Læknablaðið - 15.10.2009, Blaðsíða 73
UMRÆÐUR 0 G FRÉTTIR
TÓBAKSVARNAÞING
Ögmundur
Jónasson
heilbrigðisráðherra
vitnar ífrétt
Morgunblaðsins
um skaðsemi
reykinga.
Ögmundur ávarpar tóbaksvarnaþingið.
Heimilislækningafrömuðirnir Sigurbjörn Sveinsson og Jóhann Ágúst Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri
Sigurðsson.
Krabbameinsfélags íslands, og Birna
Jónsdóttir, formaður LÍ.
Jón Steinar Jónsson heimilislæknir Garðabæ,
Sigurður Böðvarsson krabbameinsiæknir
og Mikael Clausen barnalæknir voru í hópi
þeirra lækna sem ræddu um áhrif reykinga á
allar sérgreinar læknisfræðinnar.
deyja þrefalt fleiri úr reykingum en allur sá fjöldi
sem deyr af öðrum ástæðum en sjúkdómum (non-
medical). Það eru dauðsföll vegna glæpa, slysa,
náttúruhamfara, eldsvoða og þess háttar."
Karl sagði tölfræðina skýra. „Þrjátíu og
fimm ára gamall maður sem reykir ekki á 81%
möguleika á að ná 75 ára aldri. Sá sem reykir á 58%
möguleika á að ná sama aldri. Þeir sem hætta eiga
hins vegar möguleika á að vinna þennan mun upp
og ná sömu lífslíkum," sagði Karl.
Eflaust léttir einhverjum reykingamanni við
það og hugsar með sér að málinu sé bjargað með
því að hætta að reykja tímanlega. Þar stendur
hins vegar hnífurinn í kúnni því í máli Magnúsar
Jóhannssonar prófessors kom nefnilega fram
að líkurnar á því að geta hætt reykingum eru
hverfandi; aðeins 2-4% þeirra sem hætta að reykja
eru enn reyklausir ári síðar. Þetta eru reyndar þeir
sem hætta af eigin rammleik því líkurnar á árangri
aukast eftir því sem meiri aðstoðar við að hætta er
leitað. Magnús færði sterk rök fyrir því að nikótín
ætti að flokka sem lyf og/eða fíkniefni þar sem
það væri meira vanabindandi en heróín, kókaín
og áfengi, einnig meira bráðdrepandi en þessi
þrjú efni og líkurnar á að geta hætt notkun þess
væru umtalsvert minni en hjá þeim sem háðir eru
heróíni, kókaíni eða áfengi. „Ef nikótín kæmi fram
í dag yrði það umsvifalaust bannað bæði sem eitur
og ávanabindandi efni." Magnús benti ennfremur
á að miðað við veikindi og dauðsföll kæmist
ekkert fíkniefni með tærnar þar sem nikótín hefði
hælana. „Nikótín er langhættulegasta fíkniefni
sem við þekkjum."
Enginn er frjáls fíkill
Valgerður Rúnarsdóttir, sérfræðingur í fíknsjúk-
dómum, tók upp þennan þráð og rakti hversu
erfitt væri fyrir nikótínista að hætta. „Reykingar
eru stærsta mögulega fyrirbyggjandi ástæða
fyrir dauðsföllum á Vesturlöndum. Fyrir utan
peningaaustur tóbaksframleiðenda í markaðs-
setningu er það fíknin sjálf sem viðheldur
reykingum. Hún er undirrótin að þeim gríðarlega
félagslega, efnahagslega og heilsufarslega vanda
sem stafar af reykingum." Valgerður vitnaði í
ungan dreng sem vissi upp á hár hvað væri verst
við reykingar: það væri svo erfitt að hætta. „Þetta
er aðalatriðið. En það er samt ekki nóg að vita
þetta því unga fólkið byrjar samt að reykja og
einnig þrátt fyrir alla tölfræði um hversu margir
deyja fyrir sjötugt vegna reykinga. Sá sem byrjar
að reykja 15 ára er ekki með áætlun í kollinum um
að reykja næstu 30 árin. Það sem er mikilvægast er
LÆKNAblaðið 2009/95 709