Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.11.2005, Side 83

Læknablaðið - 15.11.2005, Side 83
LAUSAR STÖÐUR / STYRKIR / ÞING Sérfræðingur í geðlækningum (Hj) Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri Laus er til umsóknar staða sérfræðings í geðlækningum við geðdeild sjúkrahússins sem skiptist í bráðalegudeild, dagdeild og göngudeild. Umsækjandi skal hafa fullgild réttindi í geðlækningum. Starfinu fylgir vaktskylda á geð- deild, þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta, þjálfun aðstoð- ar- og deildarlækna, auk þátttöku í rannsóknavinnu. Starfsskylda er við heilbrigðisstofnanir á Norður- og Austurlandi. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sjúkrahús- lækna, samanber kjarasamning Læknafélags íslands og fjármálaráðherra. Starfið veitist frá 1. janúar 2006. Umsóknarfrestur er til 15. nóvember 2005. Við ráðningu verður lögð áhersla á faglega þekkingu ásamt hæfileikum á sviði samskipta, samvinnu og sjálf- stæðra vinnubragða. Umsóknir, á þartil gerðum eyðublöðum, ásamt meðfylgj- andi gögnum skulu berast í tvíriti til Þorvaldar Ingvars- sonar, framkvæmdastjóra lækninga, 600 Akureyri, thi@fsa.is og gefur hann jafnframt nánari upplýsingar ásamt Sigmundi Sigfússyni forstöðulækni geðdeildar, sími 463 0100. Öllum umsóknum verður svarað. Félag íslenskra gigtlækna Vísindastyrkir Vísindasjóður Félags íslenskra gigtlækna auglýsirtil umsóknar allt að þrjá rannsóknastyrki. Umsóknarfrestur er til 9. janúar 2006. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást hjá Helga Jónssyni, formanni sjóðsins, Landspítala Fossvogi, í síma 543 6465, helgijon@landspitali.is Opinn dagur lyfjafræðinnar Dagur lyfjafræðinnar verður haldinn þann 5. nóvember 2005 í Iðnó-Tjarnarbakkanum. Umfjöllunarefnið er að þessu sinni nýjungar og framtíðarsýn í lyfjafræði. Dagskrá hefst klukkan 14.00 og er öllum opin Fyrirlesarar verða meðal annars Dr. Martin Todd, Portfolio and Planning Manager, Global Sciences and Information, AstraZeneca Pharmaceuticals, Macclesfield, UK. og Hákon Hákonarsson, MD, framkvæmdarstjóri klínskra rann- sókna hjá íslenskri erfðagreiningu. Nánari upplýsingar á heimasíðu Lyfjafræðingafélags íslands, www.lfi.is Lyfjafræðingafélag íslands Læknablaðið 2005/91 883

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.