Læknablaðið - 15.10.2009, Blaðsíða 86
UMRÆÐUR 0 G FRETTIR
FJALLALÆKNAR
Á Flateyjardalsheiði,
frá vinstri: Engilbert
Sigurðsson, Magnús
Gottfreðsson, Tómas
Guðbjartsson og Finnur
Sveinsson.
Myndina tók Dagný
HeiÖdal.
Ww
FIFL
Merki Félags íslenskra
fjallalækna sem Guðbjörg
Tómasdóttir hannaði og líkir
eftir hjartalínuriti.
FIFLa fréttir: Náttfaravíkur
og GPS námskeið
Tómas
Guðbjartsson
Engilbert
Sigurðsson
Haustferð FÍFL var farirt helgina 4. - 6. september
síðastliðinn í frábæru veðri. Að þessu sinni
var gengið í Náttfaravíkur vestan Húsavíkur
frá bænum Björgum. í þessum grösugu en
snjóþungu víkum mun Náttfari, þræll Garðars
Svavarssonar, hafa haft vetursetu nokkra vetur
í kringum 970. Gengið var vestur yfir Víknafjöll
og niður á Flateyjardalsheiði. Eftir að Dalsá hafði
verið vaðin var komið í sæluhús í Heiðarhúsum
og gist þar. Daginn eftir var haldið áfram suður
Flateyjardalsheiði að Dalsmynni, en alls var
gangan um 45 km. Valgarður Egilsson læknir
var FIFL innan handar við undirbúning þessarar
skemmtilegu ferðar, en hann hefur oft verið
fararstjóri á þessum slóðum. Ásgeir Böðvarsson
læknir á Húsavík nýtti einnig ættartengsl sín við
bændur á svæðinu í þágu hópsins og eru þeim
færðar þakkir fyrir aðstoðina. Skoða má myndir úr
ferðinni og úr öðrum fjallaferðum félagsmanna á
árinu á síðunni FÍFL á Facebook.com
Fimmtudaginn 8. október fyrirhugar FÍFL nám-
skeið fyrir lækna þar sem kennd verður notkun
GPS-staðsetningartækja. Þorvaldur Þórsson
hátindahöfðingi og tölvunarfræðingur verður
leiðbeinandi á námskeiðinu sem haldið verður
í Hringssal og stendur frá kl. 20-22. Námskeiðið
er sérstaklega ætlað göngufólki en getur einnig
nýst þeim sem nota slík tæki við siglingar
og fjallahjólreiðar. Æskilegt er að þátttakendur
taki með sér GPS-staðsetningartæki og gjarnan
ferðatölvu. Þátttökugjald er 1500 kr. og er fjöldi
þátttakenda takmarkaður við 20 manns.
Vísindasjóður Félags íslenskra
heimilislækna haustúthlutun 2009
Vísindasjóður Félags íslenskra heimilislækna úthlutar styrkjum til vísindarannsókna tvisvar á ári.
Umsóknir fyrir haustúthlutun 2009 þurfa að berast sjóðnum fyrir 20. október næstkomandi og ber að skila rafrænt
til magga@iis.is á þartilgerðum eyðublöðum ásamt rannsóknar- og fjárhagsáætlunum, eða framgangsskýrslu ef um
endurumsókn sama verkefnis er að ræða.
Lög vísindasjóðs og eyðublöð er að finna á heimasíðu FÍH. Nánari upplýsingar veitir Jóhann Ágúst Sigurðsson
johsig@hi.is.
Stjórn Vísindasjóðs FÍH
722 LÆKNAblaðiö 2009/95