Læknablaðið - 15.10.2009, Blaðsíða 59
UMRÆÐUR O G F R É T T 1 R
LÆKNAFÉLAG REYKJAVÍKUR 10 0 Á R A
L
1 9
vín mætti og ætti að ávísa í lækningaskyni. Deilur
um þetta atriði héldu áfram í mörg ár, sumir töldu
þetta hina mestu firru, aðrir ekki. Var ekki laust
við að sá grunur vaknaði upp að það væru hinir
ölkærari, sem vildu halda í vínreseptin. Tiplað var
kringum málið. Það verður að segja okkur til hróss
að aðalfundir LÍ hafa í tvígang tekið upp málefni
lækna sem eiga í vanda með ávanabindandi efni
og sett á fót stuðningskerfi fyrir þá.
Á einu sviði vímuefna er himinn og haf á milli
gamla og nýja tímans. LÍ og læknar á öðrum
vettvangi hafa beitt sér mjög ákveðið gegn
reykingum í samfélaginu og með góðum árangri.
Hins vegar var það svo að forsíðu Læknablaðsins
prýddi frá upphafi í allnokkurn tíma auglýsing
frá Tóbaksverzlun R.P. Leví: „Enginn læknir
býr sig að heiman að hann hafi ekki eitthvað af
neðantöldum tóbakstegundum, sem hlotið hafa
allra lof". Svo kom lýsing á vöruúrvalinu!
Ekki verður lokið sögulegri umfjöllun án þess
að koma að gagnagrunnsmálinu. Þar skiptist
R
O 9
stéttin í hatrammar fylkingar þar sem tekist
var á um möguleika upplýsingatækninnar og
persónuvernd, um rekstrarform og öryggi gagna
svo eitthvað sé nefnt. Þar sem undirritaður var
beinn þátttakandi í þessum deilum þá er ekki
rétt að reyna að búa til einhverja eina niðurstöðu
málsins, en samt. Deilurnar voru um margt
eðlilegar. Það var styrkur lækna að takast á fyrir
opnum tjöldum, fara í gegnum erfiða umræðu
um siðfræðileg álitamál. Stjórn LÍ sýndi líka
styrk í því að leggja sig fram við að skapa lausn
á lokasprettinum. Málið hvarf á endanum úr
umræðunni, líklega af orsökum sem tengdust ekki
beint þessari deilu.
Hér hefur verið stiklað á stóru og ekki á
skipulegan hátt. Enda var það ekki ætlunin að
að skrifa sagnfræðigrein um sögu Læknafélags
Reykjavíkur, heldur að draga fram nokkrar
svipmyndir sem sýna að hin klassísku gildi
lækna lifa enn góðu lífi á eitt hundrað ára afmæli
félagsins.
Stiklað yfir 100 ár í þróun
læknisfræðinnar
Það er ótrúlegt að setja sig í aðstæður kollega
okkar, eins og þær voru fyrir 100 árum og svo fram
eftir síðustu öld, framfarir í mörgum sérgreinum
hafa orðið slíkar. Til að skapa yfirlit um þróun
læknisfræðinnar hérlendis og alþjóðlega báðum
við forsvarsmenn sérgreina að senda blaðinu
yfirlit um helstu áfanga í þróun sinnar sérgreinar.
Svör flestra eru mjög ítarleg, en vegna takmarkaðs
rýmis urðum við að velja og hafna. í þeirri vinnu
kom upp sú hugmynd að setja upp á vefsíðu LI
yfirgripsmeiri sögu sérgreina, og yrði ábyrgð á
umsjón þeirra falin hverju sérgreinafélagi. En
þetta er seinni tíma mál.
Yfirlitið, sem hér fylgir, er um margt fróðlegt
en alls ekki tæmandi. Eðli máls samkvæmt hefur
þróun rannsóknargreina verið mestmegnis á
tæknisviði, ljósþræðir, geislar og tölvutækni hafa
drifið þá þróun áfram. í þróun margra klínískra
greina eru lyf hvað mest áberandi, en tæknin
kemur þó alls staðar nærri, jafnvel í grein eins og
geðlæknisfræði.
Hverju má svo spá um þróun næstu 10 ára,
50 eða 100? í „Læknaklúbbnum" föstudaginn 16.
október, þar sem læknar koma saman til að fagna
afmæli LR, mun Tryggvi Helgason barnalæknir
gera tilraun til að sjá fram í tímann. Hugmyndir
allra eru vel þegnar.
Gestur
Þorgeirsson
Högni
Óskarsson
Höfundarnir vilja þakka þeim
fjölmörgu læknum sem lögðu
efni til þessa verkefnis.
LÆKNAblaðið 2009/95 695