
Lars von Knorring hefur velt fyrir sér muninum
Ólöf Sigurðardóttir for-
maður ráðstefnunefndar
og fyrrverandi formaður
Félags kvenna í lœknastétt
á íslandi setur ráðstefnuna.
Þröstur
Haraldsson
Ljósmyndir: Lilja
Sigrún Jónsdóttir
Læknablaðið 2005/91 857