Læknablaðið - 15.10.2009, Qupperneq 3
Mikilvægt samstarf
Norræna læknaráðið fundaði á dögunum í Hlíðasmára. Ráðið skipa formenn landsfélaga lækna á Norðurlöndunum og er
mikilvægur samstarfsvettvangur um norræn málefni lækna og ekki síður útávið til Evrópu og alþjóðlega. Efni fundarins voru
hagsmunir lækna sem starfa á Norðurlöndunum og skyldur viðkomandi læknafélags gagnvart læknum sem flust hafa á milli
landanna. Að sögn Birnu Jónsdóttur formanns L( hefur sameiginleg stefnumótun læknaráðsins á alþjóðlegum vettvangi skilað
góðum árangri á undanförnum árum.
Á myndinni eru f.v.: frá norska læknafélaginu Björn Oscar Hoftvedt læknir, Torunn Janbu formaður, frá sænska læknafélaginu
Gabriella Blomberg starfsmaður, Bente Hyldahl Fogh framkvæmdastjóri danska læknafélagsins, Heikki Pálve framkvæmdastjóri
finnska læknafélagsins, Eva Nilson Bágenholm formaður sænska læknafélagsins, Timo Kaukonen formaður finnska
læknafélagsins, Sólveig Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri LÍ, HSkan Wittgren læknir frá sænska læknafélaginu og Birna Jónsdóttir
formaður Ll.
LISTAMAÐUR MÁNAÐARINS
Arnfinnur Amazeen (f. 1977) fluttist til Kaupmannahafnar
eftir nám í Listaháskólanum og framhaldsnám í Glasgow
í Skotlandi, þaðan sem hann útskrifaðist árið 2006.
Á samsýningu Kling og Bang
gallerísins í Kaupmannahöfn á
dögunum sýndi hann nýtt verk
sem ber heitið „Dronningens
konsorganer og gíftkirtler"
(Æxlunarfæri og eiturkirtlar
drottningarinnar, 2009, 70x100
sm). Þar getur að líta gamla
náttúrufræðiteikningu sem sýnir
líffæraskipan býflugnadrottningar
en Arnfinnur hefur tekið hana inn
í tölvu og krotað þar yfir hluta
hennar. Allar upplýsingar sem
fylgja gömlu myndinni eru huldar,
nema þær sem endursþeglast í
heiti verksins. Úr verður hálfgerður
orðaleikur enda verkið unnið og
sýnt í Danmörku þar sem drottning
ræður ríkjum. Þá kemur það fram
nú á þeim tíma þegar umræðan
um orsakir örrar fækkunar býflugna
í veröldinni er í algleymingi.
Sjálfur segir listamaðurinn um
verk sín að þau séu einhvers konar „útúrsnúningur á
fundnu efni“. Stundum hefur verið sagt um þessa gerð
myndlistar að þar sé iistamaðurinn í hlutverki sjónræns
plötusnúðar sem tekur inn efni allsstaðar að og blandar
á þann hátt sem þykir hæfa hverju sinni. Þá skiptir
samhengisleysið ekki síður máli en það samhengi sem
kann að leynast í blönduninni,
eins og hugmyndafræðingar
póststrúktúralismans sýndu fram
á á sjöunda áratugnum. Vikið er
frá hugmyndinni um afmarkað
inntak og heild með áherslu á gildi
fjölbreyttrar túlkunar. Arnfinnur
leikur sér gjarnan í þessum anda
að samsetningu myndar og texta,
stundum eru viðfangsefnin úr
ólíkum áttum eða eins og hér, þar
sem hann afbyggir upplýsingar
sem eru fyrir hendi í einni og sömu
myndinni. Verk hans bera með
sér kæruleysislegt yfirbragð, rétt
eins og gula krotið er dæmi um,
en það er meðvituð ákvörðun því
eins og dæmin sanna er Arnfinnur
sérstaklega drátthagur þegar sá
gállinn er á honum. Ásamt því að
vinna með teikningar notar hann
Ijósmyndir og innsetningar auk
áherslunnar á texta eins og áður
er getið um. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu
listamannsins: http://www.arnfinnuramazeen.dk/
Markús Þór Andrésson
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL jOURNAL
www. laeknabladid. is
Hlíðasmára 8,
201 Kópavogi
564 4104-564 4106
Útgefandi
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Jóhannes Björnsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Bryndís Benediktsdóttir
Engilbert Sigurðsson
Gunnar Guðmundsson
Inga S. Þráinsdóttir
Tómas Guðbjartsson
Þóra Steingrímsdóttir
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður og Ijósmyndari
Hávar Sigurjónsson
havar@iis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Dögg Árnadóttir
dogg@iis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@iis.is
Uþplag
1800
Áskrift
9.500,- m. vsk.
Lausasala
950,- m. vsk.
Prentun, bókband
og pökkun
Prentsmiðjan Oddi
Höfðabakka 3-7
110 Reykjavík
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt
til að birta og geyma efni
blaðsins á rafrænu formi,
svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita
með neinum hætti, hvorki
að hluta né í heild án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru
skráðar (höfundar, greinarheiti og
útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna:
Medline (National Library of
Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation
Reports/Science Edition og
Scopus.
The scientific contents of the
lcelandic Medical Journal are
indexed and abstracted in
Medline (National Library of
Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation
Reports/Science Edition and
Scopus.
ISSN: 0023-7213
LÆKNAblaðlð 2009/95 639