Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.2009, Blaðsíða 7

Læknablaðið - 15.10.2009, Blaðsíða 7
RITSTJÓRNARGREINA Högni Óskarsson geðlæknir hogni@humus.is Gestur Þorgeirsson hjartalæknir gesturth@landspitali.is LR 100 ára - Læknar og samfélagið Eitt hundrað ár eru ekki langur tími í sögu læknisfræðinnar almennt, enda nær sú saga örugglega langt aftur fyrir elstu skrifuðu heimildir. Mannskepnan hefur örugglega reynt að bæta heilsu sína og græða sár sín frá því hún fór að ganga um á þessari jörð. í sögu lækninga á íslandi eru eitt hundrað ár ekki heldur svo langur tími. Skráðar heimildir um lækningar á íslandi er að finna í íslendingasögum og í annálum. Óhætt er að fullyrða að frá næstsíðustu aldamótum hafi framfarir í læknisfræði orðið hvað stórstígastar; sama hvort litið er til rannsókna á uppruna og eðli sjúkdóma, greiningar þeirra eða meðferðar. Bætt heilsa, auknar lífslíkur og lífslengd, eru vissulega ekki aðeins afrakstur þessa heldur ráða hér miklu almennir hollustuhættir, mataræði og betri félagslegur aðbúnaður borgaranna. Það er því ánægjulegt að hugsa til þess að allt frá stofnun Læknafélags Reykjavíkur á haustmánuðum 1909 og á fyrstu áratugunum í sögu þess var félaginu ekki aðeins beitt til þess að bæta alla starfsaðstöðu lækna og þjónustu við sjúklinga, heldur lagði það einnig mikla áherslu á almenningsfræðslu um heilbrigði og hollustu, á sóttvarnir almennt og vamir gegn kynsjúkdómum. Læknafélag Reykjavíkur tók líka frumkvæði í eða hvatti til stofnunar félaga eins og Berklavarnafélags Islands og Rauðakrossdeildar Alþjóða Rauða krossins á íslandi, svo að fátt eitt sé nefnt. Félagið hefur beitt kröftum sínum á svipaðan hátt í gegnum alla síðustu öld og fram á þá tuttugustuogfyrstu. Vissulega hefur þetta starf verið samofið þróun Læknafélags íslands, sem hefur haft frumkvæðið meira á sínum höndum eftir að því óx fiskur um hrygg. En vegna stærðar sinnar, og ekki síst þar sem mestu vaxtarbroddar heilbrigðisþjónustunnar hafa verið á félagssvæði Læknafélags Reykjavíkur, þá hefur félagið, að öðrum ólöstuðum, verið hryggjarstykkið í starfi Læknafélags íslands. Því má þó bæta við að það hefur verið lán íslenska heilbrigðiskerfisins hve íslenskir læknar, hvar sem þeir hafa starfað eða búið á landinu, hafa verið ábyrgir og samhentir í að tengja læknisfræðina við þá félagslegu þætti sem ráða miklu um líf og heilsu. Það hafa þeir gert í gegnum félög sín, með þátttöku í stjórnmálum í héraði eða á Alþingi, og oft með öflugu frumkvöðlastarfi. Þessum þáttum hafa læknar sinnt samhliða meginmarkmiði sínu að lækna og líkna, að sinna rannsóknum og fræðslu. Það er því engin tilviljun að stjórn Læknafélags Reykjavíkur skuli á þessum tímamótum hafa ákveðið að yfirskrift afmælishátíðarinnar skuli vera „Læknirinn og samfélagið". Fyrri dagurinn er helgaður læknum, „Læknaklúbburinn", en klúbburinn verður opinn læknum kl. 15-18 í húsnæði læknafélaganna. Þar verður bæði litið um öxl og rýnt inn í framtíðina; þar verður röð stuttra rökræðna þar sem tekist verður á um nokkur álitamál heilbrigðiskerfisins, léttar veitingar á milli. En megináherslan verður á klúbbstemninguna; að hittast og rabba saman, sér og öðrum til ánægju. Laugardagurinn er ætlaður til fræðslu fyrir almenning undir yfirskriftinni „Heilsa - ábyrgð okkar allra". Nokkur efnisatriði verða tekin fyrir, ekki í formi langra fyrirlestra heldur verða settir upp básar fyrir hvert efni, og verður fræðslunni að miklu leyti miðlað með veggspjöldum, margmiðlunartækni og rabbi við þá sem vilja fræðast um ákveðin atriði. Rúsínan í pylsuendanum er svo Listatorg lækna. Eru allir læknar sem hafa áhuga á að sýna verk sín hvattir til að koma þeim á framfæri. Um kvöldið verður svo hin eiginlega afmælisveisla, með mat og drykk og skemmtan. Ýmislegt óvænt mun koma upp þar. Að lokum. Eitt hundrað ára afmæli er ekki markmið í sjálfu sér. Þetta eru tímamót, sem vonandi verður hægt að líta til seinna meir sem áfanga, þar sem læknar blésu til áframhaldandi sóknar í heilbrigðismálum, landi og þjóð til heilla. LÆKNAblaðið 2009/95 643
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.