Þjóðlíf - 01.03.1988, Qupperneq 3
BRÉFFRÁLESENDUM
Farið varlega
Ég les reglulega blaðið og hef kunnað því
vel. Hins vegar fannst mér þið fara alveg á
mörkin með njósnamálinu. Eiginlega get ég
ekki betur séð en þið hafið vakið athygli á
manninum sem er saklaus. Þannig hafið þið
orðið til þess að benda öllum á hann og það
gæti komið honum illa í framtíðinni. Auðvit-
að vita allir að það er njósnað á Islandi, en
það er ekki að ástæðulausu. Það er alls stað-
ar gert. Mér finnst þið komin ansi nálægt
Helgarpóstinum með því að gera svona og
skora á ykkur að fara varlega í þessum efn-
um.
Bragi Vestfirðingur.
Loksins, loksins..
Auðvitað grunaði mann að það væri njósnað
hér á landi, en að það væri gert með svona
opinskáum hætti grunaði mann ekki. Það var
í samræmi við ótrúverðugan málflutning
yfirmanna lögreglunnar í Reykjavík að lesa í
Þjóðlífi að yfirlögregluþjónninn í Reykjavík
segði þetta allt „tilviljanir“ og að þeir hefðu
verið á þjófavakt. Lögreglustjórinn var þó
skárri með því að játa hvorki né neita — til
að byrja með. Hins vegar fór ekki mikið fyrir
staðfestingu lögreglustjórans þegar hann
viðurkenndi njósnirnar. Þarna tókuð þið á
máli, sem alltof lengi hefur legið í þagnar-
gildi og sýnir svo ekki verður um villst að
einstaklingurinn getur ekki verið öruggur
um sig, lýðræðið tryggir honum ekki vernd
og kerfið viðurkennir ekki persónuhelgi
þrátt fyrir stjórnarskrá. Borgararnir eiga rétt
á friðhelgi, til þess höfum við lög, stjórnar-
skrá og samskiptareglur. Það má líka segja
þeim þingmönnum til hróss sem tóku málið
upp á alþingi, að þeir gera sér grein fyrir
Þjóðlíf
FRÉTTA
TlMARIT
lögrcglan
ábyrgð löggjafans í mikilvægu máli. Loksins,
loksins var fjallað um mál með vönduðum
hætti, sem skiptir alla miklu máli, og snýst
um sjálfan kjarnann: mannréttindi borgar-
anna. Hafið þökk.
Guðmundur í Garðabæ.
Klám úr sögunni
Vissulega var greinin um „herferð gegn
klámi" býsna fróðleg, þó þið liggið undir
grun um að hafa haft gaman af þessu. Hins
vegar held ég að óhætt sé að fullyrða að á
Islandi sé tæpast hægt að tala um klám af því
að hér eru engar klámbúðir eða svoleiðis
eins og er út í Þýskalandi eða annars staðar í
Evrópu. Þegar svo hræðslan við eyðni bætist
við, þarf enginn að hafa áhyggjur að mínu
mati af klámfaraldri á íslandi, það er bara úr
sögunni, hafi það einhvern tímann verið hér
á landi.
Kristbjörn
Tvíbent umfjöllun
Umfjöllun ykkar í síðasta Þjóðlífi um barátt-
una gegn klámi var forvitnileg, en bar þess
merki að það var karlmaður sem skrifaði.
Svo fannst mér það orka tvímælis hversu
margar og stórar myndir þið tölduð ykkur
þurfa að birta með greininni.
Lilja, Reykjavík.
Ögnvekjandi
upplýsingar
Greinin í síðasta tölublaði Þjóðlífs um per-
sónunjósnir var gífurlega athyglisverð og
vakti mig og marga aðra til umhugsunar um
það þjóðfélag sem við búum í. Viðbrögð
lögreglustjóra og yfirlögregluþjóns voru með
ólíkindum og ljóst að trúnaðarbrestur hefur
orðið milli lögreglunnar og fólksins í land-
inu. Það er afar brýnt að farið verði í saum-
ana á því sem raunverulega gerðist til þess að
hreinsa andrúmsloftið.
Hermann, Reykjavík.
Til hamingju!
Ég hef verið áskrifandi að Þjóðlífi nánast frá
upphafi og fylgst með því í gegnum súrt og
sætt. Sú þróun sem nú er að verða á blaðinu í
átt að vönduðu fréttatímariti er mjög
ánægjuleg, enda ekkert annað tímarit á þeim
markaði.
Ég les erlend fréttatímarit að staðaldri og
þó auðvitað sé ekki réttlátt að bera saman
svona blöð, þá finnst mér mesta furða
hvernig þetta gengur hjá ykkur. Ég sé ástæðu
til að óska ykkur til hamningju.
Jóhanna
TRYGGING
ÞADVARORDID
TRYGGING HF
LAUGAVEG1178 SIMI621110
3