Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2002, Side 137
FEMÍNÍSK GAGNRÝNI í AUÐNINNI
fylgjenda écriture feminine, hefur \áðurkennt að með fáeinum undantekn-
ingum „hafi ekki enn verið hægt að benda á neinn texta sem hafi kven-
leikann gret'ptan í sig“ og Nancy Miller tekur svo til orða að écriture fem-
inine „upphefji framúrstefnutexta, sem séu bókmenntir sem fram komu
á síðari hluta tuttugustu aldar. Af þeim sökum séu þær því í grundvallar-
atriðum óskhyggja, ef ekki framtíðaráæthm“.14 Hvað sem því líður, er
kenningin um écriture feminine aðferð til að ræða um skrif kvenna sem
dregur aftur ffam gildi hins kvenlega og gerir gagnrýni á mismun að
meginviðfangi femínískrar gagnrýni. A undanförnum árum hafa þýðing-
ar á mikilvægum verkum eftir Juliu Kristevu, Cixous og Luce Irigaray,
ásamt hinu framúrskarandi safhxiti New French Feminism, gert ffanska
gagnrýni aðgengilegri femímskum ffæðimönnum í Bandaríkjunum.15
Enska hefðin í femínískri gagnrýni, sem hefur tekið upp fransk-fem-
ínískar og marxískar kenningar þótt hún hafi alltaf snúist mest um texta-
túlkun, hefur einnig farið að fjalla meira um ritun kvenna.16 Hvert land
hefur sína eigin útfærslu. I enskri femínískri gagnrýni, sem sækir mikið
til marxisma, er lögð áhersla á kúgun; í fransk-femínískri gagnrýni, sem
byggir á sálgreiningu, er áhersla lögð á bælingu; í bandarísk-femínískri
gagnrýni, sem byggir á textarýni, er áhersla lögð á tjáningu. Allar hafa
þær þó orðið kvenhverfar. Allar eru að leita að nýjum hugtakaforða um
kvenleika sem er laus vnð staðnaðar ímyndir veikleika.
Eins og Woolf og Cixous hafa bent á, hlýtur það að vera háskalegt og
krefjandi verkefni að skilgreina nákv'æmlega hvað greini sundur ritun
kvenna og karla. Liggur munurinn í stíl? Bókmenntagreinum? Reynslu?
Verður hann kannski til við lesturinn, eins og sumir textarýnendur
mymdu halda fram? Spacks talar um miminn í ritun kvenna sem „hárfína
aðgreiningu“ og vísar þannig til hins óræða og óhöndlanlega eðlis sem
14 Héléne Cixous, „The Laugh of the Medusa“, þýð. Keith og Paula Cohen, Signs 1
(sumar 1976), bls. 878. Nancy K. Miller, „Emphasis Added: Plots and Plausibilities
in Women’s Fiction", í þessari bók [The New Feminist Criticism], bls. 339-60.
15 Til að fá yfirlit, sjá Domna C. Staunton, „Language and Revolution: The Franco-
American Dis-Connection“, í Eisenstein ogjardine, Futnre ofDifference, bls. 73-87,
og Elaine Marks og Isabelle de CourtivTon, ritstj., New French Feminisms (Amherst:
University of Massachusetts Press, 1979); allar tilvísanir í The New French Femin-
isms, skammst. NFF, verða hér eftir með nafni þýðanda innan sviga í textanum.
16 Tvö meginverk eru uppistaðan í yfirlýsingu Marxist-Feminist Literature Collective,
„Women's V\rriting,“ og ritgerðir úr fýrirlestrum við Oxfordháskóla um konur og
bókmenntir, Maryjacobus, ritstj., Women Writing and Writing about Women (New
York: Bames & Noble Imports, 1979).
135