Læknablaðið - 15.11.2005, Blaðsíða 47
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AÐALFUNDUR LÍ
Ályktanir aðalfundar LÍ 2005
Aukið heilbrigði þjóðarinnar
Ályktun aðalfundar Læknafélags Islands 2005 um
opinberar aðgerðir til að auka heilbrigði þjóðar-
innar með bættu mataræði og aukinni hreyfingu
Inngangur
Barátta við langvinna sjúkdóma einkennir heil-
brigðisþjónustu velmegunarþjóða og er vaxandi
viðfangsefni fátækari þjóða í örri þróun. Sífellt
eru færðar frekari sannanir þess að fáir áhættu-
þættir hafa mest áhrif á sjúkdóma- og dánartíðni
(1). Mikilvægustu áhættuþættirnir eru hækkaður
blóðþrýstingur, hækkað kólesteról í blóði, ófull-
nægjandi neysla ávaxta og grænmetis, ofeldi eða
offita, hreyfingarleysi og reykingar. Sumir þessara
áhættuþátta eru innbyrðis tengdir og nátengdir
mataræði og hreyfingu.
Slæmt mataræði og hreyfingarleysi er meðal
þess sem veldur þungbærum, langvinnum sjúk-
dómum, svo sem hjarta- og æðasjúkdómum, áunn-
inni sykursýki og vissum krabbameinum. Fleiri
sjúkdómar sem tengjast mataræði og hreyfingu, til
að mynda tannskemmdir og beinþynning, draga úr
góðri heilsu almennings.
Tekist hefur að draga úr ótímabærri sjúkdóma-
og dánartíðni margra velmegunarþjóða og eru
ótímabær hjartaáföll, heilablóðföll og krabbamein
tengd reykingum dæmi þar um. Sjúkdómsbyrðin
er þó enn mikil og offita barna og unglinga fer víða
vaxandi og fjölgun sjúkdóma sem tengjast áunn-
inni sykursýki. Þessi vandamál hafa verið bundin
við fjáðari þjóðfélagshópa meðal fátækra þjóða,
en fara vaxandi meðal hinna fátæku sem temja
sér heilsuspillandi lífshætti vegna vanþekkingar,
fátæktar og lelagslegs misréttis. Fyrirliggjandi
upplýsingar benda í stórum dráttum til þess að or-
sakir séu alls staðar hinar sömu, neysla orkuríkrar
og einhæfrar fæðu, þar sem fita, sykur og salt eru
áberandi, hreyfingarleysi á heimili, í skóla og við
vinnu, vélrænar samgöngur og reykingar.
Hreyfingarleysi, offita og slæmt mataræði tengj-
ast oft en eru sjálfstæðir áhættuþættir sjúkdóma.
Með aukinni hreyfingu má bæta horfur um gott
heilsufar, þrátt fyrir offitu. Hreyfing virðist hafa
grundvallarþýðingu fyrir líkamlega og andlega
heilbrigði einstaklinganna.
Aðalfundur Læknafélags íslands árið 2004 vakti
athygli alþingis og ríkisstjórnar á þessum stað-
reyndum og hvatti til áætlunar á vegum stjórnvalda
til að efla lýðheilsu með víðtækri heilsurækt með
hreyfingu og bættu mataræði (2). Bent var á leiðir
í þessu skyni og hvernig verkefnið spannaði verk-
111 j
'Jh Hw /*? Jr
Hr r Imi
•r r. wá
svið margra ráðuneyta. Fagna ber þingsályktun frá
alþingi sl. vor um sama efni.
Forsenda
Alþjóðaheilbrigðisþingið, WHA, samþykkti á liðnu
ári áætlun fyrir Alþjóðaheilbrigðisstofnunina, WHO,
um alheimsátak varðandi, mataræði, hreyfingu og
heilsufar (3). í áætluninni er reifað lykilhlutverk rík-
isstjóma við verkefni þetta (4) og sagt m.a. að
• hvert ríki ætti að móta pólitíska stefnu til að
bæta mataræði og auka hreyfingu.
• ríkisstjórnir skipti sköpum við að ná fram
varanlegum breytingum í lífsstíl.
• heilbrigðisráðherrar beri höfuðábyrgð á að
samræma og örva aðgerðir annarra ráðherra
og ríkisstofnana.
• við stefnumótun og aðgerðir opinberra aðila
sé aflað breiðrar samstöðu.
• ríkisstjórnir sjái um að neytendur hafi við-
unandi og hlutlægar upplýsingar vegna vals
á neysluvöru og að þær séu í samræmi við
menntunarstig þjóðarinnar.
• landbúnaðarstefna og önnur stefna um mat-
vælaframboð sé í samræmi við markmið um
að vernda og bæta lýðheilsu.
• móta þurfi stefnu á öllum stigum þjóðfélags-
ins til að auka hreyfingu.
• endurskoða þurfi námsskrár til að bæta mat-
aræði og auka hreyfingu.
• forvarnir séu grundvallarskylda heilbrigð-
isþjónustunnar.
• ríkisstjórnir ættu að festa fé í eftirfylgni,
rannsóknum og mati á áhættuþáttum.
• að heilbrigðisráðuneyti og lýðheilsustofnanir
eigi að beina kröftum sínum og sérþekking
í þágu alþjóðasamstarfs og aðstoðar við þá
sem móta stefnu.
• að litið verði á fyrirbyggjandi verkefni af
þessu tagi sem fjárfestingu til framtíðar og
þýðing góðrar heilsu þjóðanna fyrir vöxt
efnahagslífsins verði viðurkennd.
Kristófer Þorleifsson,
Finnbogi Kjartansson,
Kristinn Tómasson og
Ástríður Jóhannesdóttir á
aðalfundi LÍ.
Heimildir
1. The world health report
2002. Reducing risks,
promoting healthy life,
Geneve, World Health
Organiztion, 2002.
2. Samþykktir aðalfundar
Læknafélags íslands 2004
(3), Læknablaðið 2004; 90:
777.
3. Resolution of the World
Health Assembly, WMA
57.17, Global strategy on
diet, physical activity and
health. 22/05/2004.
4. Global strategy on diet,
physical activity and health,
World Health Organization
2004:6-11.
Læknablaðið 2005/91 847