Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.2009, Blaðsíða 67

Læknablaðið - 15.10.2009, Blaðsíða 67
Haraldur Briem sóttvarnalæknir hbriem@landlaeknir.is U M R Æ Ð U R A N D S TÆ Ð O G FRÉTTIR SJÓNARMIÐ Inflúensufaraldur Heimsfaraldur inflúensu sem stafar af nýjum stofni inflúensuveirunnar er hafinn á þessu ári eftir rúmlega 40 ára hlé. Fólk hefur ekki mótefni gegn inflúensuveirunni, ólíkt árstíðabundinni inflúensu. Slíkur faraldur berst því greiðlega um heiminn og er sýkingartíðnin jafnan hærri en sést við árstíðabundna inflúensu (30-50% vs. 5%) og má því búast við fleiri veikum og fleiri dauðsföllum þótt ekki verði hann hlutfallslega skæðari en venjulega inflúensan. Til eru nokkuð haldgóðar upplýsingar um fjóra heimsfaraldra inflúensu frá árinu 1890. Þessir faraldrar allir eiga það sammerkt að ganga í bylgjum. Oftast ganga stærstu bylgjurnar yfir á vetrartíma þótt fyrstu bylgjur geti komið upp á hvaða árstíma sem er. Ef litið er aftur til ársins 1918 hófst heimsfaraldur inflúensu í Bandaríkjunum í mars þá eins og nú. Hann barst til Evrópu og Islands um vorið þá eins og nú og gekk hér undir nafninu júlíinflúensan sem þótti væg pest. Um haustið 1918 reið önnur bylgja faraldursins yfir heiminn og var þá orðin að mannskæðri drepsótt sem nefnd var spænska veikin. Önnur bylgjan barst til Islands í október 1918. Þá var upphaflega reynt að gera lítið úr veikinni enda júlíinflúensan talin væg. Lítið var því um sóttvarnaráðstafanir á suðvesturhorni landsins, en afleiðingarnar urðu afdrifaríkar, einkum fyrir fólk á aldrinum 20-40 ára. Þetta var spænska veikin en henni hafa verið gerð góð skil í Læknablaðinu á þessu ári. Heimsfaraldursins 2009 varð fyrst vart á íslandi í maí. Einungis fá tilfelli greindust framan af sumri en frá því um miðjan júlí fór tilfellum fjölgandi. Við getum því talað um júlíflensuna 2009 eins og gert var 1918. Við getum líka sagt eins og 1918 að júlíflensan var tiltölulega væg. Ef vísbendingar ganga eftir er júlíinflúensan 2009 að hjaðna um þessar mundir. Ef að líkum lætur ríður önnur bylgja heims- faraldursins yfir síðar í haust eða komandi vetur. Ekkert verður fullyrt um umfang faraldursins eða hve skæður hann verður. Reynslan bendir þó til þess að hann verði mun umfangsmeiri en júlíinflúensan ef ekkert er að gert. Frá Ástralíu og Nýja-Sjálandi berast þær fréttir að þótt almennt sé inflúensan tiltölulega væg þá er hún öðruvísi en árstíðarbundin inflúensa að því leyti að þeir sem veikjast mest er tiltölulega ungt fólk sem þarf á gjörgæslumeðferð að halda. Það hefur reynst sjúkrahúsum íþyngjandi. Frá árinu 2005 hefur verið unnið kerfisbundið að því að búa heilbrigðisþjónustuna og þjóðfélagið undir heimsfaraldur inflúensu. Leitast hefur verið við að hafa í landinu viðbúnað innan skynsamlegra marka til að takast á við skæða farsótt. Keypt hafa verið meðal annars inflúensulyf fyrir hluta þjóðarinnar (35-40%) og gerður var framvirkur samningur um kaup á inflúensubóluefni gegn heimsfaraldri fyrir helming þjóðarinnar ef bólusetja þarf hvern og einn í tvígang. Ætlunin er að bjóða fólki með vissa undirliggjandi sjúkdóma bólusetningu sem þola inflúensu illa og jafnframt þunguðum konum, heilbrigðisstarfsmönnum og öðrum sem mikilvægir eru fyrir öryggi samfélagsins. Fari svo að einn skammtur af bóluefni dugi til að öðlast vernd mun bóluefnið sem berst væntanlega til landsins í október til desember duga fyrir alla þegna samfélagsins. Ef vel tekst til með að bólusetja þjóðina í tæka tíð fyrir næstu bylgju heimsfaraldursins verðum við í fyrsta skipti vel búin til að verjast heimsfaraldri. Það mun skipta heilsu fólksins í landinu, heilbrigðisþjónustuna og atvinnulífið miklu. Það er kunnara en frá þurfi að segja að til eru þeir sem tala gegn bólusetningum. Ýmsu er borið við. Hún er óþörf - en hver veit? Hún er skaðleg - engar rannsóknir benda þó til þess! Áratuga góð reynsla er af bólusetningum gegn inflúensu. Það er afar mikilvægt að heilbrigðisstarfsmenn sinni bólusetningunni vel og láti bólusetja sig. Þeir gagnast sjúklingum sínum best ef þeir eru frískir. Minni líkur eru á að bólusettir heilbrigðisstarfsmenn smiti skjólstæðinga sína eða beri inflúensuna inn á heimili sín og smiti sína nánustu. LÆKNAblaðið 2009/95 703
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.