Læknablaðið - 15.11.2005, Blaðsíða 83
LAUSAR STÖÐUR / STYRKIR / ÞING
Sérfræðingur
í geðlækningum
(Hj)
Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri
Laus er til umsóknar staða sérfræðings í geðlækningum
við geðdeild sjúkrahússins sem skiptist í bráðalegudeild,
dagdeild og göngudeild. Umsækjandi skal hafa fullgild
réttindi í geðlækningum. Starfinu fylgir vaktskylda á geð-
deild, þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta, þjálfun aðstoð-
ar- og deildarlækna, auk þátttöku í rannsóknavinnu.
Starfsskylda er við heilbrigðisstofnanir á Norður- og
Austurlandi.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sjúkrahús-
lækna, samanber kjarasamning Læknafélags íslands og
fjármálaráðherra.
Starfið veitist frá 1. janúar 2006.
Umsóknarfrestur er til 15. nóvember 2005.
Við ráðningu verður lögð áhersla á faglega þekkingu
ásamt hæfileikum á sviði samskipta, samvinnu og sjálf-
stæðra vinnubragða.
Umsóknir, á þartil gerðum eyðublöðum, ásamt meðfylgj-
andi gögnum skulu berast í tvíriti til Þorvaldar Ingvars-
sonar, framkvæmdastjóra lækninga, 600 Akureyri,
thi@fsa.is og gefur hann jafnframt nánari upplýsingar
ásamt Sigmundi Sigfússyni forstöðulækni geðdeildar,
sími 463 0100.
Öllum umsóknum verður svarað.
Félag íslenskra gigtlækna
Vísindastyrkir
Vísindasjóður Félags íslenskra gigtlækna auglýsirtil umsóknar allt að þrjá rannsóknastyrki.
Umsóknarfrestur er til 9. janúar 2006. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást hjá Helga Jónssyni, formanni
sjóðsins, Landspítala Fossvogi, í síma 543 6465, helgijon@landspitali.is
Opinn dagur lyfjafræðinnar
Dagur lyfjafræðinnar verður haldinn þann 5. nóvember 2005 í Iðnó-Tjarnarbakkanum.
Umfjöllunarefnið er að þessu sinni nýjungar og framtíðarsýn í lyfjafræði.
Dagskrá hefst klukkan 14.00 og er öllum opin
Fyrirlesarar verða meðal annars Dr. Martin Todd, Portfolio and Planning Manager, Global Sciences and Information,
AstraZeneca Pharmaceuticals, Macclesfield, UK. og Hákon Hákonarsson, MD, framkvæmdarstjóri klínskra rann-
sókna hjá íslenskri erfðagreiningu.
Nánari upplýsingar á heimasíðu Lyfjafræðingafélags íslands, www.lfi.is
Lyfjafræðingafélag íslands
Læknablaðið 2005/91 883