Þjóðlíf - 01.03.1988, Side 23
INNLENT
Frumvarp á Alþingi
„Burt með
lánskj ar avísitöluna“
Vaxandi andstaða við lánskjara-
vísitölu. Albert Guðmundsson
alþingismaður: Þeir sem fá fé að
láni eru þrcelar kerfins. Astœðan
fyrir því að lánskjaravísitölunni
er viðhaldið er sterk staða nokk-
urra fjármagnseigenda.
— Ég hef í mörg ár barist gegn þessari vísi-
tölu, líka þegar ég var í ríkisstjórn á sínum
tíma, sagði Albert Guðmundsson formaður
Borgaraflokksins í viðtali við I>jóðlíf, en
hann hefur lagt fram frumvarp á alþingi um
að leggja niður lánskjaravísitöluna eða að
tekin verði upp launavísitala. Að undan-
förnu hafa æ fleiri ráðist gegn lánskjaravísi-
tölunni og rná þar nefna greinar dr. Magna
Guðmundssonar í Morgunblaðinu og Stefáns
Ingólfssonar í DV nýverið. Auk þess hefur
Eggert Haukdal reifað andstöðu við láns-
kjaravísitöluna á alþingi. „Menn eru þrælar
þessarar vísitölu“, sagði Albert.
„Það gengur ekki lengur að verðmæti ork-
unnar, sem maðurinn býr yfir sé minna met-
in en verðmæti þeirrar krónu sem hann tekur
að láni. Þetta er vanvirða við manneskjuna.
Þegar launavísitalan var felld niður á sínum
tíma var það gert á þeirri forsendu að það
stæði bara í stuttan tíma, síðan yrði láns-
kjaravísitalan lögð niður á eftir. Staðreynd
málsins er sú að ég fékk aldrei samþykki fyrir
því í síðustu ríkisstjórn að lánskjaravísitalan
yrði felld niður, en það hefur verið baráttu-
mál mitt lenti".
En hvers vegna heldur þú að þessari óvin-
sælu vísitölu sé við haldið hér á landi?
„Ég veit það ekki, ég hef t.d. sagt frá því
að ég geng með kvittun frá manni, sem fékk
80 þúsund krónu lán 1980. Þessi maður stóð
vel í skilum, en árið 1985, fimm árum eftir að
hann fékk lánið, skuldaði hann 539 þúsund
krónur. Þetta gengur auðvitað ekki. Það er
engurn hagur af þessari vísitölu nema fjár-
magnseigendunum".
Ekki stjórna þeir öllum ríkisstjórnarflokk-
unum?
„Ja, ég geng nú svo langt að halda að í
einum ákveðnum stórum flokki séu valda-
miklir menn sem eigi það mikið lánskjara-
vísitölutryggt fé á vöxtum að þeir verji vísi-
Albert Guðmundsson kveður valdamikla
menn í stjórnmálaflokkum eiga sjálfa svo
mikið lánskjaravísitölutryggt fé að þeir
verji vísitöluna fram í rauðan dauöann.
töluna fram í rauðan dauðann. Þetta eru fjár-
magnseigendur sem hafa hag af að viðhalda
þessu kefi. En fólkið, sem tekur fé að láni,
það er í þrældómsoki þessara manna", sagði
Albert Guðmundsson formaður Borgara-
flokksins að lokum.
- óg
Fæðingarorlof
Oánægja með fæðingastyrk fyrir fæðingu
Óánægju hefur gætt meðal nokkurra
þeirra mæðra í fæðingarorlofi sem þurfa að
þiggja fæðingarstyrk áður en sjálf fæðingin á
sér stað. Um síðustu áramót tóku gildi breyt-
ingar á lögum um fæðingarorlof sem var
lengt í fjóra mánuði. í lögunum er skýrt tekið
fram að verðandi mæðrum sé heimilt að hefja
töku fæðingarorlofs allt að einum mánuði
áður en fyrirhuguð fæðing á sér stað. En
Greiðslur Tryggingarstofnunar miðast
við heila mánuði þannig aö ef kona fæðir
seint í mánuði fær hún greitt fyrir þann
mánuð allan og á þá e.t.v. ekki nema þrjá
mánuði í fæðingarorlof eftir fæðingu
barnsins.
þeim er það þó engan veginn skylt og oftast
vilja konur fá sinn fæðingarstyrk í fjóra mán-
uði eftir fæðingu. En nú hefur komið í ljós að
greiðslur Tryggingastofnunar miðast við
heila mánuði þannig að ef kona fæðir seint í
mánuði fær hún greitt fyrir þann mánuð allan
og á þá ekki eftir nema þrjá mánuði í fæðing-
arorlof eftir fæðingu barnsins.
Vilbog Hauksdóttir, lögfræðingur hjá
Tryggingastofnun, staðfesti í samtali við
Þjóðlíf að slík tilvik kæmu oftlega upp og
hefði gætt nokkurrar óánægju meðal kvenna
vegna þessa. „Við þessu er ekkert að gera
eins og lögin eru nú“, sagði hún.
Eitt ráð að lokum til verðandi foreldra:
„Reynið að stíla getnaðinn á fæðingu í byrj-
un mánaðar ef þið viljið njóta fjögurra mán-
aða fæðingarorlofsins með nýja fjölskyldu-
meðliminum!"
Ómar Friðriksson.
23