Þjóðlíf - 01.03.1988, Side 28

Þjóðlíf - 01.03.1988, Side 28
hlut að máli og fyrirtækið var styrkt með margvíslegum hætti af þingi, þjóð og ríkis- stjórnum. Engu að síður hefur það þótt sér- stætt við þetta fyrirtæki, að það telst vera „einkafyrirtæki" meðan stærstu flugfélög annars staðar í Evrópu eru að stórum hluta ríkiseign. 1979 áttu Flugleiðir í verulegum erfiðleik- um og hljóp þá ríkisstjórnin undir bagga með félaginu og eignaðist 20% hlutafjár og full- trúa í stjórninni. í>á þótti sjálfsagt að full- trúar ríkisvaldsins fylgdust með rekstri fyrir- tækisins, sem almenningur hafði lagt fé í. En andrúmsloftið er fljótt að breytast og á árun- um upp úr 1983 varð það viðhorf ofan á að ríkisvaldið drægi sig hvarvetna út úr rekstri sem hægt væri. Síðasta ríkisstjórn seldi ýmsa hluti ríkisins í fyrirtækjum í samræmi við þessa stemmningu (sem stundum var kölluð „frjálshyggja") og þ.á.m. hlut ríkisins íFlug- leiðum. Eimskip á uppleið Eimskipafélag Islands var einna sterkast í Flugfélagi íslands á sínum tíma og varð sterkasti „eini" aðilinn við myndun Flug- leiða. Málið er e.t.v. flóknara en þetta; til að mynda áttu sömu fjölskyldur hluti í Flugfé- lagi Islands, Loftleiðum — og jafnvel í Eim- skip — og urðu þannig voldugastar í Flug- leiðum. Hér er um að ræða fjármagn Sveins heitins Valfells, en með honum og Sigurði Helgasyni senior var frændsemi. Við sam- eininguna styrktist staða Sigurðar að miklum mun af þessum ástæðum. Eimskip hafði átt um helming í Flugfélagi íslands, en við sam- eininguna rýrnaði hlutur þess í nýja flugfé- laginu. Annars er einnig ljóst að nokkrar Versnandi afkoma Veltan hjá Flugleiðum á síðasta ári var 8.2 milljarðar króna en afkoman versnaði um 420 milljónir frá árinu áður. Rekstrartapið var um 200 milljónir króna en við uppgjör er 14.5 milljóna króna hagnaður sem stafar af hagnaði af sölu DC8 vélar í fyrra að upphæð um 200 milljónir króna. VIÐSKIPTI Sigurður Heigason forstjóri má þola erf- iða daga við stjórnvölinn hjá Flugleiðum. Hætt við að hugmyndum um samdrátt og uppsagnir verði illa tekið. Bullandi tap á helstu flugleið og útlitið dökkt framund- an. Fær hann aðstoð frá Eimskip? fjölskyldur eru sterkastar í flestum stærstu fyrirtækjum landsins; Eimskip, Flugleiðum, Arvakri(Morgunblaðið), stórum trygginga- félögum og m.fl. Fyrirtækin eru ekki öll undir beinni stjórn ættanna og þegar komið er í annan og þriðja lið afkomenda stofnenda fyrirtækjanna eru oft utanfjölskyldumenn teknir við stjórnun þeirra. Pessi fyrirtæki eiga að sjálfsögðu blórna- og hnignunarskeið í sögu sinni eins og önnur, en síðustu árin hefur mikill þróttur verið í Eimskip, sem Hörður Sigurgestsson er forstjóri fyrir. Fyrirtækið styrktist er Haf- skip fór á hausinn auk þess sem því er talið mjög vel stjórnað. Og það er einnig sagt í viðskiptalífinu, að stjórn fyrirtækisins sé nú- tímaleg og hugmyndarík, sem enda skilar sér í hagnaði. Sumir óttast afleiðingar af einokunarað- stöðu Eimskips á flutningum til og frá land- inu. Ekkert lát er á útþenslu þess og á síðasta ári bætti fyrirtækið við eignahluta sinn í Flug- leiðum, keypti hlut Einars Arnasonar og á nú 27% í fyrirtækinu, mest allra hluthafa í Flugleiðum. Þannig er Eimskip orðið lang voldugasti aðili í samgöngum Islendinga við umheiminn — á sjó og í lofti. En á hinn bóginn mun staða Sigurðar Helgasonar eldra Hörður Sigurgestsson forstjóri Eim- skips. Fljúgandi gangur hjá Eimskip. Sjálfur var Hörður framkvæmdastjóri fjármálasviðs Flugleiöa í eina tjð, — og einnig um tíma í stjórnarnefnd yfir Arnar- flugi þannig að hann þekkir til viðskipt- anna í loftinu eins og á sjónum. Munu Eimskipsmenn setja vítamín í Flugleiðir? innan fyrirtækisins nú vera mun veikari en áður eins og síðar verður komið að. Stjómin í kyrrstöðu? í aðalstjórn Flugleiða sitja nú:Sigurður Helgason stjórnarformaður, Hörður Sigur- gestsson varaformaður, Halldór H. Jónsson, Árni Vilhjálmsson, Kristinn Olsen, Grétar Br. Kristjánsson, Jóhannes Markússon, Kristjana Milla Thorsteinsson og Páll Þor- steinsson — og í varastjórn: Einar Árnason, Ólafur O.Johnson og Rúnar Pálsson. Eimskip hefur hingað til þótt fara varlega með yfirburðastöðu sína í Flugleiðum, en það hefur aðstöðu til að hafa þar veruleg áhrif. Meiri áhrif en hingað til hafa orðið merkjanleg. Tveir stjórnarmanna Flugleiða eru beint frá Eimskip, þeir Hörður Sigur- gestsson og Halldór H. Jónsson, sem stund- um er nefndur „forstjóri íslands" (hann er eða hefur verið í stjórnum flestra fjölskyldu- fyrirtækjanna og stærstu fyrirtækja á land- inu). Eimskip gæti náð fleiri fulltrúum inn í stjórnina, en mjög ólíklegt er talið að það 28

x

Þjóðlíf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.